Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Síða 28
Vestfirðir Helgarblað 20.júlí 2018KYNNINGARBLAÐ
Vestfirðirnir hafa til að bera fjölbreytta og heillandi nátt-úrufegurð sem laðar að bæði
innlenda og erlenda ferðamenn.
Ferðaþjónustufyrirtækið Westfjords
Adventures var stofnað árið 2012 og
er staðsett að Þórsgötu 8a á Pat-
reksfirði. Erlendir ferðamenn, sem
dreymir um að upplifa ævintýri í ægi-
fagurri og hrikalegri náttúru Íslands,
sækja mjög í ferðir hjá fyrirtækinu en
ferðirnar henta líka afar vel íslensk-
um ferðamönnum sem vilja kynnast
landinu sínu.
„Íslenskir ferðamenn sækja helst
í gönguferðirnar hjá okkur. Við erum
með heildarþjónustu fyrir gönguhópa,
bæði leiðsögn og ráðgjöf um sam-
setningu gönguleiða. Gönguhópar
fá ráðgjöf hjá okkur um heppilegar
gönguleiðir með tilliti til lengdar og
erfiðleikastigs. Oftast eru þetta tveir
til fjórir göngudagar og við sjáum
meðal annars um rútuferðir til að
ferja fólk á milli staða, gistingu og
mat fyrir hópinn,“ segir Gunnþórunn
Bender hjá Westfjords Adventures og
nefnir vinsælustu gönguleiðirnar:
„Það er afskaplega vinsælt að
ganga um brúnir Látrabjargs. Þetta
er þægileg ganga og margt að sjá og
bjargið er í senn ægifagurt og ógn-
vænlegt. Einnig er vinsælt að fara frá
Rauðasandi til Barðastrandar og um
víkurnar.“
Sjóstangaveiðin vinsæl
Gunnþórunn segir að sjóstangaveiði-
ferðir séu líka afar vinsælar meðal
íslenskra ferðamanna. „Við erum
einnig með ferð sem við köllum „Fish
and dine“ en þá er farið á sjóstöng og
síðan er aflinn eldaður á veitingahúsi,“
segir Gunnþórunn.
Hún segir að þessar hópferðir séu
langvinsælastar hjá Íslendingum en
útlendingar séu meira fyrir einkaferðir
á Látrabjarg, fuglaskoðunarferðir og
ljósmyndaferðir.
Frábær leið til að hrista hópinn
saman
Westfjords Adventures sérhæfir
sig einnig í hvata- og fyrirtækjaferð-
um og setur þá upp dagskrá þar
sem fólk getur valið um afþreyingu,
svo sem gönguferðir, hjólaferðir,
jeppaferðir, bátaferðir, snjósleðaferð-
ir og fleira. „Við nýtum okkur einnig
heitu laugarnar sem hér er að finna
allt í kring. Þetta er frábær leið til að
hrista saman hópa og gera eitthvað
skemmtilegt í nýju umhverfi. Síðan
toppum við daginn með ljúffengum
mat og góðri gistingu. Við sérsníðum
ferðir fyrir hvern og einn hóp svo upp-
lifunin verði sem mest,“ segir Gunn-
þórunn.
Westfjords Adventures er einnig
með hjólaleigu og bílaleigu, rekur
upplýsingamiðstöð yfir sumartímann
og heldur úti áætlunarferðum milli
Patreksfjarðar, Brjánslækjar og Ísa-
fjarðar í tengslum við ferjuna Baldur
sem siglir yfir Breiðafjörðinn.
Nánari upplýsingar eru á vef-
síðunni wa.is. Einnig er hægt að fá
nánari upplýsingar og bóka ferðir
í síma 456-5006. Enn fremur er
heppilegt að senda fyrirspurnir á
netfangið info@wa.is og er þeim
svarað hratt og greiðlega.
WESTFJORDS ADVENTURES
Gönguævintýri og sjóstangaveiði
í náttúrufegurð Vestfjarða