Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Blaðsíða 20
20 MENNING 20. júlí 2018 mikill. Ég vinn því á Íslandi en á Los Angeles-tíma. Þar af leið- andi er iðulega unnið fram á nótt, kannski meira en ég vildi í raun, en ég er virkastur á morgnana, nánast um miðja nótt eða um fimm eða sex leytið,“ segir Atli. Aðspurður hvort vinnuferlið við tónlist að kvikmynd frá grunni feli í sér spennu eða óhug segir Atli að í raun sé ferlið blanda af hvoru tveggja. „Þetta er eins og með öll löng ferðalög. Maður leggur ein- faldlega af stað, reynir að finna leiðina. Þetta snýst afar mikið um að kynnast myndinni og koma sér inn í þann hugarheim sem fylgir henni. Maður lærir smám saman að semja ákveðna tónlist fyrir ákveðnar myndir. Þetta er eins og ókunnug manneskja sem þú þarft að kynnast.“ Atli segir það vera lykilatriði að prófa sig áfram í alls konar stíl- um en viðurkennir að kómedían geti verið erfiðasti geirinn til þess að semja fyrir. „Í kómedíunni er svo fín lína sem þarf að þræða og eru möguleikarnir miklu færri en hjá viðfangsefni sem er dekkra,“ segir Atli. „Í hryllingsmyndum er til dæmis svo mikið hráefni til á meðan gamanmyndir búa yfirleitt yfir bjartari litbrigðum og þá eru færri möguleikar.“ Hvorki Superman né Star Wars Nýlega samdi Atli tónlistina fyrir vísindaskáldsöguna How It Ends, sem Netflix framleiddi og frumsýndi fyrr í mánuðinum. Auk hennar lauk nýlega vinnslu hryllingsmyndarinnar Jacob‘s Ladder, sem er endurgerð sam- nefndrar kvikmyndar frá 1990 og Atli samdi tónlistina fyrir. Segir hann að sú mynd hafi verið sér- staklega mikil áskorun en jafn- framt verkefni sem hann klóraði sér mikið í höfðinu yfir hvernig ætti að nálgast. „Það má segja að ég hafi próf- að að fara eina leið en hætt svo við. Ég fór svolítið nútíma el- ektróníska, „ryþmíska“ leið í byrjun en svo fundum við að það var ekki að virka. Við ákváð- um síðan að feta klassískari leið,“ segir Atli og bætir við að hann hafi passað að slíta allar tengingar við frummyndina. „Ég ákvað að tækla þetta sem nýja mynd. Þetta er líka allt önn- ur mynd og þetta er ekki svipað fyrirbæri eins og að endurgera Star Wars- eða Superman-stefið, eitthvað sem er íkonískt og nán- ast bannað að snerta. Ég ákvað samt að reyna að halda hug- anum algjörlega hreinum. En það merkilega við „ryþmann“ á þessari mynd er að þegar við settum einhvern svona stöð- ugan takt í tónlistina, þá pass- aði hann ekki. Það hægði meira á myndinni þegar við reynd- um nútímalegri leiðir í upphafi. Þetta er mynd sem snýst svolítið um andlega vanlíðan og kaos. Þegar maður fór að búa til reglu og með reglulegri tónlist, þá hætti hún alveg að virka.“ Vesen á ævintýramynd með Nicolas Cage Atli segist oft koma að verkefnum frá handritsstigi en segir stað- reyndina vera þá að oftast sé búið að setja tónlist undir kvik- myndir þegar tónskáldið kemur að þeim. Þetta er þekkt sem svonefnd „temp“-tónlist eða tímabundið stef sem er notað til þess að gefa klippara og öðr- um aðstandendum ákveðna til- finningu fyrir heildarverkinu og tilfinningum þess. Atli segir „temp“-tónlist oft einfalda mál- ið en hún geti líka flækt hlutina gríðarlega. „Stundum verður til eitthvað sem heitir „temp love“. Þá eru kannski framleiðendur eða leik- stjórinn vanir myndinni með tímabundnu tónlistinni og vilja þá eitthvað í líkingu við hana frekar en eitthvað gerólíkt,“ segir Atli. Að hans sögn fylgir oft vandræðaverkefni í kjölfar draumaverkefnis. Sem dæmi nefnir Atli kvik- myndina Season of the Witch, með Nicolas Cage í aðalhlut- verki, og segist hann hafa þurft að semja tónlistina fyrir þá mynd allt að þrisvar sinnum. „Myndin var alltaf að breytast í klippingunni og voru eiginlega þrjú lokaklipp,“ segir hann. „Þetta er í heildina séð mjög flókið ferli en mín reynsla er sú að þegar þú vinnur lengi með sama fólkinu, því meira traust byggir þú upp. Innsæi manns er betur treyst.“ Undir pólskum áhrifum Spurður hvort einhver kvikmynd standi nær hjarta hans en önnur er Atli ekki lengi að svara. „Þetta er ekkert ólíkt því að velja á milli barnanna, þó svo að maður eignist tvö til þrjú börn á hverju ári í svona fagi,“ segir hann kím- inn, „en að því sögðu þá stend- ur kvikmyndin Hrútar mér mjög nærri. Myndin er líka tekin upp á bæ þar sem móðir mín fæddist, þannig að hún er mér hugleikin á mörgum persónulegum svið- um.“ Að sögn Atla hafa pólsk tón- skáld einnig höfðað mikið til hans og nefnir hann hinn virta Zbigniew Preisner sem gríðar- legan áhrifavald í hans lífi. „Síðan er það auðvitað John Williams, hann hafði mikil áhrif á mig. Tónlistin hans fyrir Schindler‘s List er til að mynda algjör snilld og svo er náttúrlega ég af þessari Star Wars-kynslóð. Ég var í kringum átta ára aldur- inn þegar Star Wars kemur og breytir heiminum og tónlistin auðvitað stór hluti af því,“ segir Atli og bætir við: „Það merkilega við þetta á þeim tíma var að koma með eitt- hverja svona Wagner-tónlist inn í þetta, það var enginn að gera það. Flestir voru fastir í einhverj- um djassi og í gegnum Williams kemur einhver nýr heimur sem gjörbyltir öllu.“ Sólóferill í uppsiglingu Þegar Atli er ekki á fullu að semja tónlist þykir honum notaleg- ast að stunda fluguveiði, borða góðan mat, leggjast í ferða- lög og dreypa á góðu rauðvíni. Framundan eru þó mögulega stór kaflaskil því Atli ráðgerir að stíga aðeins til hliðar í kvik- myndatónlistinni. „Á síðustu misserum hef ég fundið fyrir meiri þörf fyrir að gera tónlist fyrir sjálfan mig, þannig að ég ætla á næstunni að einbeita mér meira að því að vinna í plötu og semja verk, til dæmis fyrir Sinfóníuhljóm- sveit Norðurlands og verður hún flutt eftir áramót,“ segir hann og kveðst vera afar spenntur fyrir þeirri hugmynd að gefa út sína fyrstu sólóplötu. „Ég fann einhverja braut og köllun í kvikmyndatónlist á sín- um tíma, sem hefur verið alveg frábært, en æ meira hef ég verið að finna fyrir svipaðri köllun og þörf til þess að semja tónlist sem er bara samin tónlistarinn- ar vegna. Þetta verður nýr kafli.“ Að sögn Atla er jafnframt skemmtilegt að fylgjast með tónlistaráhuganum færa sig nið- ur keðjuna, eins og hann orð- ar það, og segir hann gaman að fylgjast með börnunum sínum finna fyrir áhuganum. Hann tek- ur hins vegar fram að hann sé ekkert að ýta á eftir því að þau feti þessi braut. „Þetta bara ger- ist og það er greinilega sterkur áhugi,“ segir hann. „Eins og er oft sagt, þú velur ekki tónlistina, það er tónlistin sem velur þig.“ n Frábært verð og falleg hönnun Kíktu á sturta.is og skoðaðu úrvalið Sturtuklefar með þaki, sporna gegn raka „Þetta er ekkert ólíkt því að velja á milli barnanna, þó svo að maður eignist tvö til þrjú börn á hverju ári í svona fagi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.