Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Blaðsíða 28
Vestfirðir Helgarblað 20.júlí 2018KYNNINGARBLAÐ Vestfirðirnir hafa til að bera fjölbreytta og heillandi nátt-úrufegurð sem laðar að bæði innlenda og erlenda ferðamenn. Ferðaþjónustufyrirtækið Westfjords Adventures var stofnað árið 2012 og er staðsett að Þórsgötu 8a á Pat- reksfirði. Erlendir ferðamenn, sem dreymir um að upplifa ævintýri í ægi- fagurri og hrikalegri náttúru Íslands, sækja mjög í ferðir hjá fyrirtækinu en ferðirnar henta líka afar vel íslensk- um ferðamönnum sem vilja kynnast landinu sínu. „Íslenskir ferðamenn sækja helst í gönguferðirnar hjá okkur. Við erum með heildarþjónustu fyrir gönguhópa, bæði leiðsögn og ráðgjöf um sam- setningu gönguleiða. Gönguhópar fá ráðgjöf hjá okkur um heppilegar gönguleiðir með tilliti til lengdar og erfiðleikastigs. Oftast eru þetta tveir til fjórir göngudagar og við sjáum meðal annars um rútuferðir til að ferja fólk á milli staða, gistingu og mat fyrir hópinn,“ segir Gunnþórunn Bender hjá Westfjords Adventures og nefnir vinsælustu gönguleiðirnar: „Það er afskaplega vinsælt að ganga um brúnir Látrabjargs. Þetta er þægileg ganga og margt að sjá og bjargið er í senn ægifagurt og ógn- vænlegt. Einnig er vinsælt að fara frá Rauðasandi til Barðastrandar og um víkurnar.“ Sjóstangaveiðin vinsæl Gunnþórunn segir að sjóstangaveiði- ferðir séu líka afar vinsælar meðal íslenskra ferðamanna. „Við erum einnig með ferð sem við köllum „Fish and dine“ en þá er farið á sjóstöng og síðan er aflinn eldaður á veitingahúsi,“ segir Gunnþórunn. Hún segir að þessar hópferðir séu langvinsælastar hjá Íslendingum en útlendingar séu meira fyrir einkaferðir á Látrabjarg, fuglaskoðunarferðir og ljósmyndaferðir. Frábær leið til að hrista hópinn saman Westfjords Adventures sérhæfir sig einnig í hvata- og fyrirtækjaferð- um og setur þá upp dagskrá þar sem fólk getur valið um afþreyingu, svo sem gönguferðir, hjólaferðir, jeppaferðir, bátaferðir, snjósleðaferð- ir og fleira. „Við nýtum okkur einnig heitu laugarnar sem hér er að finna allt í kring. Þetta er frábær leið til að hrista saman hópa og gera eitthvað skemmtilegt í nýju umhverfi. Síðan toppum við daginn með ljúffengum mat og góðri gistingu. Við sérsníðum ferðir fyrir hvern og einn hóp svo upp- lifunin verði sem mest,“ segir Gunn- þórunn. Westfjords Adventures er einnig með hjólaleigu og bílaleigu, rekur upplýsingamiðstöð yfir sumartímann og heldur úti áætlunarferðum milli Patreksfjarðar, Brjánslækjar og Ísa- fjarðar í tengslum við ferjuna Baldur sem siglir yfir Breiðafjörðinn. Nánari upplýsingar eru á vef- síðunni wa.is. Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar og bóka ferðir í síma 456-5006. Enn fremur er heppilegt að senda fyrirspurnir á netfangið info@wa.is og er þeim svarað hratt og greiðlega. WESTFJORDS ADVENTURES Gönguævintýri og sjóstangaveiði í náttúrufegurð Vestfjarða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.