Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Blaðsíða 34
LESBÓK Sigurður Bjarki Gunnarsson sellóleikari og Nína Margrét Grímsdóttirpíanóleikari leika fögur og fræg tónverk kl. 12.30 dagana 4. til 6. ágúst, á
síðustu tónleikum í tónleikaröðinni Reykjavík Classics í Hörpu í sumar.
Hádegistónleikar um helgina
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.8. 2018
Pétur Guðjónsson, handritshöfundur,leikstjóri og framleiðandi barnasöng-leiksins Gutti & Selma og ævintýrabók-
in, sem fer á fjalir Tónlistarhússins Laugar-
borgar í Eyjafirði á fimmtudaginn, kveðst hafa
notið dyggilegrar aðstoðar sérdeilis góðra
prófarkalesara og álitsgjafa í sköpunarferlinu.
Þótt þau séu ekki há í loftinu, aðeins þriggja
og sjö ára, tróna nöfn þeirra hæst á huglægum
kreditlista afa þeirra. „Þegar ég var að passa
og svæfa á kvöldin notaði ég tækifærið og las
handritið fyrir þau til að sjá viðbrögðin og fá
álit,“ rifjar Pétur upp. „Mjög gagnlegt og
skemmtilegt,“ áréttir hann og hefur aug-
ljóslega fengið jákvæðar undirtektir og hvatn-
ingu frá barnabörnunum því æfingar hófust í
maí og standa yfir nánast daglega um þessar
mundir og alveg fram á frumsýningardag.
„Leikritið er 40 mínútna langt og segir frá
systkinunum Gutta og Selmu, sem eru 8 og 10
ára. Þau finna ævintýrabók og upp úr henni
stökkva frægar sögupersónur á borð við Emil
í Kattholti og Línu Langsokk auk langömmu,
seiðkonu, trölla og alls konar óvæntra kynja-
vera. Með hlutverk Gutta fer Eyþór Daði Ey-
þórsson en Selmu leikur Birgitta Björk Bergs-
dóttir. Þau eru nánast allan tímann á sviðinu,
en fimm leikarar skipta með sér hlutverkum
ævintýrapersónanna. Viðvera Erlu Rutar
Möller, nýútskrifaðrar leikkonu frá New York,
er líka töluverð því hún fer með tvö hlutverk,
annars vegar nornar og hins vegar lang-
ömmu,“ segir Pétur og bætir við að þrátt fyrir
ungan aldur séu Eyþór Daði og Birgitta Björk
reyndir leikarar, sem hafi leikið mikið með
áhugaleikhúsum á Akureyri og svæðinu í
kring.
Hugmyndin kviknaði á fjöllum
Sjálfur er Pétur viðburðarstjóri að mennt,
starfar sem slíkur í hálfu starfi í Verkmennta-
skólanum á Akureyri, og hefur síðastliðin þrjú
ár sótt námskeið í leikstjórn hjá Bandalagi ís-
lenskra leikara. „Ég er eiginlega svona altmú-
ligmaður og plötusnúður líka,“ segir hann
brosandi og víkur talinu að tildrögum þess að
þau Gutti og Selma stíga á svið í Laugarborg.
„Eftir að ég leikstýrði fjölskylduleikritinu
Ávaxtakörfunni hjá Leikfélagi VMA, sem sett
var upp í Menningarhúsinu Hofi í ársbyrjum,
hafði framkvæmdastjóri Handverkshátíðar
Eyjafjarðar samband og spurði hvort ég vildi
setja upp leikrit á hátíðinni. Ég svaraði ját-
andi, enda höfðu gríðarlegar vinsældir
Ávaxtakörfunnar vakið hjá mér mikinn áhuga
á að halda áfram að miðla einhverju til
barnanna gegnum leikhúsið. Síðan fór ég í
fjallgöngu í páskafríinu með konunni minni og
þá bara varð þetta allt saman til í höfðinu á
mér; Gutti, Selma og ævintýri þeirra syst-
kina.“
Leikritið er samstarfsverkefni Hand-
verkshátíðarinnar og hóps sem kallar sig
Draumaleikhúsið og samanstendur af hátt í
tuttugu manns. „Sumir sem komu að upp-
setningu Ávaxtakörfunnar hafa verið að
grípa í þetta verkefni með mér. Fremst í
flokki er Jóhanna Birnudóttir, eða Jokka
eins og hún er alltaf kölluð og rak hér götu-
leikhús árum saman, en hún var sú fyrsta
sem ég sýndi handritið og bað um að aðstoða
mig við að setja leikritið upp. Því næst hóaði
ég í ýmsa reynslubolta, til dæmis mjög
flinka saumakonu. Í hópnum er enginn einn
sem ræður heldur samráð um alla skapaða
hluti; búninga, sviðsmynd og heildarútlit.
Sviðsmyndin afar látlaus en um leið býsna
snjöll. Hún er svo til eingöngu byggð á lýs-
ingu, sýningartjaldi, tveimur krossviðar-
plötum og myndbandi. „Um leið og sýningar-
tjaldið er dregið frá blasa töfrarnir við sem
risastór opin bók. Ekki líður svo á löngu þar til
alls konar ævintýrapersónur hoppa út af blað-
síðunum þar sem þær hitta fyrir þau Gutta og
Selmu.“
Tónlistin í verkinu er þekkt ábreiðutónlist
og lög sem Pétur telur næsta víst að flest börn
þekki og geti sönglað með, til dæmis „Gutta-
vísur“, „Lagið um það sem er bannað“, „Ég
langömmu á“ og „Skýin“. Spurður hvort í
söngleiknum sé boðskapur til barnanna segir
Pétur hann ósköp einfaldan og auðskilin:
„Maður á ekki að vera óþægur.“
Ætti ekki að verða meint af
Trúlega er það hægara sagt en gert fyrir
suma, sérstaklega gutta eins og Gutta, sem
grettir sig og bara hlær þegar Selma, stóra
systir hans, þarf að vanda um fyrir honum.
„Krakkarnir lenda í alls konar ævintýrum og
komast oft í klandur. Þótt í verkinu séu
kannski svolítið ógnvænleg tröll og kynjaverur
tel ég að börnum allt niður í þriggja ára ætti
ekki að verða meint af. Börnin vilja vissulega
sinn skammt af spennu en hún má þó ekki
verða of mikil.“
Pétur er enginn nýgræðingur í að semja og
setja á svið leikrit. Þau Jokka hafa unnið náið
saman á undanförnum árum. Þau sömdu og
settu upp barnasöngleikinn Tumi tímalaus í
Álfheimum árið 2014 og áður þrjú verk,
„meira svona fullorðins“ eins og hann segir:
Bernaise, já takk og franskar á milli, grín-
söngleik um Akureyringa árið 2012 og ári síð-
ar Gúgglaðu það bara, söngfarsa um sam-
skiptamáta ungs fólks. Þá er ótalið örleikritið
Mér er fokking drullusama, sem fjallaði um
sjálfsvíg og sýnt var í Verkmenntaskólanum á
Akureyri í fyrra og síðan notað þar sem
kennsluefni í lífsleikni.
Átta sýningar eru fyrirhugaðar á söng-
leiknum Gutti & Selma og ævintýrabókin,
tvær á dag kl. 13 og 15 frá fimmtudegi 9. ágúst
til sunnudags 12. ágúst. Höfundur Gutta &
Selmu er ákveðinn í að skrifa þau inn í fram-
tíðina og fara með systkinin út um allt land.
„Þau munu lifa í fleiri verkum,“ segir hann.
Jokka - Jóhanna G. Birnu-
dóttir og Pétur Guð-
jónsson á æfingu í Verk-
menntaskóla Akureyrar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
„Maður á ekki að vera óþægur“
Pétur Guðjónsson er allt í senn handritshöfundur, leikstjóri og framleiðandi nýs barnasöngleiks, Gutti & Selma og
ævintýrabókin, sem frumsýndur verður á Handverkshátíð Eyjafjarðar næstkomandi fimmtudag.
Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is
’Þau finna ævintýrabók ogupp úr henni stökkva frægarsögupersónur á borð við Emil íKattholti og Línu Langsokk auk
langömmu, seiðkonu, trölla og
allskonar óvæntra kynjavera.
Eyþór Daði og Birgitta Björk leika systkinin Gutta og Selmu, sem lenda í ýmsum ævintýrum.