Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Side 10
10 3. ágúst 2018FRÉTTIR Umboðsaðilar: Húsgagnaval - Höfn / Bara snilld ehf. - Egilsstöðum Mikið úrval af stillanlegum rúmum Gerið gæða- og verðsamanbuð S kýjað, rigning, hvass- viðri og svalt. Er það ekki eitthvað á þá leið sem sumarið hefur verið hér á suðvesturhorni landsins? Frekar ömurlegt og ekki verð- ur skemmtilegt að rifja það upp síðar. Á sama tíma hafa frændur okkar og frænkur á hinum Norð- urlöndunum glímt við mikla hita, þurrka, sólskin og fylgi- fiska þess eins og skógarelda og uppskerubrest. Í Kanada varð hitabylgja tugum að bana ný- lega, víða í Rússlandi hefur verið mjög heitt og hitamet var slegið í Japan nú í vikunni þegar hitinn fór yfir 41 gráðu. Afríka sleppur ekki við mikinn hita og þar hefur fólk fengið að finna fyrir honum og er þó ýmsu vant. En hvað veldur þessu? Er þetta allt saman eitt stórt sam- særi sem valdamikið fólk stend- ur á bak við? Eða er þetta bara algjör tilviljun, eitthvað sem gerist einu sinni á hverjum 1000 árum? Líklega ekki, margir vís- indamenn benda varfærnislega á að orsakanna sé líklegast að leita í hnattrænni hlýnun. Það er þó kannski ekki vinsælt að nefna hana til sögunnar þessa daga, sérstaklega ekki í Bandaríkjun- um þar sem forsetinn og rík- isstjórn hans eru í fararbroddi þeirra sem hafna vísindaleg- um sönnunum fyrir hnattrænni hlýnun og gefa lítið fyrir þá sem aðhyllast slík hindurvitni, sem vísindi nú eru að þeirra mati. Skógareldar í Svíþjóð, upp- skerubrestur í Noregi og Dan- mörku, mikil úrkoma á Ís- landi og á Svalbarða þar sem úrkomumet fyrir júlí var sleg- ið á mánudaginn, mikill hiti í Krasnojarsk-héraði í Rússlandi, þar hefur hitinn verið sjö gráð- um yfir meðallagi, sem hef- ur valdið miklum skógareld- um en um 80.000 hektarar hafa brunnið þar. Óhugnanlegur næturhiti Í bænum Ouargla í Sahara í Al- sír mældist hitinn 51,3 gráður í sumar en það er hæsti hiti sem hefur mælst í Afríku. Í Óman hefur hitinn að næturlagi ekki farið niður fyrir 42,6 gráður um hríð en þetta er talinn vera hæsti næturhiti sem mælst hefur. Það er í sjálfu sér ekki óeðli- legt að hiti sé mikill og úr- koma lítil um hríð en það vekur áhyggjur vísindamanna að nú er þetta ástand mjög viðvarandi. Í Evrópu er staðan sú að hálofta- straumar ýta lægðum, sem bera rigningu með sér, lengst til norð- urs í Svíþjóð og Noregi. Þess- ir háloftastraumar koma sem sagt í veg fyrir að úrkoma kom- ist sunnar. Þetta gerist reglulega en nú hefur þetta varað lengur en venjulega vegna þess hversu veikir þessir háloftastraumar eru núna en það hefur í för með sér rólegt og stöðugt veðurfar. Það er erfitt að tengja þetta við eitthvað eitt í loftslags- breytingunum en það eru ákveðin skilyrði sem vekja athygli loftslagssérfræðinga. Eitt þeirra er að þegar hitamunur- inn á milli norðurheimskauts- ins og annarra svæða á norð- urhveli jarðar minnka verða háloftastraumarnir hægari. Núna hækkar hitastigið hraðar á norðurheimskautinu, vegna hnattrænnar hlýnunar, en í Evrópu. Þetta raskar hitajafn- væginu á milli svæðanna. Þess vegna segja sumir vísindamenn að hugsanlega verði viðvarandi veðurfarsaðstæður, bæði heit- ar og kaldar, meira langvarandi en áður og muni gerast oftar, allt vegna loftslagsbreytinga. Þá hafa verið settar fram kenningar um að vegna bráðn- unar Grænlandsjökuls streymi gríðarlegt magn af köldu vatni út í sjóinn sunnan við Græn- land, en vísindamenn hafa tekið eftir miklu magni af fersku vatni í Norður-Atlantshafi. Þetta kalda vatn veiki síðan Golfstraum- inn sem tryggir þægilegt lofts- lag hér á landi með því að flytja heitari sjó frá Suðurhöfum norð- ur á bóginn. Rannsóknir frá 2015 sýndu að þá þegar hafði straumurinn veikst frá því sem hann var 1975. Ef Golfstraumur- inn veikist verður kaldara hér á landi. En hvort „góð“ og hlý sumur eru liðin tíð hér á landi er kannski erfitt að segja til um núna en það verður spennandi að sjá hvernig veðrið verður á næstu árum. n n Það er ekki bara á Íslandi sem veðrið hefur verið öfgakennt n Munu öfgarnar verða til frambúðar? ER GOLFSTRAUMURINN AÐ VEIKJAST? Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is „Þá hafa verið sett- ar fram kenningar um að vegna bráðnunar Grænlandsjökuls streymi gríðarlegt magn af köldu vatni út í sjóinn sunnan við Grænland, en vísinda- menn hafa tekið eft- ir miklu magni af fersku vatni í Norður-Atlants- hafi. Þetta kalda vatn veiki síðan Golfstraum- inn sem tryggir þægilegt loftslag hér á landi með því að flytja heitari sjó frá Suðurhöfum norður á bóginn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.