Fréttablaðið - 29.10.2018, Síða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Þórarins
Þórarinssonar
BAkþAnkAR
Hópefli elur á hatri og sundrungu og er skýrasta dæmið um að vegurinn til
vítis er frá fyrsta skrefi varðaður
góðum áformum.
Flokkshollusta er fyrirtaksdæmi
um hversu mannfjandsamlegt
og hugsjónalaust hópefli er í eðli
sínu. Sjálfstæðisflokkurinn og
Vinstri græn eru saman í ríkis-
stjórn, þið vitið?
Hópeflisdagar eru annað ömur-
legt dæmi enda ógnvekjandi
hversu auðvelt er að láta mannkyn
virkra í athugasemdum troða sig
út af rjómabollum einn daginn,
gefa blóm, éta sér til óbóta af
söltuðu kjöti eða graðga í sig
hlandleginni skötu.
Hrekkjavakan er eini heilbrigði
hópeflisdagurinn vegna þess að
hún er alvöru karnival sem ruglar
bæði öfgahægribullurnar sem og
ringlaðan rétttrúnaðinn til vinstri.
Þetta er fjölþjóðleg gleði þar
sem heiðni og kaþólska renna
saman, rétt eins og sósíalisminn
og kapítalisminn; múgurinn kallar
eftir ölmusu, í ákveðnum hótunar-
tón og þeir sem lúra á gæðunum
kasta gúmmelaðinu, endurgjalds-
laust, yfir lýðinn.
Á hrekkjavökunni fer allt
skemmtilega liðið, sem kúgandi
eingyðistrúarbrögðin fordæma,
á kreik. Vampírur, nornir, mórar
og skottur taka völdin og allir
fá að vera með vegna þess að
þegar maður er í dulargervi getur
enginn dæmt mann fyrir húðlit,
kynhneigð, umframkíló, trú eða
stjórnmálaskoðun.
Við fáum frelsi til þess að vera
við sjálf með því að vera ekki við
sjálf og er ekki líklegt að manni líði
betur, til dæmis sem raðmorðingja
með hvíta grímu og búrhníf frekar
en í gervi hugsjónalauss komma í
köflóttri skyrtu eða réttþenkjandi
fasista í jakkafötum?
Hrekkjavakning
2
9
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
3
5
-8
3
0
C
2
1
3
5
-8
1
D
0
2
1
3
5
-8
0
9
4
2
1
3
5
-7
F
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
2
8
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K