Ný Dögun - 01.11.1997, Page 13

Ný Dögun - 01.11.1997, Page 13
boðaliða að hafa svokallaða hand- leiðara sem þeir geta leitað reglu- lega til og talað um það sem þeir hafa upplifað í samtölum sínum við syrgjendur. Við höfum brennt okk- ur á því í gegnum tíðina að hunsa þessa nauðsyn sem handleiðarar eru. Sjálfboðaliðar hafa bókstaf- lega „brunnið út“ og gefist upp á að starfa með okkur, því reyndin er sú að þetta er ákaflega krefjandi og beinlínis hœttulegt að starfa lengi að þessum málum án handleiðslu. Nú höfum við ráðið sálfrœðing til samtakanna sem sér um þennan þátt og eru sjálfboðaliðar skyldaðir til að leita til hans. GAGNLEG TJÁSKIPTI Ég hef stundum orðið vör við það að fólk heldur að þeir syrgj- endur sem til okkar leita séu að velta sér upp úr sorginni. En þetta er auðvitað þekkingarleysi. A „opn- um húsum“ eru syrgjendur að tala um sinn missi, undir fjögur augu eða fleiri. Því rœður hver og einn. Eeir koma til að öðlast skilning á eigin tilfinningum og að vinna með sorg sína. Engar kvaðir fylgja því að koma til okkar. Ekkert nafnakall eða þvíumlíkt. Það er mikil áhersla lögð á að fólk haldi algeran trúnað. Við tölum aldrei um fólk með nafni fyrir utan samtökin. Slíkt yrði litið mjög alvarlegum augum. Við sjálf- boðaliðarnir miðlum gjarnan af okkar reynslu, því öll höfum við misst. En ég hallast að því að fyrst og fremst séum við hlustendur og auðvitað betri hlustendur en þeir sem ekki hafa reynsluna. Eftir ein- hverjar vikur eða mánuði (einstak- lingsbundið) geta syrgjendur smátt og smátt farið að tala um annað en missinn og þá finnum við að vel hefur miðað. Og það að fylgja Olga Snorradóttir segir að eitt árið hafi komur á „opin hús(( samtakanna verið um tvö þúsund talsins. Það undirstrikar m.a. mikilvœgi Nýrrar dögunar fyrir syrgjendur. Ævinlega er einnig þörf fyrir fleiri sjúlfboðaliða sem leggja syrgjendum lið.

x

Ný Dögun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.