Fréttablaðið - 25.10.2018, Side 46
Stjarnan - Haukar 61-58
Stigahæstar: Danielle Victoria Rodriguez
36/11 fráköst, Bríet Sif Hinriksdóttir 9,
Maria Florencia Palacios 7 - LeLe Hardy
14/15 fráköst, Þóra Kristín Jónsdóttir 13,
Sigr´n Björg Ólafsdóttir 11 .
Keflavík - Valur 77-69
Stigahæstar: Brittanny Dinkins 27/13
fráköst, Embla Kristínardóttir 10, Bryndís
Guðmundsdóttir 9 - Brooke Johnson 13,
Hallveig Jónsdóttir 13, Simona Podesvova
12/12 fráköst, Ásta Júlía Grímsdóttir 10/12.
Snæfell - Skallagrímur 81-78
Stigahæstar: Kristen Denie McCarthy 42/24
fráköst, Katarina Matijevic 11, Angelika
Kowalska 10 - Shequila Joseph 22/15 frá-
köst, Bryesha Blair 19, Ines Kerin 16, Maja
Michalska 10, Karen Dögg Vilhjálsmdóttir 4.
Breiðablik - KR 66-73
Stigahæstar: Björk Gunnarsdóttir 16, Kelly
Faris 14/!3 fráköst, Ísabella Ósk Sigurðar-
dóttir 12/14 fráköst - Kiana Johnson 26/13,
Orla O’Reilly 19, Perla Jóhannsdóttir 16,
Unnur Tara Jónsdóttir 4.
Efri
Snæfell 8
KR 8
Keflavík 6
Stjarnan 6
Neðri
Haukar 4
Valur 4
Skallagr. 4
Breiðablik 0
Nýjast
Domino’s-deild kvenna
Meistaradeild Evrópu
A-riðill
Club Brugge - Monaco 1-1
0-1 Moussa Sylla(31.), 1-1 Wesley (39.)
Dortmund - Atl. Madrid 4-0
1-0 Axel Witsel (38.), 2-0 Raphael Guerreiro
(73.), 3-0 Jadon Sancho (83.), 4-0 Guerreiro
(89.).
Staðan: Dortmund 9, Atletico Madrid 6,
Monaco 1, Club Brugge 1
B-riðill
PSV - Tottenham 2-2
1-0 Hirving Lozano (30.), 1-1 Lucas Moura
(39.) 1-2 Harry Kane (55.), 2-2 Luuk de Jong
(87.).
Rautt spjald: Hugo Lloris, Tottenham (79.).
Barcelona - Inter 2-0
1-0 Rafinha (32.), 2-0 Jordi Alba (83.).
Staðan: Barcelona 9, Inter 6, Tottenham 1,
PSV 1
C-riðill
PSG - Napoli 2-2
0-1 Lorenzo Insigne (29.), 1-1 Mario Rui (61.,
sjálfsm.), 1-2 Dries Mertens (77.), 2-2 Angel
Di Maria (90+3.).
Liverpool - Rauða stj. 4-0
1-0 Roberto Firmino (20.), 2-0 Mohamed
Salah (45.), 3-0 Salah (51., víti), 4-0 Sadio
Mane (80.).
Staðan: Liverpool 6, Napoli 5, PSG 4, Rauða
Stjarnan 1
D-riðill
Lokomotiv - Porto 1-3
0-1 Moussa Marega (26., víti), 0-2 Hector
Herrera (35.), 1-2 Anton Miranchuk (38.), 1-3
Jesus Corona (47.)
Rautt spjald: Solomon Kvirkvelia, Lokomotiv
(76.).
Galatasary - Schalke 0-0
Staðan: Porto 7, Schalke 5, Galatasaray 4,
Lokomotiv Moskva 0
Fótbolti Mohamed Salah, marka-
hrókurinn frá Egyptalandi, skrifaði
nafn sitt enn einu sinni í sögubækur
Liverpool í gær þegar hann skoraði
tvö mörk Liverpool í 4-0 sigri á
Crvena Zvezda, Rauðu Stjörnunni
frá Belgrad í gær. Annað mark hans
í leiknum var hans 50. fyrir félagið
og varð hann um leið sá fljótasti til
að skora fimmtíu mörk fyrir Bítla-
borgarfélagið.
Salah, sem er á sínu öðru tímabili
á Englandi, sló í gegn með Liverpool
í fyrra þegar hann bætti marka-
metið í ensku úrvalsdeildinni. Á
sama tíma daðraði hann við að
bæta markametið á einu tímabili
hjá félaginu með 44 mörk en náði
ekki meti Ians Rush sem skoraði 47
mörk fyrir 34 árum.
Egyptinn Salah skoraði fimmta
og sjötta mark tímabilsins í gær
og um leið fimmtugasta mark sitt
fyrir félagið í 65. leiknum. Bætti
hann með því sjötíu ára gamalt met
Alberts Stubbins sem skoraði 50.
mark sitt í 77. leiknum sínum árið
1948. – kpt
Salah bætti enn eitt metið í gær
Leikmenn Liverpool fagna með Salah á Anfield í gær. NoRDICPHoToS/GETTy
Við sóttum í okkur
veðrið í varnar-
leiknum og seinni hálfleikur-
inn var mjög góður í kvöld.
Guðmundur Þ. Guðmundsson
Undankeppni EM 2020
Ísland 35-21 Grikkland
(17-13)
Mörk Íslands: Bjarki Már Elísson
6, Arnar Freyr Arnarsson 5, Rúnar
Kárason 5, Arnór Þór Gunnarsson
5, Aron Pálmarsson 4, Stefán Rafn
Sigurmannsson 4, Sigvaldi Björn
Guðjónsson 3, Elvar Örn Jónsson 2,
Ómar Ingi Magnússon 1.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson
9, Björgvin Páll Gústavsson 3.
Handbolti „Byrjunin var erfið
eins og var viðbúið. Við höfum
ekki komið saman síðan í júní. Ég
var ekki ánægður með varnarleik-
inn og sóknarleikinn fyrstu 15-20
mínúturnar. Svo varð þetta betra
og betra. Við sóttum í okkur veðrið
í vörninni og seinni hálfleikurinn
var mjög góður,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson eftir öruggan sigur
íslenska karlalandsliðsins í hand-
bolta, 35-21, á Grikklandi í undan-
keppni EM 2020 í gær.
Það tók íslenska liðið um 20 mín-
útur að ná almennilegum takti í sinn
leik. Íslendingar voru alltaf með
frumkvæðið en slakur varnarleikur
og lítil markvarsla varð til þess að
þeir náðu ekki að slíta Grikki af sér.
Eftir 20 mínútna leik, í stöðunni 9-8,
tók Guðmundur leikhlé og hristi
upp í liðinu. Rúnar Kárason átti
góða innkomu í sóknina og Aron
Rafn Eðvarðsson kom í markið í
stað Björgvins Páls Gústavssonar
sem fann sig ekki.
Þá kom betra flæði í sóknina
með innkomu Gísla Þorgeirs Krist-
jánssonar. Hann reyndi lítið sjálfur
en boltinn gekk vel í gegnum
hann og þá skilaði Hafnfirðing-
urinn slatta af stoðsendingum.
Ísland vann síðustu tíu mínútur
fyrri hálfleiks 8-5 og leiddi með
fjórum mörkum í hálfleik, 17-13.
Íslenska liðið byrjaði seinni hálf-
leikinn af krafti, skoraði fyrstu þrjú
mörk hans og náðu sjö marka for-
skoti, 20-13. Bilið milli liðanna
breikkaði eftir því sem leið á seinni
hálfleikinn og á endanum munaði
14 mörkum á liðunum, 35-21.
Varnarleikurinn var allt annar og
betri í seinni hálfleik en þeim fyrri.
Guðmundur segist hafa skerpt á
áherslunum í vörninni í hálfleik og
það skilaði sér í bættum varnarleik.
Grikkir skoruðu aðeins átta mörk
í seinni hálfleik og áttu erfitt upp-
dráttar gegn sterkri íslenskri vörn.
„Á tímabili vorum við ekki nógu
grimmir og spiluðum ekki eins og
við ætluðum okkur. Við vorum
hikandi. Ég sagði að við þyrftum
að ganga rösklega til verks og fara
í tæklingarnar. Línan hjá dómur-
unum var mjög hörð og við fengum
mikið af brottvísunum sem gerði
þetta ekki auðveldara. En mér
fannst við leysa þetta mjög vel,“
sagði Guðmundur.
Bjarki Már Elísson var marka-
hæstur í íslenska liðinu með sex
mörk. Rúnar skoraði fimm sem og
Arnór Þór Gunnarsson og Arnar
Freyr Arnarsson sem átti góða inn-
komu. Hann nýtti öll skotin sín
og fiskaði tvö vítaköst. Ýmir Örn
Gíslason byrjaði á línunni en var
kominn með tvær tveggja mínútna
brottvísanir eftir stundarfjórðung
og lék lítið eftir það. Ólafur Gústafs-
son lék í vörninni þar til hann fékk
rauða spjaldið í upphafi seinni hálf-
leiks. Aron Rafn varði níu af þeim 19
skotum sem hann fékk á sig (47%).
Íslenska liðið heldur til Ankara
á morgun en fram undan er leikur
gegn Tyrkjum í undankeppninni á
sunnudaginn. ingvithor@frettabladid.is
Stígandi í stórsigri á Grikkjum
Ísland bar sigurorð af Grikklandi, 35-21, í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2020 í handbolta í gær. Eftir
bras í byrjun leiks spilaði íslenska liðið mjög vel í seinni hálfleik og vann á endanum stórsigur.
Gríska liðið átti fá svör við Arnari Frey Arnarssyni sem var afar öflugur inni á línunni hjá íslenska liðinu í gær og skilaði fimm mörkum. FRéTTABLAðIð/EyþóR
Fleiri myndir frá leik gærkvölds-
ins má sjá á +Plús síðu Frétta-
blaðsins.
Fréttablaðið +Plús er eingöngu
í Fréttablaðs-appinu eða í
PDF-útgáfu blaðsins sem er
aðgengileg á frettabladid.is.
+PLúS
2 5 . o k t ó b e r 2 0 1 8 F i M M t U d a G U r22 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
sport
2
5
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
2
A
-E
B
2
0
2
1
2
A
-E
9
E
4
2
1
2
A
-E
8
A
8
2
1
2
A
-E
7
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K