Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Blaðsíða 4
4 20. júlí 2018FRÉTTIR
H
allgrímur Birkisson er
þekktur hestamaður. Hann
hefur um árabil verið einn
öflugasti sölumaður hrossa
á Suðurlandi þar sem hann hef-
ur selt allt frá ungum og efni-
legum hrossum upp í kynbóta-
hross í fremstu röð. Þá hefur
Hallgrímur haft ungar stúlkur
til að aðstoða hann við tamn-
ingar. Nú hefur Hallgrímur
verið ákærður fyrir nauðgun,
og það í annað sinn. Hallgrímur
var 35 ára þegar hann var kærð-
ur, árið 2005, grunaður um að
nauðga 15 ára stúlku. Stúlka um
tvítugt lagði nýverið fram kæru
og sakaði Hallgrím um grófa
nauðgun. Hefur héraðssak-
sóknari ákært Hallgrím. Í sam-
tali við DV kveðst Hall grímur
saklaus af báðum ákærum.
Fyrst ákærður í Bretlandi
Hallgrímur er öllum
hestamönnum kunnur eins og
segir á vef Hestafrétta en hann
hefur stundað hestamennsku
frá barnæsku. Ungur að árum
byggði hann upp hrossaræktarbú,
reiðhöll og tamningastöð. Hann
er með landsdómararéttindi og
þrátt fyrir kæru og svo ákæru hef-
ur hann ekki slegið slöku við og
mætti á síðasta landsmót hesta-
manna. Hallgrímur heldur úti síð-
unni foli.is en hann hefur selt ótal
hross bæði innanlands og utan.
Hefur Hallgrímur verið fastagestur
á síðum blaða og tímarita í tengsl-
um við hestamennskuna. Þá hefur
Hallgrímur vegna starfsins einnig
ferðast út fyrir landsteinana. Það
var þá sem Hallgrímur var fyrst
ákærður fyrir nauðgun. Í frétt DV
árið 2005 sagði:
„Hallgrímur er ákærður fyrir að
nauðga 15 ára breskri stelpu í bæn-
um Hookwood í Bretlandi. Þetta á
að hafa gerst þann 31. maí á þessu
ári. Hallgrímur er giftur maður og
á eitt barn með konu sinni. Hann
býr á Íslandi en er með annan fót-
inn í Hookwood, þar sem nauðg-
unin á að hafa átt sér stað.“
Hallgrími var sleppt gegn
tryggingu. Verjandi Hallgríms var
lögmaður að nafni David For-
syth. Sagði hann að Hallgrímur
viðurkenndi að hafa stundað kyn-
líf með stúlkunni en ekki vitað að
hún væri 15 ára gömul. Einnig hélt
hann fram að stúlkan hefði sam-
þykkt að fara með honum í rúm-
ið. Stúlkan hélt hins vegar fram að
um nauðgun hefði verið að ræða. Í
DV á þessum tíma kom aldrei fram
hvort Hallgrímur hefði hlotið dóm
vegna málsins. Í samtali við DV
öllum þessum árum síðar kveðst
hann hafa verið sýknaður.
Grunaður um hrottalega
nauðgun á Íslandi
Héraðssaksóknari hefur nú ákært
Hallgrím fyrir nauðgun sem á að
hafa átt sér stað í febrúar 2017, en
stúlkan sem málið varðar var starfs-
maður Hallgríms. Er Hallgrími gef-
ið að sök að hafa beitt ungu konuna
ofbeldi og nauðgað henni. Hann er
sakaður um að hafa komið aftan að
stúlkunni, slegið að hana í rassinn
og káfað á kynfærum hennar innan
klæða.
Þá er Hallgrímur sakaður um að
hafa girt niður um hana, hent henni
niður á fjóra fætur, snúið henni á
bakið og svo nauðgað henni. Sam-
kvæmt ákæru reyndi unga konan að
stöðva hann, bæði með að grátbiðja
hann að hætta, með því að segja nei
og berjast gegn meintu ofbeldi Hall-
gríms. Í ákæru kemur fram að kon-
an hafi hlotið marbletti og eymsli á
kynfærum vegna árásarinnar sem
hann er grunaður um að hafa beitt
hana. DV reyndi ítrekað að ná tali
af Hallgrími og þegar loks náðist í
hann var hann tregur til að tjá sig
um málið.
„Ég er saklaus af því, það er al-
veg á tæru.“
Þú varst til umfjöll-
unar í DV fyrir margt löngu út af
öðru máli þar sem þú varst sak-
aður um að nauðga 15 ára stúlku
í Bretlandi? Hvernig fór það mál?
„Ég var algjörlega saklaus af
því máli og sýknaður af þeirri
kæru.“
Aðspurður hvort hann vildi tjá
sig frekar um hið meinta hrotta-
lega ofbeldi sem hann er sakaður
um, sagði Hallgrímur að hann
vildi það „helst ekki.“ Hann ætti
lítil börn og vildi helst fá niður-
stöðu í málið áður en hann tjáði
sig frekar við fjölmiðla.
Héraðsaksóknari telur fram-
burð hinnar ungu konu trúverð-
ugan og gaf eins og áður segir út
ákæru á hendur Hallgrími. Má
búast við að málið verði tekið fyrir
í september. n
Það er
staðreynd að …
Fílar eru einu skepnurnar sem
geta ekki hoppað.
Jarðhnetur eru ekki hnetur, heldur
baunir.
Bragðlaukar fiðrilda eru á fótum þeirra.
Ekta perlur leysast upp þegar þær
eru settar í edik.
Maður þjáist af dentrofóbíu ef manni
er illa við að vera nálægt trjám eða
er dauðhræddur við þau. Gylfaflöt 6 - 8
LOKUM 20. JÚLÍ
HLÖKKUM TIL AÐ TAKA Á MÓTI
YKKUR 14. ÁGÚST AÐ GYLFAFLÖT 6-8
VEGNA FLUTNINGA
LANDSÞEKKTUR HESTA-
MAÐUR ÁKÆRÐUR FYRIR
NAUÐGUN Í ANNAÐ SINN
n Hallgrímur fyrst ákærður í Bretlandi n Öllum hestamönnum kunnur
n Stúlkan ung og starfsmaður hans
„Ég er
saklaus
Hjálmar Friðriksson
Kristjón Kormákur Guðjónsson
hjalmar@dv.is / kristjon@dv.is
Hallgrímur er
landsþekktur
hestamaður sem
hefur stundað
íþróttina frá
barnæsku.
Hallgrímur var á forsíðu DV haustið
2005. Kvaðst hann saklaus en sagðist hafa
stundað kynlíf með stúlkunni en sagðist ek
ki
hafa vitað hversu gömul hún væri.
Hver er
hann
n Hann er fæddur 9.
desember 1984.
n Veturinn 2016 var
hann tilnefndur til
þrennra Edduverð-
launa.
n Haustið 2017 hlaut hann titilinn
Framúrskarandi ungur Íslendingur
fyrir afrek á sviði menntamála.
n Hann elskar risaeðlur.
n Hann á von á sínu fyrsta barni
í ágúst.
SVAR: ÆVAR ÞÓR BENEDIKTSSON