Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Blaðsíða 40
40 03. águst 2018
Tímavélin
K
lukkan 16 þann 14. maí
1948 tók David Ben-Gurion,
forseti þjóðráðs gyðinga
í Palestínu, til máls í litlu
listasafni við Rothschild Boulevard
í Tel Aviv. Hann las upp yfirlýsingu
um stofnun og sjálfstæði Ísraels-
ríkis. Það tók hann 20 mínútur að
lesa yfirlýsinguna en 200 manns
voru viðstaddir en auk þess var
henni útvarpað á nýrri útvarps-
stöð „Voice of Israel“ sem sendi út
frá Tel Aviv. Um klukkan 16.30 sagði
hann: „Ísraelsríki hefur verið stofn-
að. Fundi er slitið.“ Í dagbók sína
skrifaði hann að hann hefði fengið
fyrirboða.
Með yfirlýsingunni rættust tæp-
lega 2.000 ára gamlir draumar
gyðinga um að þeir gætu dag einn
snúið aftur til landsins sem Róm-
verjar ráku þá frá. Helför nasista
gegn gyðingum í síðari heimsstyrj-
öldinni varð til að styrkja gyðinga
í þessum fyrirætlunum sínum.
Degi eftir yfirlýsingu Ben-Gurion
drógu Bretar sig frá Palestínu en
þeir höfðu farið með yfirráð yfir
landsvæðinu síðan í fyrri heims-
styrjöldinni. Arabaríkin brugðust
ókvæða við stofnun Ísraelsríkis og
og sýrlenskar, egypskar, jórdanskar
og írakskar hersveitir réðust á hið
nýstofnaða ríki og hófst þá stríð
Araba og Ísraela. Arabarnir voru
staðráðnir í að gera út af við land-
nám og byggðir gyðinga í Palestínu.
Sameinuðu þjóðirnar reyndu að
miðla málum en án árangurs. Þrátt
fyrir að vera með miklu minna her-
lið náðu Ísraelsmenn að hrinda
árásinni og tryggja stofnun rík-
is gyðinga. Arabaríkin neyddust til
að semja um vopnahlé við Ísrael
1949. Ísraelski herinn var vel búinn
vopnum sem höfðu komið frá
Tékkóslóvakíu og Frakklandi og átti
það auðvitað sinn þátt í að hann gat
tekist á við herlið Arabaríkjanna. Á
hebresku er þetta stríð nefnt Sjálf-
stæðisstríðið en á arabísku er það
nefnt Hörmungarnar.
Samkvæmt bresku Balfour-yfir-
lýsingunni frá 1917 þá átti að stofna
þjóðríki gyðinga í Palestínu en um
leið átti að vernda „almenn og
trúarleg“ réttindi þeirra sem ekki
voru gyðingar í Palestínu. Bretum
tókst ekki að koma á sáttum á milli
hinna ólíku hópa í landinu áður en
þeir yfirgáfu það.
Aðeins 11 mínútum eftir að
stofnun Ísraelsríkis var lýst yfir lýsti
Truman, forseti Bandaríkjanna, því
yfir að Bandaríkin viðurkenndu
tilvist Ísraels og voru Bandaríkin
fyrsta ríki heims til að viðurkenna
stofnun ríkisins.
Stríðið á Sínai 1956
Gyðingar streymdu í þúsundatali
til Ísraels í kjölfar stofnunar ríkis-
ins en þrátt fyrir mikla fólksfjölg-
un stóð ríkið frammi fyrir utanað-
komandi ógnum. Árið 1956 ákváðu
Ísraelsmenn að ráðast á palest-
ínska skæruliða sem stunduðu
skæruhernað frá Egyptalandi og
reyna að aflétta hafnbanni Egypta
á hafnarborgina Eilat. Leynilegur
samningur var gerður við Frakka
og Breta sem hugðust ráðast inn í
Egyptaland til að ná stjórn á Súes-
skurðinum. Ísraelsher átti að ráðast
inn í Sínaieyðimörkina og í kjölfar-
ið ætluðu Frakkar og Bretar að ráð-
ast inn í Egyptaland undir því yfir-
skyni að þeir væru að taka sér stöðu
á milli Ísraels og Egyptalands. Inn-
rás Ísraelshers gekk vel en Frakkar
og Bretar neyddust til að draga sig
til baka vegna þrýstings frá Banda-
ríkjunum og Sovétríkjunum. Í kjöl-
farið urðu Ísraelsmenn að draga sig
til baka. En stríðið sýndi umheim-
inum hversu öflugur ísraelski her-
inn var og að Ísrael væri reiðu búið
til að ráðast á önnur ríki að fyrra
bragði til að verjast.
Sex daga stríðið 1967
Eftir átökin á Sínai var ísraelski
herinn markvisst byggður upp og
efldur. Þegar Nasser Egyptalands-
forseti bað Sameinuðu þjóðirnar
um að kalla eftirlitssveitir sínar frá
Sínai og sendi egypskar hersveit-
ir þangað, setti hafnbann á Eilat á
nýjan leik og hvatti Arabaríkin til
aðgerða gegn Ísrael töldu Ísraels-
menn það jafngilda stríðsyfirlýs-
ingu. Þeir gerðu harðar loftárásir
á Egyptaland og Sýrland í júní og
réðust síðan á Jórdaníu. Stríðinu
lauk á aðeins sex dögum þar sem
Ísraelsher var miklu öflugri en her-
ir hinna ríkjanna þriggja. Að stríð-
inu loknu hafði Ísraelsher náð Sínai
á sitt vald auk Gasa, Vesturbakkans,
Gólanhæða og Jerúsalem. Hafði
landsvæði Ísraels þá tvöfaldast. En
þetta leiddi ekki til lausnar á deil-
um Ísraels við nágrannaríkin og
Palestínumenn. Í ályktun öryggis-
ráðs SÞ númer 242 er hvatt til brott-
hvarfs Ísraelsmanna frá „svæðum
sem voru hernuminn í nýlegum
átökum“ og til þess að öll ríki á
svæðinu „lifi í friði innan öruggra
og viðurkenndra landamæra“.
Ísraelsmenn höfnuðu því að láta
öll hernumdu svæðin af hendi og
innlimuðu Austur-Jerúsalem og
settu upp herstjórnir á herteknu
svæðunum. Ísraelsmenn sögðust
mundu skila skila Gasa, Vestur-
bakkanum, Gólanhæðum og Sínai
ef Arabaríkin viðurkenndu tilveru-
rétt Ísraels og ábyrgðust að ekki
yrði ráðist á Ísrael í framtíðinni.
Leiðtogar Arabaríkjanna, særðir
eftir ósigrana fyrir Ísrael, hittust í
ágúst til að ræða framtíð Miðaust-
urlanda. Þeir samþykktu að fall-
ast ekki á frið við Ísrael, að semja
ekki við Ísrael, að viðurkenna ekki
tilverurétt Ísraels og gerðu áætlun
um að verja réttindi Palestínuaraba
á herteknu svæðunum ötullega.
Friðarsamkomulag við Egypta
Síðar klufu Egyptar sig út úr þessu
samkomulagi og sömdu um frið
við Ísrael en fyrst kom til átaka
á milli ríkjanna í október 1973.
Egyptar gerðu þá óvænta árás
yfir Súesskurðinn á Yom Kipp-
ur, á heilagasta degi gyðinga, en
ísraelski herinn var þá með óvenju-
lega lítinn viðbúnað og var kom-
ið illilega á óvart. Egyptar náðu að
komast yfir skurðinn en lutu í lægra
haldi þegar Ísraelsmenn komust
vestur yfir skurðinn. Þá samþykktu
Egyptar vopnahlé. Á meðan réðust
Ísraelsmenn á Sýrlendinga í Gólan-
hæðum en Sýrlendingar höfðu náð
þeim aftur á sitt vald. Sýrlenski her-
inn var hrakinn á flótta og sókn
Ísraelshers lauk ekki fyrr en hann
átti skammt eftir til Damaskus.
Eftir þetta var friðarhugur í
Egyptum og Ísraelsmönnum og
dramatísk heimsókn Anwar Sadat,
forseta Egyptalands, til Jerúsalem
1977 opnaði fyrir friðarsamning á
milli ríkjanna. Eftir friðarviðræður
milli Sadat og Menachem Begin,
forsætisráðherra Ísraels, samdist
að lokum um frið 1978 og friðar-
sáttmáli var gerður 1979. Ísraels-
menn féllust á að skila Sínai aftur
til Egyptalands og Egyptaland féllst
á að viðurkenna Ísraelsríki. Sam-
band ríkjanna hefur ekki alltaf ver-
ið dans á rósum eftir þetta en frið-
arsamningurinn hefur haldið fram
að þessu en hann breytti ekki miklu
fyrir Palestínumenn og hefur staða
þeirra farið versnandi undanfarna
áratugi og hið flókna ástand í Ísrael
og nærliggjandi landsvæðum hef-
ur ekki orðið einfaldara með tím-
anum eða þjáningar fólks minni. n
Gamla
auglýsingin
Vísir 11. janúar 1936
Jakson sófi frá Dawood
Verð: 44.030
Verð áður: 62.900
Rúm, borð, stólar
sængur, koddar,
sófar, gjafavara ofl.
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
20-70%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is 14. maí 1948
n Stríðin sem fylgdu í kjölfarið
DAGURINN SEM GJÖRBREYTTI
MIÐAUSTURLÖNDUM