Ný Dögun - 01.11.1997, Page 8

Ný Dögun - 01.11.1997, Page 8
==NÝ DÖGUN == tók að halda aftur af grátinum. Mér var einhverra hluta vegna mjög í mun að gráta ekki fyrir framan fólkið mitt. Eftir á að hyggja olli það mér hugarangri að hafa ekki fengið tíma ein með drengnum mínum, þar sem hann lá í kistunni. Ég hef á tilfinningunni að á þessum tíma hafi það verið ríkjandi stefna, að ekki liði of langur tími frá láti barna þar til athafnirnar voru yfir- hvort Fiffó vœri þarna ofaní. Hann brotnaði saman og grét alla jarðar- förina. í mínum huga er það svo að við höfðum ekki búið hann nœgi- lega undir það sem koma skyldi. Þrátt fyrir að muna lítið frá þess- um fyrstu dögum, man ég þó vel eftir báðum athöfnunum, og jarð- arförina upplifði ég sem einhverja ömurlegustu stund lífs míns. Eg held að í jarðarförinni hafi sú reiði sem síðan lengi fylgdi mér blossað Tíu dögum eftir að Friðþjófur Ingi var jarðsunginn fórum við til útlanda. Vinnufélagar Sverris hjá Æskulýðsráði Reykjavíkur höfðu safnað peningum fyrir ferð handa okkur og strákunum hvert sem við vildum. Þetta kom eins og himna- sending fyrir mig, nú fœri ég í burtu frá þessu öllu og þegar ég kœmi til baka vœri allt orðið eins og áður. Ég var mjög þakklát þessu fólki, sem með þessu var að frelsa æ 1 t W m, á, i m '■ A Fjölskyldan samankomin þrettán árum eftir hið hörmulega slys. Elísabet Ingvarsdóttir og Sverrir Friðþjófsson með uppkomnum eftirlifandi sonum sínum, þeim Ingvari 26 ára og Sverri Þór 19 ára. „....síðustu árin hef ég fundið fyrir þessari venjulegu hrœðslu móður, að eitthvað hendi syni mína,“ segir Elísabet m.a. í viðtalinu. staðnar. Mér þykir ákaflega leitt að brœðurnir, Ingvar og Sverrir Þór voru ekki viðstaddir kistulagning- una. Okkur var ráðlagt að hafa þá ekki með. Ingvari finnst hann hafa farið mikils á mis, að hafa ekki fengið að kveðja bróður sinn. En þeir komu í jarðarförina. Þegar við gengum inn í Bústaðakirkju, spurði Sverrir Þór litli pabba sinn upp. Ég geri mér enga grein fyrir hvers vegna þessi reiði byrjaði ein- mitt á þessari stundu. En hún fólst í því að drengurinn minn, þessi yndislegi, fallegi og góði drengur, fékk ekki að lifa. Var tekinn frá mér. Og það hróplega óréttlœti að ég skyldi þurfa að verða fyrir því að missa barnið mitt. Þetta gekk bara ekki upp í huga mínum. mig úr viðjum sorgarinnar. Eða svo hélt ég. Við heimsóttum móður- systur mína í Ameríku, fórum að vísu án strákanna, því mér fannst óréttlátt að þeir fengju að fara en ekki Fiffó. Éins og sjá má var nú rökhugsunin ekki alveg í lagi. Þarna vildi ég að einhver hefði haft vit fyrir okkur og bent okkur á að bíða með að fara í einhverjar vikur 8

x

Ný Dögun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.