Ný Dögun - 01.11.1997, Blaðsíða 16
7NY DÖGUN-
Ávarp herra Péturs Sigurgeirssonar biskups:
Ný er dögun
náðargjöf
ff
JJ
Sorg og gleði, - systur tvœr
ná sínhvor okkar fundum,
báðar telja tárin þœr
á tilfinningastundum.
Ný er dögun náðargjöf
á niðamyrkri vinnur.
Það huggar harm á ystu nöf
er hjartað samúð finnur.
í tilefni af tímamótum í sögu
samtakanna Ný dögun, ávarpa
ég ykkur - kæru lesendur - með
þessum orðum. Að vera maður
fylgir því að finna til. Svo auð-
velt er það og erfitt í senn að
vera eins og Guð hefur skapað
mann. Tilfinningin er eitt af hin-
um fimm skilningarvitum. Við
þekkjum vel hversu dýrmæt
sjónin er okkur. Hið sama er að
segja um heyrnina, ilminn og
smekkinn. Síðast en ekki síst er
það svo tilfinningin. Satt er það,
að stundum vildum við geta
komist hjá því að finna til. Hið
sama má líka segja um hin vitin,
sem okkur eru gefin. Sársaukinn
er okkur sérstök kennsludeild í
skóla lífsins, sem okkur er ætlað
að ganga í gegnum.
í kvikmyndinni: Hringjarinn
frá Notre Dame, sem gerð er
eftir hinni frægu skáldsögu Vik-
tors Hugo, er atvik sem mér er í
minni. Þar sem hinn óásjálegi
hringjari er á hlaupum eftir
burðarbitunum hátt uppi í
kirkjuturni Frúarkirkjunnar í
París, og er fullur angistar, kem-
ur hann auga á mannslíkan úr
steini. Hann horfir á styttuna og
segir: Af hverju var ég ekki
gerður úr steini eins og þú?
Tilfinningar okkar vilja oft
verða sárar. Hjá því verður ekki
komist í áfallaheimi. Sársauk-
inn beinir huganum þannig, að
menn sjá hærra og dýpra inn í
tilveru okkar og takmark. „í
kvölum sínum kleif hann hæstu
tinda,“ yrkir Davíð frá Fagra-
skógi um Móse í Heimför Isra-
elsmanna. Og á svipaðan streng
slær Porsteinn Erlingsson með
orðunum: „A sorgarhafsbotni
sannleiksperlan skín.“ - í orðs-
kviðunum stendur: „Drottinn
agar þann sem hann elskar og
lætur þann kenna til, sem hann
hefur mætur á.“ (3:12.) Hér sýn-
ist manni vera um mikla þver-
sögn að ræða. Reynslan segir
annað. Þess vegna orti ljúflingur
frá Hrauni í Öxnadal í sínu al-
kunna ljóði:
, Þái er það víst, að bestu
blómin gróa
í brjóstum sem að geta
fundið til.“
Meistarinn mikli frá Nasaret
opinberar okkur hvernig sorgar-
ferlið hjúpar sorgarefnið, svo að
það skín sem Ijós í myrkrinu,
ljómar líkt og perlan. A það
bendir sæluboð hans í Fjallræð-
unni: „Sælir eru sorgbitnir, því
þeir munu huggaðir verða.“
(Matt:5:4) - Fagnaðarerindið
felst í því að færa okkur nær
Guði. Það er sorginni ætlað að
gera, en við nálægð Guðs breyt-
ist harmurinn í huggun. Oft er
skýrt frá því, hvernig Kristur
nálgaðist kraftaverkin með því
að kenna í brjósti um þá, sem
áttu við einhverskonar neyð að
stríða. Og hið sama er erindi
hans með huggunarboðskap
sinn í gegnum allar aldir. Þannig
komst Páll postuli að orði, er
gjörþekkti kenninguna: „Þeim,
sem Guð elskar samverkar allt
til góðs.“ (Róm. 8:28) Með það í
huga sjáum við tilganginn, sem
Kristur átti í heiminn með boð-
skap sinn. Hann kallaði þá til sín
er þjáðir voru til þess að gefa
þeim hvíld með huggandi anda
sínum og orði. Það gerðist og
staðfesting þess er varanlegasta
og víðtækasta stofnun í heimin-
um í dag: Kristin kirkja.
Samtökin Ný dögun er lifandi
vottur um hvers virði þessi
mikla samfylking er. Huggun er
manni mönnum að, sem þið
hafið fundið í samvistum við þá,
sem gengið hafa í gegnum svip-
aða reynslu eins og þið. Hugg-
unarkraftaverkið gerist á mjög
einfaldan og látlausan hátt
gegnum sálirnar frá einni kyn-
slóð til annarar. Meistarinn lifir í
hverri kynslóð. „Kristur er í gær
og í dag hinn sami og um aldir.“
(Hebr. 13:8) Hann er alltaf ný
dögun fyrir hvern einstakling,
sem þarf á hjálp hans að halda
til þess að vinna úr sorg sinni.
Ný dögun er þannig sem útrétt
hönd af himni, sem þið grípið í
til þess að geta rétt hvert öðru
höndina í samúð og skilningi og
kærleika, sem hvert og eitt okk-
ar þarf mest á að halda. Þannig
berst meðvitund Guðs frá hjarta
til hjarta, huggarinn - Guðs
heilagi andi. Megi hann lýsa för
ykkar áfram og reynast ykkur
„ný dögun“ með hverjum degi.
Pétur Sigurgeirsson
16