Fréttablaðið - 29.10.2018, Side 48

Fréttablaðið - 29.10.2018, Side 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800 Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Þórarins Þórarinssonar BAkþAnkAR Hópefli elur á hatri og sundrungu og er skýrasta dæmið um að vegurinn til vítis er frá fyrsta skrefi varðaður góðum áformum. Flokkshollusta er fyrirtaksdæmi um hversu mannfjandsamlegt og hugsjónalaust hópefli er í eðli sínu. Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri græn eru saman í ríkis- stjórn, þið vitið? Hópeflisdagar eru annað ömur- legt dæmi enda ógnvekjandi hversu auðvelt er að láta mannkyn virkra í athugasemdum troða sig út af rjómabollum einn daginn, gefa blóm, éta sér til óbóta af söltuðu kjöti eða graðga í sig hlandleginni skötu. Hrekkjavakan er eini heilbrigði hópeflisdagurinn vegna þess að hún er alvöru karnival sem ruglar bæði öfgahægribullurnar sem og ringlaðan rétttrúnaðinn til vinstri. Þetta er fjölþjóðleg gleði þar sem heiðni og kaþólska renna saman, rétt eins og sósíalisminn og kapítalisminn; múgurinn kallar eftir ölmusu, í ákveðnum hótunar- tón og þeir sem lúra á gæðunum kasta gúmmelaðinu, endurgjalds- laust, yfir lýðinn. Á hrekkjavökunni fer allt skemmtilega liðið, sem kúgandi eingyðistrúarbrögðin fordæma, á kreik. Vampírur, nornir, mórar og skottur taka völdin og allir fá að vera með vegna þess að þegar maður er í dulargervi getur enginn dæmt mann fyrir húðlit, kynhneigð, umframkíló, trú eða stjórnmálaskoðun. Við fáum frelsi til þess að vera við sjálf með því að vera ekki við sjálf og er ekki líklegt að manni líði betur, til dæmis sem raðmorðingja með hvíta grímu og búrhníf frekar en í gervi hugsjónalauss komma í köflóttri skyrtu eða réttþenkjandi fasista í jakkafötum? Hrekkjavakning 2 9 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 3 5 -8 3 0 C 2 1 3 5 -8 1 D 0 2 1 3 5 -8 0 9 4 2 1 3 5 -7 F 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 8 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.