Breiðfirðingur - 01.04.1977, Page 11
Valdimar Björnsson
fyrrverandi fjármálaráðherra Minnesotaríkis
Heiðursfélagi Breiðfirðingafélagsins
70 ára
„Víða til þess vott ég fann,
þótt vendist oftar hinu
að Guð á margan gimstein þann,
sem glóir í mannsorpinu.
Hjálmar Jónsson frá Bólu.
Þessar línur eru heldur síðbúnar, en þar sem aðrir hafa
ekki orðið til þess, leyfi ég mér að minna íslenzku þjóðina
á þennan einstaka heiðursmann og ólaunaða sendiherra
hennar á erlendri grund, sem nú stendur á tímamótum.
Sá sem dvelur langdvölum erlendis hlýtur að sjá land
sitt og þjóð í nokkuð öðru Ijósi en hinn, sem ekki hleypir
heimdraganum. Fjarlægðin gerir að sjálfsögðu fjöllin blá,
en á hinn bóginn fæst betri samanburður á mönnum og
og mannlífi um leið og maður kynnist erlendum þjóðum.
Mér virðist það allút'breiddur misskilningur 'hérlendis, að
í Bandaríkjunum búi mestmegnis skúrkar, og að hugur
fólks og athafnir þar í landi snúist fyrst og fremst um pen-
inga. Það kom því víst fáum á óvart, þegar upp komst um
misferli í búðum Nixons, fyrrverandi forseta Bandaríkj-
anna, sem kennt er við „Watergate“ og varpaði skugga á