Ný Dögun - 01.11.1997, Qupperneq 22
=NÝDÖGUN =
Flestir kannast við hugtakið
sorg og jafnmargir sem komnir
eru til vits og ára þekkja það á
eigin skinni. Samkvœmt því œtti
þetta hugarástand að vera öllum
eðlilegt, þegar þvílíkar kringum-
stœður og/eða áreiti, sem fram-
kalla slikar tilfinningar, eru ann-
ars vegar. Sorgin œtti samkvœmt
því, að vera hverjum einstaklingi
jafnopin bók og kvef þreyta,
höfuðverkur, eða annað það sem
á líkama og sál leitar í daglegum
erli. En svo er þó ekki. Sorgin,
sem hefur bœði áhrif á líkamlegt
og andlegt atgervi einstaklinga, er
miklum mun flóknara fyrirbœri
en svo. Þó svo að hugtakið sorg sé
okkur tamt á tungu, þá er það
einfaldlega þannig að flestum
okkar tekst afskaplega illa að
skilja það og þaðan af síður að
skilgreina að neinu marki. Sorgin
er einfaldlega óumflýjanlegur
þáttur í lífi okkar.
Og áfram má velta upp álitaefnum. Ef
sorgin er okkur eðlileg, þegar erfiðleikar
steðja að, þá má á sama hátt spyrja:
Hvenær er sorgarástandið hjá einstak-
lingi óeðlilegt?
Er sorgin eins og kvef? Þú færð það
og það hverfur að sjálfu sér eftir nokkra
daga, þegar líkaminn hefur unnið á
sjúkdómnum? Átt þó að hættu að fá
kvefbakteríuna „í heimsókn“ annað
slagið ævina á enda.
Eða er sorgin eins og mislingar? Þú
færð þá einu sinni á ævinni og verður
albata á nokkrum dögum, en hefur
myndað ónæmi og færð sjúkdóminn
aldrei aftur.
r sorgin eðlilegur
þáttur daglegs lífs?
í?
i
i
I
*