Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Qupperneq 32
Bort af því besta 03. águst 2018KYNNINGARBLAÐ Litla trésmiðjan, líkkistuvinnu-stofa og trésmiðja var stofnuð á Akureyri í janúar árið 2010. Flestar kisturnar eru seldar í gegnum Útfararstofu Kirkjugarða Akureyr- ar, en einnig selur Litla trésmiðjan út fyrir Akureyri. Fólk kemur til Litlu trésmiðjunnar til að skoða og seg- ir eigandi hennar það alltaf góða tilfinningu. „Ég er aðallega að smíða líkkistur,“ segir Sigurður Óli Þórisson, trésmið- ur og eigandi Litlu trésmiðjunnar. „Einnig smíða ég glugga og opnan- leg fög í eldra húsnæði og stundum hurðir. Svo eru húsgagnaviðgerðir hluti af starfseminni, bæði á nýjum og svo eldri húsgögnum.“ Sigurður Óli flutti 17 ára til Ak- ureyrar, lærði húsasmíði og fékk meistararéttindi og hefur unnið við trésmíðar meira og minna allt sitt líf, eins og hann segir sjálfur. Eftir hrun hannaði hann, ásamt Sæmundi Friðfinnssyni, líkkistuna sem fyrst var framleidd hjá Tréborg á Akureyri. Árið 2010 ákvað Sigurður Óli að halda einn áfram með líkkistusmíðina og hefur hann starfað við það síðan. Umræðan um andlát orðin opnari frá því sem áður var „Það er opnari umræða í dag, andlát og útfarir voru lítið rædd á almanna- færi áður fyrr. Nú er fólk opnara fyrir þessum hlutum. Það er betra að það sé þannig. Eftir fæðingu verður dauðinn ekki umflúinn. Hins vegar eru endalokin ekki alltaf tímabær því miður.“ Íslensk hönnun smíðuð af kostgæfni Líkkisturnar eru aðallega smíðaðar úr MDF-plötum og sprautaðar hvítar. „Í gamla daga voru líkkisturnar svart- ar, þá voru þær bikaðar. Síðan urðu þær hvítar, en ég hef einnig spraut- að þær í lit eftir óskum hverju sinni. Við hönnun fórum við aftur í tímann með formið og fólki finnst vel hafa til tekist. Maður er ánægður og stoltur,“ segir Sigurður Óli. „Maður er einn að vinna við smíðina, þannig að hún er íslenskt handverk og hönnun, ekki verksmiðjuframleiðsla. Ég vinn hverja kistu alveg frá upphafi til enda, ég smíða krossa, alla fylgihluti og bólstra kistuna. Gæðaeftirlitið er þannig, að þegar ég er orðinn ánægður með handverkið má afhenda kistuna. Ein kista er gott dagsverk. Stærri kistur eru meiri vinna og því aðeins dýrari. Samt stenst Litla trésmiðjan allan verðsamanburð. Innflutningur er stærsti keppinauturinn.“ Litla trésmiðjan er að Austursíðu 2, Akureyri. Síminn er 898-7686 og heimasíðan er kistur.is. LITLA TRÉSMIÐJAN: „Hverri kistu fylgir ákveðin tilfinning“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.