Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Blaðsíða 33
KYNNING A.HANSEN: Gæðastundir í einu elsta húsi Hafnarfjarðar Silbene Dias er frá Brasilíu en hefur búið á Íslandi í 14 ár. Hún hefur starfað ötullega í veitingageiranum hér og var meðal annars yfirkokkur á 1919 Restaurant Radison Blue auk þess að reka um tíma veitingastaðinn Brasilíu við Skólavörðustíg. Enn fremur var Silbene yfirkokkur á Silica Hotel hjá Bláa lóninu. Fyrir nokkrum mánuðum tók Silbene við rekstri veitingastaðarins A. Hansen í Hafnarfirði. Þar er hún að gera áhugaverðar breytingar auk þess að halda í það góða sem staðurinn hefur boðið upp á. „Þetta er yfir 100 ára gamalt hús og mikilvægt að viðhalda upprunalegu útliti þess. En við höfum endurnýjað salernin og breytt barnum á efri hæðinni. Við höfum breytt barnum á efri hæðinni og almennt gert umhverfið huggulegra,“ segir Silbene. Framúrskarandi hlaðborð á aðeins 1.700 krónur A. Hansen er til húsa að Vesturgötu 4 í Hafnarfirði, í hjarta þessa fallega miðbæjar, og húsið fellur afar vel inn í umhverfið. Staðurinn er opnaður kl. 12 virka daga með hádegishlaðborði sem stendur til 14. Hlaðborðið er ríkulegt og fjölbreytt: „Við erum alltaf með fimm kjötrétti og einn fiskrétt. Bjóðum meðal annars upp á lambakótelettur, hrossafillet og nautkjöt. Síðan eru það kartöflur, grænmeti og pastaréttir,“ segir Silbene, en þetta girnilega hlaðborð er á afar vingjarnlegu verði, aðeins 1.700 kr. Steikarkvöld sem ekki gleymast Staðnum er síðan lokað kl. 14 á daginn og hann opnaður aftur kl. 18 og er opið til 22. Hann er jafnframt opinn um helgar á þeim tíma. Mikil fjölbreytni einkennir kvöldverðarseðilinn en segja má að steik sé gegnumgangandi þema. Ein helsta sérstaða staðarins er hinn magnaði kjötréttur Spethús Churrasco sem inniheldur sex tegundir af kjöti: lambafillet, hrossafillet, rifjasteik, kjúkling, svínakjöt og fína pylsu. Kjötið er grillað og kryddað með kryddi sem gefa því sérstaklega gott bragð. Nautasteik, grillaður kjúklingur, hrossasteik, steiktur þorskur og svínarif eru einnig vinsælir réttir á kvöldseðlinum. Verðið er hagstætt á þessum krásum eins og nánar má sjá á matseðlinum á vefsíðunni ahansen.is. Léttari réttir eru líka mjög áhugaverðir, til dæmis heimagerður Hansen-borgari, humarsamloka, grilluð nautasamloka og margt fleira. Að sögn Silbene er gestahópurinn á A. Hansen fjölbreyttur en erlendir ferðamenn sækja staðinn í bland við Íslendinga. Silbene telur þó að heimafólk í Hafnarfirði sé í meirihluta. Sjá nánar á vefsíðunni ahansen.is og Facebook- síðunni A.Hansen.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.