Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Blaðsíða 10
10 20. júlí 2018FRÉTTIR A nna Margrét Baldursdóttir var 16 ára gömul þegar hún fékk svokallað eiturlost af völdum bakteríusýkingar (e. toxic shock syndrome). Þó að um sjaldgæfa sýk­ ingu sé að ræða þá er frá­ sögn Önnu alls ekki eins­ dæmi en á dögunum birtist á vef DV.is saga 16 ára kanadískrar stúlku, Söru Manitoski. Sara var í skólaferðalagi í mars 2017 þegar hún fór að finna fyrir kviðverkjum. Hún lagðist til svefns og vaknaði aldrei aft­ ur. Við krufningu kom í ljós að um TSS var að ræða. Árið 2016 var tvítug ensk stúlka nær dauða en lífi eftir að hafa fengið TSS. Sýkingin fór að grassera í leggöngum stúlk­ unnar, Emily Pankhurst, eftir að hún gleymdi að skipta um túrtappa í níu daga. Þekkt er að langtímanotkun á túrtöppum valdi sýkingunni en í tilfelli Önnu Margrétar var þetta þveröfugt: hún skipti of ört um túrtappa með þeim af­ leiðingum að það myndaðist þurrkur í leggöngunum, sem olli síðan umræddri sýkingu. Skalf og táraðist Anna Margrét bjó á þessum tíma á Ólafsfirði. „Þetta var í janúar árið 2008, þegar ég var í 10. bekk. Ég var búin að vera á blæðingum í frekar langan tíma, eða rúmlega mánuð. Mér leið eitthvað skringilega um morgun­ inn og hélt að ég væri að verða eitthvað lasin en dreif mig samt í skólann. Þegar fyrsti tíminn var hálfnaður byrjaði ég að tárast og skjálfa og réð ekkert við mig. Sat bara skælandi og nötraði öll og vissi ekkert hvað var í gangi.“ Anna Mar­ grét var í kjöl­ farið send á heilsugæslu þar sem engar útskýr­ ingar feng­ ust á ástandi hennar. Var þá ákveðið að senda hana á sjúkrahús­ ið á Akureyri þar sem hún gekkst undir fjölmargar rannsóknir og var ákveðið að setja hana í einangrun í varúðarskyni. Það reyndist henni til happs að vakt­ hafandi læknir á sjúkrahúsinu hafði áður meðhöndlað sjúkling með TSS og þekkti því einkennin. Á sama tíma var Anna Margrét ná­ lægt því að fá blóðþrýstingsfall og var hluti líkama hennar orðinn al­ hvítur. „Það var farið með mig beint upp á gjörgæsludeild og ég skol­ uð að innan og settur upp leggur í stóru æðina í hálsinum. Ég var á gjörgæslu í fimm sólarhringa.“ Á einum tímapunkti leit út fyrir að Anna Margrét færi í öndunar­ bilun og öll líffærin hættu að starfa. Tappa þurfti af öðru lunganu því það féll saman. Eftir fimm daga á gjörgæslu tóku við aðrir fimm dagar á barnadeild sjúkrahússins, enda var Anna Margrét ekki orðin 18 ára á þessum tíma. Eftir það tók við löng endurhæfing. „Ég þurfti bókstaflega að læra að ganga upp á nýtt með hjálp göngugrindar. Ég var með rosa­ legan bjúg, eiginlega eins og tröllskessa, og ég man að naflinn var eins og strik á maganum. Þar að auki missti ég allt þol. Ef ég fór út í vind átti ég erfitt með að anda,“ segir Anna Margrét en fyrir veik­ indin hafði hún æft gönguskíði og bjó þess vegna að því að vera með gott þol. Það var henni til happs, að sögn læknis á spítalanum. Enn í dag glímir hún við eftirköst sýkingarinnar, til dæmis veikt ónæmiskerfi, og þá er talið að vefjagigt sem hún glímir við sé að einhverju leyti tilkomin vegna þessa. „Ég vil bara að stelpur og konur séu meðvitaðar um að þetta geti gerst og að þetta geti verið lífs­ hættulegt. Það eru því miður ekki allir sem vita það. Ég er heppin að vera á lífi í dag.“ n Sundaborg 1 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is SÓLARFILMUR! Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki Túrtappi varð Önnu Margréti næstum því að aldurtila n Hætt komin vegna eiturlosts n Á blæðingum í rúmlega mánuð n Lán að læknir þekkti einkennin„Ég er heppin að vera á lífi í dag. Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.