Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Page 32
Bort af því besta 03. águst 2018KYNNINGARBLAÐ
Litla trésmiðjan, líkkistuvinnu-stofa og trésmiðja var stofnuð á Akureyri í janúar árið 2010.
Flestar kisturnar eru seldar í gegnum
Útfararstofu Kirkjugarða Akureyr-
ar, en einnig selur Litla trésmiðjan
út fyrir Akureyri. Fólk kemur til Litlu
trésmiðjunnar til að skoða og seg-
ir eigandi hennar það alltaf góða
tilfinningu.
„Ég er aðallega að smíða líkkistur,“
segir Sigurður Óli Þórisson, trésmið-
ur og eigandi Litlu trésmiðjunnar.
„Einnig smíða ég glugga og opnan-
leg fög í eldra húsnæði og stundum
hurðir. Svo eru húsgagnaviðgerðir
hluti af starfseminni, bæði á nýjum
og svo eldri húsgögnum.“
Sigurður Óli flutti 17 ára til Ak-
ureyrar, lærði húsasmíði og fékk
meistararéttindi og hefur unnið við
trésmíðar meira og minna allt sitt
líf, eins og hann segir sjálfur. Eftir
hrun hannaði hann, ásamt Sæmundi
Friðfinnssyni, líkkistuna sem fyrst var
framleidd hjá Tréborg á Akureyri. Árið
2010 ákvað Sigurður Óli að halda
einn áfram með líkkistusmíðina og
hefur hann starfað við það síðan.
Umræðan um andlát orðin opnari
frá því sem áður var
„Það er opnari umræða í dag, andlát
og útfarir voru lítið rædd á almanna-
færi áður fyrr. Nú er fólk opnara fyrir
þessum hlutum. Það er betra að
það sé þannig. Eftir fæðingu verður
dauðinn ekki umflúinn. Hins vegar
eru endalokin ekki alltaf tímabær því
miður.“
Íslensk hönnun smíðuð af kostgæfni
Líkkisturnar eru aðallega smíðaðar úr
MDF-plötum og sprautaðar hvítar. „Í
gamla daga voru líkkisturnar svart-
ar, þá voru þær bikaðar. Síðan urðu
þær hvítar, en ég hef einnig spraut-
að þær í lit eftir óskum hverju sinni.
Við hönnun fórum við aftur í tímann
með formið og fólki finnst vel hafa til
tekist. Maður er ánægður og stoltur,“
segir Sigurður Óli. „Maður er einn að
vinna við smíðina, þannig að hún er
íslenskt handverk og hönnun, ekki
verksmiðjuframleiðsla. Ég vinn hverja
kistu alveg frá upphafi til enda, ég
smíða krossa, alla fylgihluti og bólstra
kistuna. Gæðaeftirlitið er þannig, að
þegar ég er orðinn ánægður með
handverkið má afhenda kistuna. Ein
kista er gott dagsverk. Stærri kistur
eru meiri vinna og því aðeins dýrari.
Samt stenst Litla trésmiðjan allan
verðsamanburð. Innflutningur er
stærsti keppinauturinn.“
Litla trésmiðjan er að Austursíðu
2, Akureyri. Síminn er 898-7686 og
heimasíðan er kistur.is.
LITLA TRÉSMIÐJAN:
„Hverri kistu fylgir ákveðin
tilfinning“