Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Page 31
Brot af því besta 03. águst 2018 KYNNINGARBLAÐ
Bátsferðir um Vestmannaeyjar eru draumkennd og einstök upplifun sem blaðamaður DV
getur vitnað um eftir að hafa farið
í eina slíka siglingu fyrir nokkrum
árum. Fjölskyldufyrirtækið Viking
Tours hefur boðið upp á þessar
ógleymanlegu ferðir í 18 ár en um
tvenns konar ferðir er að ræða,
annars vegar 90 mínútna hringferð
um eyjarnar og hins var þriggja og
hálfs klukkustundar Surtseyjarferð.
„Vestmannaeyjar eru mjög sér-
stakur staður í samanburði við Ís-
land almennt og hér er landslag allt
öðruvísi. Það hefur komið á daginn
að fólk sem fer í þessar ferðir einu
sinni, það kemur aftur,“ segir Sigur-
mundur G. Einarsson, eigandi Viking
Tours.
Hringferðin umhverfis Heimaey
er farin tvisvar á dag en Surtseyj-
arferðin einu sinni á dag. „Í hring-
ferðinni erum við að fara inn í hella
og að fuglabjörgunum. Ég spila
alltaf á saxófón inni í hellunum, það
er okkar sérstaða sem enginn annar
er með. Hljómurinn inni í hellunum
er á sömu tíðni og mannsrödd og
er einstaklega fallegur,“ segir Sigur-
mundur.
Hringferðin umhverfis Heimaey
hefst í höfninni sem hraunrennslið
var nærri því búið að loka í eldgos-
inu á Heimaey 1973. Í bátsferðinni
má sjá litríka hella sem öldurn-
ar hafa myndað í gegnum tíðina,
yngstu eyjuna Surtsey, ásamt hinum
eyjum Vestmannaeyjaklasans og hin
fjölmörgu fuglabjörg. Þar er hægt
að sjá fjölbreyttar fuglategundir og
ef heppnin er með – hvali. Síðasta
viðkoma í ferðinni er í Klettshelli sem
er þekktur fyrir frábæran hljómburð
og þar blæs Sigurmundur gjarnan í
saxófóninn. Ferðin endar svo aftur
þar sem hún byrjaði.
Surtseyjarferð hefst og endar
á Heimaey. Surtsey er yngsta eyja
Vestmannaeyjaklasans, en hún reis
úr sjó í eldgosi 1963 sem stóð í fjög-
ur ár. Á leið til og frá Surtsey er siglt
framhjá 12 eyjum klasans sem allar
eru heimili fjölmargra fjölbreyttra
fuglategunda. Ekki er óalgengt að
hvalir sjáist í þessari ferð, m.a. há-
hyrningar sem oft halda til á þess-
um slóðum. Hápunktur ferðarinnar
er að sjálfsögðu Surtsey, en ekki
er leyfilegt að fara í land, þar sem
einungis vísindamenn hafa heimild
til þess.
Sem nærri má geta eru þessar
einstöku bátsferðir afar vinsælar
jafnt meðal Íslendinga sem erlendra
ferðamanna:
„Meðal þeirra sem koma er fólk
sem áður hefur farið í siglingu þegar
það kom á Pæjumótið og Shellmótið
með krakkana sína. Núna þegar
börnin eru orðin eldri koma for-
eldrarnir með þau í eyjasiglingu svo
þau geti upplifað þetta líka,“ segir
Sigurmundur.
Miðar í ferðirnar eru seldir á
vefsíðu Viking Tours, vikingtours.
is. Einnig er hægt að kaupa miða á
skrifstofu fyrirtækisins að Strand-
vegi 65, Vestmannaeyjum.
Nánari upplýsingar um ferðirnar
er að finna á vikingtours.is.
Einstök upplifun í bátsferðum
um eyjarnar
Inni í helli
Sigurmundur blæs í saxófóninn