Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.08.2018, Qupperneq 36
Ástarmyndir gömlu Hollywood sem eiga enn erindi við okkur eru fjölmargar, enda gerist rómantíkin ekki betri en í dramatísku svart-hvítu umhverfi þess tíma. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Elizabeth Taylor með sjarmann í botni í A Place in the Sun. ● „Ég hef elskað þig eins mikið og ég er fær um að elska. Ef það var ekki nóg er það ekki mín sök. Við erum ekki skaparar okkar eigin hjarta.“ Kamelíufrúin, Camille, frá 1936 er grenjuástarmynd en þar sem grátur er samkvæmt hörðustu vís- indum sannreyndur sem hollur og hreinsandi er kvöldstund með Gretu Garbo og Robert Taylor sannkallað detox. Frægt er að í öðrum kvik- myndum horfa persónur stundum á Camille og gráta, svo sem í Annie þegar farið er í bíó. Myndin byggir á skáldsögu frá 1848 og í leikstjórn George Cukor segir hún sérlega sorglega sögu Par- ísarbúans Marguerite Gautier, sem verður ástfangin af sér mun yngri manni, Armand. Án þess að gefa of mikið upp fyrir þá sem hafa ekki séð myndina vill faðir Armands ekki að hann sé í samneyti við Gautier, sem er vel þekktur Parísarbúi með um- deilda fortíð. Gautier verður þá al- varlega veik, sem hefur mikil áhrif á framþróun myndarinnar. Lokaatrið- inu gætu fylgt ekkasog. ● „Ef aðeins þú gætir hafa deilt með mér þessum augnablikum, ef aðeins þú hefðir áttað þig á hvað þú áttir, hverju þú hafðir aldrei tapað. Ef aðeins.“ Letter from an Unknown Wom- an í leikstjórn hins þýskættaða Max Ophüls var frumsýnd 1948 og skart- ar Joan Fontaine og Louis Jourdan í aðalhlutverkum. Sagan segir frá ungri stúlku í Vín, Lísu, sem verður ástfangin úr fjarlægð af píanóleik- aranum Stefan sem býr í sama húsi og hún. Hún hlustar á hann æfa sig og er í mörg ár ástfangin af honum án þess að gefa sig á tal við hann. Í myndinni fylgjast áhorfendur með því hvernig leiðir Stefáns og Lísu skerast örsjaldan á langri ævi og hversu dramatískar afleiðingar þau kynni hafa á líf þeirra beggja. ● „Ég elska þig. Ég hef elskað þig frá fyrsta augnablikinu sem ég sá þig. Ég held ég hafi elskað þig jafnvel áður en ég sá þig.“ Elizabeth Taylor, Montgomery Clift og Shelley Winters eru upp á sitt besta í ástardramanu A Place in Greta Garbo og Robert Taylor á dramatískri stundu í Kamelíufrúnni. Rómantískt svart-hvítt sumarkvöld Ekki fór vel fyrir ástarsambandinu í Letter from an Unknown Woman. 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.8. 2018 LESBÓK TÓNLIST Búist er við að Maton Mastersound-gítar George Harrison fari á 40-55 milljónir króna á uppboði hjá Gardiner Houlgate, en Harrison spilaði á hljóðfærið á fyrstu árum Bítlanna og þegar Bítlaæðið var algleym- ingi. Jafnframt var hann myndaður með gítarinn á síð- ustu tónleikunum sem Bítlarnir héldu á Cavern Club fyrir 55 árum, en þar héldu þeir nærri 300 tónleika. Upphaflega fékk Harrison gítarinn lánaðan á hljóð- færaverkstæði í Manchester meðan hans eigin gítar var þar í viðgerð en hann var svo hrifinn af gripnum, sem er áströlsk smíði, að hann hélt áfram að spila á hann. Sjald- gæft er að hljóðfæri George Harrison séu seld á upp- boði, svo að búist er við miklum áhuga fyrir hljóðfærinu. Uppboðið fer fram um miðjan september. Gítar Bítilsins til sölu George Harrison og Olivia eigin- kona hans árið 1978. TÓNLIST Kanye West þakkar Steve Jobs og Apple fyrir að hafa verið helsta hvatning hans í lífinu. Rapparinn tísti þar sem hann þakkaði tæknirisanum og stofnanda hans, Jobs, sem lést 2011, fyrir að hafa veitt sér og jarðarbúum innblástur með afrekum sínum en tilefnið er að í vikunni varð Apple fyrsta fyrirtækið í heiminum til að vera metið á yfir eina billjón Bandaríkjadala á almennum hlutabréfamarkaði. Kanye West gaf eigin- konu sinni, Kim Kardashian West, hlutabréf í Apple í jólagjöf. Rapparinn hefur líkt sér við Jobs og kallað sjálfan sig Steve Jobs popp- menningarinnar. Þakkar Steve Jobs og Apple Kanye West segir afrek Steve Jobs hvetja sig áfram á hverjum degi. AFP Jennifer Aniston þarf að nota sann- færingarkraft sinn á LeBlanc. Einn vinur ekki í stuði SJÓNVARP Aðdáendur Friends sjónvarpsþáttanna hafa lengi kall- að eftir því að þættirnir hefji göngu sína að nýju. Í viðtali við InStyle segir Jennifer Aniston að hún og aðrir leikarar þáttanna hafi áhuga á slíkum endurfundum, nema einn. Það gæti orðið erfitt að sannfæra Matt LeBlanc, sem lék Joey, um að það sé rétt ákvörðun. Hann sé ekki spenntur fyrir hugmyndinni. Sjálf er hún sannfærð um að einhvers end- urkoma Friends á skjánum sé góð hugmynd. SJÓNVARP Og meira af end- urkomu gamalla sjónvarpsþátta en þá gæti Alf verið á leiðinni á skjá- inn aftur. Samkvæmt heimildum TV Line eru Warner Bros að skoða hvort grundvöllur sé fyrir að gera nýja seríu en kaldhæðna geimveran Alf var vinsæll á 9. áratugnum og voru alls gerðar fjórar seríur um Alf sem settist að hjá fjölskyldu í bandarísku út- hverfi sem reyndi að taka honum eins og hann var. Ekki er vitað hvort brúðumeistarinn Paul Fusco muni koma að nýjum þáttum en hann er skapari Alf. Skoða hvort Alf komi aftur Alf setti rólegt heimilislíf á annan endann.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.