Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.8. 2018
F
angelsi hafa gjarnan verið kölluð
„vinnuhæli“ eða „betrunarhús“ eða
eitthvað í þeim stíl, auk áherslunnar á
frelsissviptinguna. Vissulega er refsi-
þátturinn mikilvægur, bæði vegna ætl-
aðra varnaðaráhrifa og eins vegna
hvers konar tjóns og miska sem brotaþolar, beinir og
óbeinir, verða fyrir. Ef ríkisvaldið horfir ekki til slíkra
þátta má ætla að eitt brot kalli á fleiri. Sagan kennir
að þeir sem áttu um sárt að binda, sómans vegna eða
annars missis, hlutu þá að láta til sín taka, þessi
grunneining einkareksturs þegar opinberan vilja eða
getu vantar.
Afgerandi refsing
Þeim lýðræðisríkjum fækkar sem telja dauðarefs-
ingar réttlætanlegar. Ætla mætti þó að varnaðaráhrif
hástigs allra refsinga séu meiri en annarra. En mörg-
um þykir sjálfsagt að munurinn á skilyrðislausu fang-
elsi til lífstíðar og á aftöku sé næsta naumur.
Í Bandaríkjunum þekkist það vel að dauðadæmdur
maður fær í raun tvo dóma fyrir einn. Eftir dauða-
dóminn tekur við áfrýjunarferli sem getur staðið yfir
árum eða áratugum saman. Lögfræðingar kvarta
ekki. Fanginn er geymdur á meðan í einangrun á
„dauðadeild“. Oftast er þetta langa þóf árangurslaust
og er dauðadómnum framfylgt. Lögð er höfuðáhersla
á að fanginn, sem hefur kvalist í áratug eða svo, kvelj-
ist alls ekki lengur en í eina mínútu, þegar stóra
stundin kemur.
Fangavænir
Þá hefur hinn sakfelldi oft setið lengur í einangrun en
maður sakfelldur fyrir morð á Norðurlöndum þyrfti til
endanlegrar afplánunar fyrir sinn glæp og aðbúnaður
hans að auki allur annar og betri. Ekki hafa þó allir
morðingjar velferðarríkjanna aðbúnað á borð við þann
sem fjöldamorðinginn Anders Breivik nýtur (myrti
77) með sína þriggja klefa svítu og sér baðherbergi og
sturtu, og kvartar þó. Sá ódráttur var dæmdur í 21 árs
fangelsi fyrir hryllinginn sinn.
Það þætti með ólíkindum vel sloppið víðast, en þess
er þá að geta að Breivik verður þó ekki látinn laus eft-
ir almanakinu nema að áður hafi farið fram mat á því
að það teljist óhætt. Verði niðurstaðan sú að því fari
fjarri, eins og líklegt er, má framlengja hald hans um 5
ár í senn svo oft sem það er talið nauðsynlegt.
Dauðadóm og „betrun“ er ekki hægt að ræða í sömu
andrá fremur en ævilangt fangelsi án kosts á reynslu-
lausn. Sama kann að gilda um aðra fangelsisþvingun
um langa hríð, jafnvel í einangrun í smábúrum lung-
ann af hverjum sólarhring.
Víti til varnaðar
En varnaðaráhrif þess að ríkisvaldið taki fast á af-
brotum eru ótvíræð. Spurningin snýst þá um það
hversu hart þurfi að ganga fram svo eftirsóttur árang-
ur náist og þá um hina spurninguna hversu mild við-
brögðin megi vera, en þó duga til í flestum tilvikum.
Ef horft er til þess hve oft dæmdir morðingjar, sem
fengið hafa lausn, hafa gerst sekir um sambærilegan
verknað aftur á Norðurlöndum, þá verður ekki betur
séð en að „mildi og mannúð“ í bland við refsingar vel-
ferðarríkjanna, hafi ratað vandfundinn milliveg. Og
eins verður ekki betur séð en þolendur verknaðarins
sem sakfellt var fyrir umberi það a.m.k. hvernig ríkis-
valdið standur að því að „ná fram hefndum“ fyrir
þeirra hönd.
Forysturíki fótar sig ekki
Bandaríkin njóta aðdáunar vegna árangurs þeirra,
frumkvæðis og stuðnings við frelsishugsjónir og fyrir
að hafa tryggt sigur gagnvart ógeðslegum stjórn-
arstefnum eins og þeim sem Hitler og Stalín voru
ímynd fyrir. Kannski þess vegna eru velunnarar þessa
mikla ríkis stundum dálítið undrandi yfir sumu sem
þar þrífst. Þetta á við um réttarríkið og veika stöðu
þeirra einstaklinga sem hafa lítil efni og eins hvernig
handhafar ríkisvaldsins geta beitt ofurafli sínu til að ná
öllu fram. Sumu af því verður ekki líkt við annað en
bolabrögð gagnvart ákærðum mönnum.
Mjög sérstakur saksóknari
Robert Mueller var skipaður sem sérstakur saksókn-
ari til að rannsaka meint samsæri Trumps og Pútíns í
aðdraganda forsetakosninga, án þess að nokkurt tilefni
hafi verið tilgreint. Saksóknarinn er oft í fréttum þessa
dagana. Í tæp tvö ár hefur hann ásamt þéttum hópi
saksóknara úr stuðningsliði demókrata „hinum 17 eitr-
uðu“ eins og Trump kallar þá, verið að handtaka og
yfirheyra menn sem komu eitthvað að kosningabar-
áttu Trumps og þó stundum næsta lítið og reynt að fá
þá með hótunum um málaferli og fangelsun vegna ann-
arra málefna til að vitna gegn forsetanum.
Furðumál gegn Flynn herforingja hefur ekki þokast
neitt, en hann gafst upp á að standa í vörnum fyrir sig
þegar hann sá að það stefndi í gjaldþrot hans og fjöl-
skyldunnar innan fárra vikna.
Manafort
Nú er mál uppi gegn manni sem heitir Paul Manafort
og starfaði sem kosningastjóri fyrir Trump í fáeina
mánuði. Hugsanleg brot hans, sem Mueller er að rann-
saka, koma Trump ekkert við. Þau snúast um skatta-
og bankamál á árunum 2000-2008, hálfum öðrum ára-
tug áður en Manafort kom til starfa í fáeina mánuði
fyrir framboð Trumps.
Manafort er nú haldið í fangelsi til að auka pressuna
á hann og honum er hótað því að verða dæmdur í svo
þunga refsingu að hann tæplega sjötugur maður ætti
aldrei afturkvæmt lifandi út úr fangelsi. Meira að segja
alríkisdómarinn í málinu,T. S. Ellis, sagði í opnu rétt-
arhaldi að saksóknarinn hefði augljóslega engan áhuga
á Manafort eða hugsanlegum brotum hans. Hann væri
eingöngu að vinna að því að fá hann dæmdan til ára-
tuga fangavistar til að geta notað þann ógnarvönd á
manninn til að fá hann til að vitna gegn Trump um eitt-
hvað sem saksóknarar vita ekki hvað er og þá fá að
sleppa við refsingu vegna glæpa sem fullyrt er að séu
svona alvarlegir!
Á sama tíma er hinn sérstaki saksóknari að semja við
demókrata, nátengda kosningabaráttu H. Clinton, sem
hafa sömu eða sambærilegar ástæður og Manafort
þessi til að hanga handan rimla í áratugi, um algjöra
sakaruppgjöf finni þeir eitthvað eða fabúleri sem þeir
geta vitnað um og geri saksóknaranum auðveldara að
sakfella Manafort. Allt er þetta einkar ógeðfellt og
fjarri hugmyndum raunverulegra lýðræðisríkja um
það hvað réttarríkið sé og um hvað það snúist.
Ankannalegar ákærur
Mikið fjaðrafok varð þegar sami saksóknari, Robert
Mueller, birti ákæru á hendur 12 mönnum, sem allir
voru sagðir njósnarar rússneskra yfirvalda, fyrir að
hafa reynt að hafa áhrif á og skaða framgang kosninga
í Bandaríkjunum haustið 2016. Það fjaðrafok varð ekki
eins og ætla mætti vegna þess að saksóknarinn birti
ákærurnar þremur dögum fyrir ætlaðan fund leiðtoga
ríkjanna, sem engin efni stóðu til.
Demókratar gripu ákærurnar glóðvolgar, gengu af
göflunum eins og þeir hafa gert nær daglega síðan
Hvenær ljúga leyni-
þjónustur? Það er
satt best að segja
leyndarmál
Reykjavíkurbréf03.08.18