Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Qupperneq 20
20 MENNING 20. júlí 2018
mikill. Ég vinn því á Íslandi en
á Los Angeles-tíma. Þar af leið-
andi er iðulega unnið fram á nótt,
kannski meira en ég vildi í raun,
en ég er virkastur á morgnana,
nánast um miðja nótt eða um
fimm eða sex leytið,“ segir Atli.
Aðspurður hvort vinnuferlið við
tónlist að kvikmynd frá grunni feli
í sér spennu eða óhug segir Atli
að í raun sé ferlið blanda af hvoru
tveggja. „Þetta er eins og með öll
löng ferðalög. Maður leggur ein-
faldlega af stað, reynir að finna
leiðina. Þetta snýst afar mikið um
að kynnast myndinni og koma sér
inn í þann hugarheim sem fylgir
henni. Maður lærir smám saman
að semja ákveðna tónlist fyrir
ákveðnar myndir. Þetta er eins og
ókunnug manneskja sem þú þarft
að kynnast.“
Atli segir það vera lykilatriði
að prófa sig áfram í alls konar stíl-
um en viðurkennir að kómedían
geti verið erfiðasti geirinn til þess
að semja fyrir. „Í kómedíunni er
svo fín lína sem þarf að þræða og
eru möguleikarnir miklu færri en
hjá viðfangsefni sem er dekkra,“
segir Atli. „Í hryllingsmyndum er
til dæmis svo mikið hráefni til á
meðan gamanmyndir búa yfirleitt
yfir bjartari litbrigðum og þá eru
færri möguleikar.“
Hvorki Superman né Star Wars
Nýlega samdi Atli tónlistina
fyrir vísindaskáldsöguna How It
Ends, sem Netflix framleiddi og
frumsýndi fyrr í mánuðinum.
Auk hennar lauk nýlega vinnslu
hryllingsmyndarinnar Jacob‘s
Ladder, sem er endurgerð sam-
nefndrar kvikmyndar frá 1990 og
Atli samdi tónlistina fyrir. Segir
hann að sú mynd hafi verið sér-
staklega mikil áskorun en jafn-
framt verkefni sem hann klóraði
sér mikið í höfðinu yfir hvernig
ætti að nálgast.
„Það má segja að ég hafi próf-
að að fara eina leið en hætt svo
við. Ég fór svolítið nútíma el-
ektróníska, „ryþmíska“ leið í
byrjun en svo fundum við að
það var ekki að virka. Við ákváð-
um síðan að feta klassískari
leið,“ segir Atli og bætir við að
hann hafi passað að slíta allar
tengingar við frummyndina.
„Ég ákvað að tækla þetta sem
nýja mynd. Þetta er líka allt önn-
ur mynd og þetta er ekki svipað
fyrirbæri eins og að endurgera
Star Wars- eða Superman-stefið,
eitthvað sem er íkonískt og nán-
ast bannað að snerta. Ég ákvað
samt að reyna að halda hug-
anum algjörlega hreinum. En
það merkilega við „ryþmann“
á þessari mynd er að þegar við
settum einhvern svona stöð-
ugan takt í tónlistina, þá pass-
aði hann ekki. Það hægði meira
á myndinni þegar við reynd-
um nútímalegri leiðir í upphafi.
Þetta er mynd sem snýst svolítið
um andlega vanlíðan og kaos.
Þegar maður fór að búa til reglu
og með reglulegri tónlist, þá
hætti hún alveg að virka.“
Vesen á ævintýramynd með
Nicolas Cage
Atli segist oft koma að verkefnum
frá handritsstigi en segir stað-
reyndina vera þá að oftast sé
búið að setja tónlist undir kvik-
myndir þegar tónskáldið kemur
að þeim. Þetta er þekkt sem
svonefnd „temp“-tónlist eða
tímabundið stef sem er notað
til þess að gefa klippara og öðr-
um aðstandendum ákveðna til-
finningu fyrir heildarverkinu
og tilfinningum þess. Atli segir
„temp“-tónlist oft einfalda mál-
ið en hún geti líka flækt hlutina
gríðarlega.
„Stundum verður til eitthvað
sem heitir „temp love“. Þá eru
kannski framleiðendur eða leik-
stjórinn vanir myndinni með
tímabundnu tónlistinni og vilja
þá eitthvað í líkingu við hana
frekar en eitthvað gerólíkt,“
segir Atli. Að hans sögn fylgir
oft vandræðaverkefni í kjölfar
draumaverkefnis.
Sem dæmi nefnir Atli kvik-
myndina Season of the Witch,
með Nicolas Cage í aðalhlut-
verki, og segist hann hafa þurft
að semja tónlistina fyrir þá
mynd allt að þrisvar sinnum.
„Myndin var alltaf að breytast í
klippingunni og voru eiginlega
þrjú lokaklipp,“ segir hann.
„Þetta er í heildina séð mjög
flókið ferli en mín reynsla er sú
að þegar þú vinnur lengi með
sama fólkinu, því meira traust
byggir þú upp. Innsæi manns er
betur treyst.“
Undir pólskum áhrifum
Spurður hvort einhver kvikmynd
standi nær hjarta hans en önnur
er Atli ekki lengi að svara. „Þetta
er ekkert ólíkt því að velja á milli
barnanna, þó svo að maður
eignist tvö til þrjú börn á hverju
ári í svona fagi,“ segir hann kím-
inn, „en að því sögðu þá stend-
ur kvikmyndin Hrútar mér mjög
nærri. Myndin er líka tekin upp á
bæ þar sem móðir mín fæddist,
þannig að hún er mér hugleikin
á mörgum persónulegum svið-
um.“
Að sögn Atla hafa pólsk tón-
skáld einnig höfðað mikið til
hans og nefnir hann hinn virta
Zbigniew Preisner sem gríðar-
legan áhrifavald í hans lífi.
„Síðan er það auðvitað John
Williams, hann hafði mikil
áhrif á mig. Tónlistin hans fyrir
Schindler‘s List er til að mynda
algjör snilld og svo er náttúrlega
ég af þessari Star Wars-kynslóð.
Ég var í kringum átta ára aldur-
inn þegar Star Wars kemur og
breytir heiminum og tónlistin
auðvitað stór hluti af því,“ segir
Atli og bætir við:
„Það merkilega við þetta á
þeim tíma var að koma með eitt-
hverja svona Wagner-tónlist inn
í þetta, það var enginn að gera
það. Flestir voru fastir í einhverj-
um djassi og í gegnum Williams
kemur einhver nýr heimur sem
gjörbyltir öllu.“
Sólóferill í uppsiglingu
Þegar Atli er ekki á fullu að semja
tónlist þykir honum notaleg-
ast að stunda fluguveiði, borða
góðan mat, leggjast í ferða-
lög og dreypa á góðu rauðvíni.
Framundan eru þó mögulega
stór kaflaskil því Atli ráðgerir
að stíga aðeins til hliðar í kvik-
myndatónlistinni.
„Á síðustu misserum hef ég
fundið fyrir meiri þörf fyrir að
gera tónlist fyrir sjálfan mig,
þannig að ég ætla á næstunni
að einbeita mér meira að því
að vinna í plötu og semja verk,
til dæmis fyrir Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands og verður hún
flutt eftir áramót,“ segir hann og
kveðst vera afar spenntur fyrir
þeirri hugmynd að gefa út sína
fyrstu sólóplötu.
„Ég fann einhverja braut og
köllun í kvikmyndatónlist á sín-
um tíma, sem hefur verið alveg
frábært, en æ meira hef ég verið
að finna fyrir svipaðri köllun
og þörf til þess að semja tónlist
sem er bara samin tónlistarinn-
ar vegna. Þetta verður nýr kafli.“
Að sögn Atla er jafnframt
skemmtilegt að fylgjast með
tónlistaráhuganum færa sig nið-
ur keðjuna, eins og hann orð-
ar það, og segir hann gaman að
fylgjast með börnunum sínum
finna fyrir áhuganum. Hann tek-
ur hins vegar fram að hann sé
ekkert að ýta á eftir því að þau
feti þessi braut. „Þetta bara ger-
ist og það er greinilega sterkur
áhugi,“ segir hann. „Eins og er
oft sagt, þú velur ekki tónlistina,
það er tónlistin sem velur þig.“ n
Frábært verð og
falleg hönnun
Kíktu á sturta.is og skoðaðu úrvalið
Sturtuklefar með þaki,
sporna gegn raka
„Þetta er
ekkert ólíkt
því að velja á milli
barnanna, þó svo
að maður eignist
tvö til þrjú börn á
hverju ári í svona
fagi.