Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Page 40
40 03. águst 2018 Tímavélin K lukkan 16 þann 14. maí 1948 tók David Ben-Gurion, forseti þjóðráðs gyðinga í Palestínu, til máls í litlu listasafni við Rothschild Boulevard í Tel Aviv. Hann las upp yfirlýsingu um stofnun og sjálfstæði Ísraels- ríkis. Það tók hann 20 mínútur að lesa yfirlýsinguna en 200 manns voru viðstaddir en auk þess var henni útvarpað á nýrri útvarps- stöð „Voice of Israel“ sem sendi út frá Tel Aviv. Um klukkan 16.30 sagði hann: „Ísraelsríki hefur verið stofn- að. Fundi er slitið.“ Í dagbók sína skrifaði hann að hann hefði fengið fyrirboða. Með yfirlýsingunni rættust tæp- lega 2.000 ára gamlir draumar gyðinga um að þeir gætu dag einn snúið aftur til landsins sem Róm- verjar ráku þá frá. Helför nasista gegn gyðingum í síðari heimsstyrj- öldinni varð til að styrkja gyðinga í þessum fyrirætlunum sínum. Degi eftir yfirlýsingu Ben-Gurion drógu Bretar sig frá Palestínu en þeir höfðu farið með yfirráð yfir landsvæðinu síðan í fyrri heims- styrjöldinni. Arabaríkin brugðust ókvæða við stofnun Ísraelsríkis og og sýrlenskar, egypskar, jórdanskar og írakskar hersveitir réðust á hið nýstofnaða ríki og hófst þá stríð Araba og Ísraela. Arabarnir voru staðráðnir í að gera út af við land- nám og byggðir gyðinga í Palestínu. Sameinuðu þjóðirnar reyndu að miðla málum en án árangurs. Þrátt fyrir að vera með miklu minna her- lið náðu Ísraelsmenn að hrinda árásinni og tryggja stofnun rík- is gyðinga. Arabaríkin neyddust til að semja um vopnahlé við Ísrael 1949. Ísraelski herinn var vel búinn vopnum sem höfðu komið frá Tékkóslóvakíu og Frakklandi og átti það auðvitað sinn þátt í að hann gat tekist á við herlið Arabaríkjanna. Á hebresku er þetta stríð nefnt Sjálf- stæðisstríðið en á arabísku er það nefnt Hörmungarnar. Samkvæmt bresku Balfour-yfir- lýsingunni frá 1917 þá átti að stofna þjóðríki gyðinga í Palestínu en um leið átti að vernda „almenn og trúarleg“ réttindi þeirra sem ekki voru gyðingar í Palestínu. Bretum tókst ekki að koma á sáttum á milli hinna ólíku hópa í landinu áður en þeir yfirgáfu það. Aðeins 11 mínútum eftir að stofnun Ísraelsríkis var lýst yfir lýsti Truman, forseti Bandaríkjanna, því yfir að Bandaríkin viðurkenndu tilvist Ísraels og voru Bandaríkin fyrsta ríki heims til að viðurkenna stofnun ríkisins. Stríðið á Sínai 1956 Gyðingar streymdu í þúsundatali til Ísraels í kjölfar stofnunar ríkis- ins en þrátt fyrir mikla fólksfjölg- un stóð ríkið frammi fyrir utanað- komandi ógnum. Árið 1956 ákváðu Ísraelsmenn að ráðast á palest- ínska skæruliða sem stunduðu skæruhernað frá Egyptalandi og reyna að aflétta hafnbanni Egypta á hafnarborgina Eilat. Leynilegur samningur var gerður við Frakka og Breta sem hugðust ráðast inn í Egyptaland til að ná stjórn á Súes- skurðinum. Ísraelsher átti að ráðast inn í Sínaieyðimörkina og í kjölfar- ið ætluðu Frakkar og Bretar að ráð- ast inn í Egyptaland undir því yfir- skyni að þeir væru að taka sér stöðu á milli Ísraels og Egyptalands. Inn- rás Ísraelshers gekk vel en Frakkar og Bretar neyddust til að draga sig til baka vegna þrýstings frá Banda- ríkjunum og Sovétríkjunum. Í kjöl- farið urðu Ísraelsmenn að draga sig til baka. En stríðið sýndi umheim- inum hversu öflugur ísraelski her- inn var og að Ísrael væri reiðu búið til að ráðast á önnur ríki að fyrra bragði til að verjast. Sex daga stríðið 1967 Eftir átökin á Sínai var ísraelski herinn markvisst byggður upp og efldur. Þegar Nasser Egyptalands- forseti bað Sameinuðu þjóðirnar um að kalla eftirlitssveitir sínar frá Sínai og sendi egypskar hersveit- ir þangað, setti hafnbann á Eilat á nýjan leik og hvatti Arabaríkin til aðgerða gegn Ísrael töldu Ísraels- menn það jafngilda stríðsyfirlýs- ingu. Þeir gerðu harðar loftárásir á Egyptaland og Sýrland í júní og réðust síðan á Jórdaníu. Stríðinu lauk á aðeins sex dögum þar sem Ísraelsher var miklu öflugri en her- ir hinna ríkjanna þriggja. Að stríð- inu loknu hafði Ísraelsher náð Sínai á sitt vald auk Gasa, Vesturbakkans, Gólanhæða og Jerúsalem. Hafði landsvæði Ísraels þá tvöfaldast. En þetta leiddi ekki til lausnar á deil- um Ísraels við nágrannaríkin og Palestínumenn. Í ályktun öryggis- ráðs SÞ númer 242 er hvatt til brott- hvarfs Ísraelsmanna frá „svæðum sem voru hernuminn í nýlegum átökum“ og til þess að öll ríki á svæðinu „lifi í friði innan öruggra og viðurkenndra landamæra“. Ísraelsmenn höfnuðu því að láta öll hernumdu svæðin af hendi og innlimuðu Austur-Jerúsalem og settu upp herstjórnir á herteknu svæðunum. Ísraelsmenn sögðust mundu skila skila Gasa, Vestur- bakkanum, Gólanhæðum og Sínai ef Arabaríkin viðurkenndu tilveru- rétt Ísraels og ábyrgðust að ekki yrði ráðist á Ísrael í framtíðinni. Leiðtogar Arabaríkjanna, særðir eftir ósigrana fyrir Ísrael, hittust í ágúst til að ræða framtíð Miðaust- urlanda. Þeir samþykktu að fall- ast ekki á frið við Ísrael, að semja ekki við Ísrael, að viðurkenna ekki tilverurétt Ísraels og gerðu áætlun um að verja réttindi Palestínuaraba á herteknu svæðunum ötullega. Friðarsamkomulag við Egypta Síðar klufu Egyptar sig út úr þessu samkomulagi og sömdu um frið við Ísrael en fyrst kom til átaka á milli ríkjanna í október 1973. Egyptar gerðu þá óvænta árás yfir Súesskurðinn á Yom Kipp- ur, á heilagasta degi gyðinga, en ísraelski herinn var þá með óvenju- lega lítinn viðbúnað og var kom- ið illilega á óvart. Egyptar náðu að komast yfir skurðinn en lutu í lægra haldi þegar Ísraelsmenn komust vestur yfir skurðinn. Þá samþykktu Egyptar vopnahlé. Á meðan réðust Ísraelsmenn á Sýrlendinga í Gólan- hæðum en Sýrlendingar höfðu náð þeim aftur á sitt vald. Sýrlenski her- inn var hrakinn á flótta og sókn Ísraelshers lauk ekki fyrr en hann átti skammt eftir til Damaskus. Eftir þetta var friðarhugur í Egyptum og Ísraelsmönnum og dramatísk heimsókn Anwar Sadat, forseta Egyptalands, til Jerúsalem 1977 opnaði fyrir friðarsamning á milli ríkjanna. Eftir friðarviðræður milli Sadat og Menachem Begin, forsætisráðherra Ísraels, samdist að lokum um frið 1978 og friðar- sáttmáli var gerður 1979. Ísraels- menn féllust á að skila Sínai aftur til Egyptalands og Egyptaland féllst á að viðurkenna Ísraelsríki. Sam- band ríkjanna hefur ekki alltaf ver- ið dans á rósum eftir þetta en frið- arsamningurinn hefur haldið fram að þessu en hann breytti ekki miklu fyrir Palestínumenn og hefur staða þeirra farið versnandi undanfarna áratugi og hið flókna ástand í Ísrael og nærliggjandi landsvæðum hef- ur ekki orðið einfaldara með tím- anum eða þjáningar fólks minni. n Gamla auglýsingin Vísir 11. janúar 1936 Jakson sófi frá Dawood Verð: 44.030 Verð áður: 62.900 Rúm, borð, stólar sængur, koddar, sófar, gjafavara ofl. Síðumúla 30 - Reykjavík Hofsbót 4 - Akureyri 20-70% AFSLÁTTUR ÚTSALA Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is 14. maí 1948 n Stríðin sem fylgdu í kjölfarið DAGURINN SEM GJÖRBREYTTI MIÐAUSTURLÖNDUM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.