Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2018, Qupperneq 44
44 FÓLK - VIÐTAL 3. ágúst 2018 Verslunarmannahelgin n Þekktir einstaklingar rifja upp eftirminnilegustu verslunarmannahelgina n Minningar og fastar hefðir Stærsta helgi sumarsins blasir nú við og eru möguleikarnir jafnmargir og útihátíðirnar eru fjöl- breyttar. Um verslunarmannahelgina er sjaldan upplagt að gera ekki neitt, hvort sem þá sé um að ræða með vinafólki eða fjölskyldufólkinu. Hér tökum við saman heildarmynd af ýmsum skemmtunum yfir helgina miklu og fáum nokkrar frásagnir þekktra einstaklinga af því hvaða minning frá fyrstu helgi ágústmánaðar hefur staðið upp úr, hvar og hvenær. ALLT FYRIR FUNDARHERBERGIÐ Þráðlaust sýningartjald Þráðlaus búnaður Hágæða öruggur fjarfundabúnaður DALVEGI 16B / S. 510 0500 Auður Jónsdóttir (Húnaver 1990): „Þegar ég var sautján ára fékk ég að fara með Röggu Gísla í Húnaver sem barnapía Bryndísar dóttur hennar. Ragga var að fara að troða upp með Stuðmönnum og fyllti gamlan amerískan kagga af hárkollum og búningum. Svo var lagt í hann! Sólin skein og spenn- ingurinn í hámarkinu. En þegar við vorum að renna niður brekkuna fyrir ofan hátíðina sagði Ragga sinni rámu ómótstæðilegu röddu: Ímyndaðu þér ef það myndi allt í einu birtast risastór rass, setjast hér ofan í dalinn og fylla út í allt! Síðan hef ég alltaf séð rassinn fyrir mér á þessari leið. En þegar við komum í Húnaver var barnapían fljót að finna vini sína og detta í það – en nokkuð betur búin en þeir með baksviðspassa sem Ragga hafði reddað. Svo baksviðs gat barnapían gengið í fríar veigar og verið dónaleg við sér eldra fólk. Það litla sem ég man úr móðu þessa kvöld var þegar ég hafði klöngrast inn á svið hjá Stuðmönnum í miðri sveiflu og stóð þar fyrir aftan hljómsveitina og baðaði mig í dýrðarljómanum, æpandi skaranum og flóðlýstu sviðinu. Þetta er það næsta sem ég hef komist því að upplifa alsælu frægðarinnar. En hvað varð um Bryndísi litlu í öllu þessu man ég ekki alveg jafn glöggt. Sennilega hefur einhver fullorðinn tekið málin í sínar hendur fyrst barnapían var svona sólgin í áfengi og frægð.“ Elliði Vignisson (Þjóðhátíð í Eyjum 1998): „Þegar maður hefur nýtt veslunarmanna- helgina í 40 til 50 skipti í að vera á Þjóðhátíð þá er dáldið erfitt að velja þá eftirminnilegustu. Sennilega er þjóðhá- tíðin 1998 ein sú eftriminnilegri en það er fyrsta hátíðin eftir að ég varð faðir. Ég var einhvern veginn undir það búinn að þá myndi djammið minnka en það sem gerðist var að hátíðin var bara helmingi skemmtilegri þegar maður fór að njóta einnig barna- og fjölskyldustemmingar í gegnum barnið. Djammið minnkaði ekkert, hitt bættist bara við.“ Innipúkinn Hvar: Miðbær Reykjavíkur Aðaltónleikadagskráin fer að sjálfsögðu fram innandyra, að þessu sinni í Kvosinni á tón- leikastöðunum Húrra og Gaukn- um. Þar verður boðið verður upp á fjölbreytta tónleikadagskrá föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. Mýrarboltinn Hvar: Bolungarvík Mýrarboltinn á Bolungarvík var fyrst haldinn árið 2004 og hefur verið árlegur viðburður þar í bæ síðastliðin ár. Á laugardagskvöldið er árlegur dansleikur í félagsheimilinu í Trékyllisvík sem Leifur heppni og björg- unarsveitin Strandasól halda. Líkt og fyrri ár leika Blek og byttur fyrir dansi, en árvissir dansleikir sveitarinnar í Trékyllisvík eru róm- aðir af fagurkerum í dansleikjafræðum. Norðanpaunk Hvar: Laugarbakka Vestur-Húna- vatnssýslu Hátíðin Norðanpaunk er haldin í fimmta sinn þetta árið og koma þar ýmsar hljómsveitir saman til að spila frumsamið efni af öllum gerðum. Sumar sveitanna spila synthapopp meðan aðrar leika svartmálm en pönkið má alltaf finna í anarkískum áherslum í skipulagi. Sæludagar KFUK og KFUM Hvar: Vatnaskógur Skógarmenn KFUM ásamt KFUM og KFUK á Íslandi standa fyrir þessari vímulausu fjöl- skylduhátíð. Ár hvert er dagskrá hátíðarinnar í anda sumarbúðastarfs félaganna og höfðar til flestra aldurshópa. Tómas Valgeirsson tomas@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.