Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Síða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Síða 24
ÁHellissandi er að finna fjöl-skyldurekna veitingastaðinn Viðvík,sem hélt nýlega upp á eins árs af- mæli. „Maturinn sem við bjóðum upp á er í fínni kantinum og af blönduðum uppruna, þar á meðal skandinavískum, frönskum og asískum.“ segir Gils Þorri Sigurðsson, yfir- matreiðslumaður Viðvíkur, en hann er eig- andi ásamt bróður sínum Magnúsi Darra Sigurðssyni og mökum þeirra, Anítu Rut Að- albjargardóttur og Helgu Jóhannsdóttur. „Við einblínum á ferskt og gott hráefni í bland við einfaldar hugmyndir í vandaðri út- færslu. Við fáum síðan frábært hráefni frá nærliggjandi stöðum, aðallega fisk, skelfisk og þess háttar.“ Spurður um staðsetninguna segist Gils telja hana fullkomna. „Ég ólst upp á svæðinu svo að fyrir mitt leyti er staðsetningin upp á tíu, og útsýnið líka. Kúnnahópurinn er skemmtileg blanda af heimamönnum og ferðafólki, en það er árstíðabundið hvor hóp- urinn er stærri. Ferðamennirnir eru mjög margir á sumr- in, en heimamenn eru líka duglegir að fá sér að borða, þá oftast um helgar,“ segir Gils sem deilir tveimur uppskriftum með lesendum. Ljúfmeti á Snæfellsnesi Viðvík er lítill en nota- legur veitingastaður sem rúmar 30-40 manns. Viðvík er lítill en notalegur fjölskyldurekinn veitingastaður sem opnaði fyrir rúmlega ári. Þar er gestum boðinn gómsætur matur með glæsilegu útsýni. Arnar Tómas Valgeirsson arnart@mbl.is SÍTRÓNU „BEURRE NOISETTE“ KAKA 190 g sykur 115 g hveiti 2 g salt 2 eggjarauður 105 gr eggjahvíta 1 vanillustöng 25 ml sítrónusafi börkur af hálfri sítrónu 160 ml „Beurre noisette“ (sjá að- ferð efst á síðu) 110 gr af sykri, eggjarauður, sí- trónubörkur, sítrónusafi og van- illa hrært saman þar til eggin eru orðin létt, þá er hveitið sigtað út í og svo smjörinu bætt við, hrært vel saman. Eggjahvítan ásamt saltinu og rest af sykri þeytt þar til að stífur marengs myndast. Marengsinum er þá bætt út í hina blönduna í þrem skrefum. Við mælum með því að nota sleikju í stað písks til þess að viðhalda sem mestu lofti í blöndunni svo að kakan verði léttari. Smyrjið form með smjöri og hellið blöndunni í. Bakað við 165 gráður í 25 mínútur (misjafnt eftir stærð formsins og þykkt kökunnar) Líka hægt að prufa að notast við appelsínur og kardimommur í þessa uppskrift. SELLERÍRÓTARKARAMELLA 1 sellerírót 2 dl sykur 1 l vatn 400 ml rjómi Sykurinn settur í pott og bráð- inn þar til dökk karamella mynd- ast. Á meðan sykurinn bráðnar er gott að skera sellerírótina í grófa teninga. Þegar sykurinn er tilbúinn er vatninu bætt út í, mælt er með því að hita vatnið áður til þess að minnka myndun sykurkristalla. Þegar sykurinn hefur leyst vel upp í vatninu má bæta sellerírót- inni út í og sjóða vel saman, eða þar til að blandan hefur soðið niður um rúmlega helming. Næst er sellerírótin sigtuð frá og blandan soðin niður enn fremur eða þar til að sýróp hef- ur myndast. Næst er rjómanum bætt út í og blandan soðin saman þar til þykknar, gott er að hræra vel í blöndunni með písk. Karamellan er þá látin kólna, þegar karamellan er orðin köld er gott að hræra hana upp. ÞEYTT SKYR 200 g skyr (má vera hvaða bragð sem er, hér er notað vanilluskyr) 250 ml rjómi flórsykur eftir smekk 2 tsk hunang (eða eftir smekk) börkur af hálfri sítrónu „brennt“ hvítt súkkulaði Rjóminn settur í hrærivél og léttþeyttur Skyrinu svo bætt út í ásamt, flórsykri, hunangi, sítrónuberki og fínmuldu brenndu hvítu súkkulaði. Þeytt áfram þar til stíft. ANNAÐ MEÐLÆTI frostþurrkuð hindber „brennt“ hvítt súkkulaði dill olía fersk hindber eða jarðarber Þeytt skyr ásamt Beurre noisette köku og sellerí- rótarkaramellu 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.8. 2018 Sumarkokkteill 4,5 cl bourbon-viskí (hér er notað Wood- ford Reserve) 3 cl sykursíróp 3 cl límónusafi 1 msk. bláberjapúrra 3 cl eggjahvíta mynta til skreytingar Allt sett í hristara. Hrist án klaka í 15 sekúndur. Bætið klaka í hrist- arann og hristið aftur. Sigtið tvisvar og hellið í glas. Mælt með að hella í vískíglas með kúluklaka eða kokkteilglas á fæti. Skreytt með mynt- unni. Blue Berrymore MATUR Setjið smjör í pott og bræðið yfir meðalháum hita. Hræriðreglulega í smjörinu þar til gullin froða myndast ofan á því. Látið malla þar til froðan verður fagurbrún. Að gera Beurre noisette

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.