Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.01.2019, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 03.01.2019, Qupperneq 17
Reykjavík – Símtöl eru misjöfn að gæðum eins og Guðmund-ur Ólafsson hagfræðingur segir stundum, og þau skila mismiklu. Hann sagði mér frá heimsókn Williams Rogers, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, í Árnagarð, hús Háskóla Íslands, 1972. Richard Nixon sat á stríðsstóli í Hvíta hús- inu. Víetnamstríðið vakti megna andúð um allan heim. Æskulýðsfylkingin o.fl. vildu fá frið til að mótmæla komu ráðherr- ans í Árnagarð. Til að fá frið hringdu þau hvert í annað og þóttust leggja á ráðin um fjölmennan mótmælafund í Garðabænum eða hvar það nú var. Löggan þusti þangað og kommarnir hlógu sig máttlausa. Rogers hvarf úr embætti árið eftir. Nokkru síðar, 1976, lét lög- reglustjórinn í Reykjavík „farga mestum hluta af því skjalasafni, sem lögreglan hafði komið sér upp um kommúnista. Trúnaðarmaður [lögreglustjóra] … brenndi gögnin til ösku í götóttri olíutunnu. Af varð „mikill reykur“, eins og haft var við orð í þeim fámenna hópi, sem vissi um þessa brennu“ skv. prentaðri frásögn Þórs Whitehead prófessors frá 2006. Allt hefur sinn stað og stund Þjóðsöngvar eru með líku lagi misjafnir að gæðum. Þjóðsöngur Alsírbúa geymir þessar ljóðlínur í lauslegri þýðingu minni: „Þegar við töluðum hlustaði enginn á okkur svo við gerðum rjúkandi púður að rytma okkar og ljúfan vélbyssugný að lögunum sem við syngjum.“ Ítalski þjóðsöngurinn skartar þessari línu: „Austurríski örninn flýgur fjaðralaus.“ Víetnamar syngja: „Leiðin til dýrðar er vörðuð liðnum líkum óvina okkar.“ Í ísraelska þjóð- söngnum koma fyrir orðin „eldfjall hefndarmorða minna“. Virk eldfjöll koma ekki fyrir í öðrum þjóð- söngvum svo ég viti. Það er þó frekar sjaldgæft að þjóð- söngvar séu hafðir til að atast í and- stæðingum eða ýfa upp önnur illindi líkt og í dæmunum að framan. Enn sjaldgæfara er að nafngreina menn í þjóðsöngvum. Pólland er undan- tekning. Pólverjar syngja: „Fram til sigurs, Dabrowski“. Hvatningunni er beint til Jans Henryks Dąbrowski hershöfðingja (1755-1818). Við förum aðra leið. Við syngjum um „eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár“ frekar en að mæra Skúla fógeta eða fjargviðrast út í Dani. Séra Matthías kunni tökin. Mannanöfn eiga ekki heima í þjóðsöngvum. Kínverska stjórnarskráin Mannanöfn eiga ekki heldur heima í stjórnarskrám. Kínverjar líta málið þó öðrum augum. Þeir breyttu stjórnarskrá sinni í fyrra. Þar voru áður nefndir með nafni leiðtogarnir Mao Zedong sem leiddi kommún- ista til valda í Kína 1949 og Deng Xiaoping sem upphóf markaðs- búskap í landinu 1978. Og nú hefur Xi Jinping, forseta Kína og aðalritara Kommúnistaflokksins, verið bætt í púkkið. Hann vill ekki vera minni maður en hinir tveir. Flokkurinn sér um sína og leyfir þeim jafnvel að hreiðra um sig í stjórnarskránni eins og til að undirstrika að menn eru ofar lögum í Kína. Þjóðsöngur Kína frá 1935 hefur m.a.s. verið bundinn í stjórnarskrá landsins síðan 2004. Kínverjum fórst þó ekki vel við Tian Han, skáldið sem skaffaði textann. Hann var myrtur í menningar- byltingunni 1968. Flestir þjóðsöngvar sem ég hef heyrt þykja mér fallegir. Þjóðsöngur Indverja eftir bengalska skáldið Rabindranath Tagore, bæði ljóð og lag, þykir mér ægifagur. Texti skáldsins fjallar um landið frekar en fólkið. Tagore var sæmdur bók- menntaverðlaunum Nóbels 1913, fyrstur skálda utan Evrópu. Rússland, Nígería, Ísland Ambögur fyrirfinnast í þjóð- söngvum, víst er það, en þær eru sjaldgæfar í stjórnarskrám. Það er eins og menn vandi sig jafnan meira við stjórnarskrár sínar en við sjálfan þjóðsönginn, taki grundvallarlögin fram yfir listina. Í rússnesku stjórnarskránni frá 1993 er að finna auðlindaákvæði sem hljóðar svo í þýðingu minni: „Landið og aðrar náttúruauðlindir mega vera í eigu einkaaðila, ríkisins, sveitarfélaga og lúta öðru eignar- haldi.“ Ákvæðið er haldlaust eins og til stóð og hefur gert einkavinum valdsins kleift að sölsa undir sig auðlindirnar. Auðlindaákvæðið í stjórnarskrá Nígeríu frá 1999 er ívið skárra en er þó einnig haldlítið. Þar segir að „ríkið skuli stefna að því að tryggja að auðlindir þjóðarinnar séu nýttar og þeim skipt eins og vel og hægt er í almannaþágu“. Þar eins og í Rússlandi hafa vel tengdir vinir valdsins látið greipar sópa um „auð- lindir þjóðarinnar“ sem svo eru þó nefndar í stjórnarskránni. Haldbeztu auðlindaákvæði heimsins til þessa er að finna í nýju íslenzku stjórnarskránni, ákvæði sem 83% kjósenda lýstu sig fylgjandi í þjóðaratkvæða- greiðslunni 2012, og í frumvarpi frá 2010 að færeyskri stjórnarskrá sem Færeyingar hafa ekki enn fengið að kjósa um. Eina hallærislegustu ambögu allra stjórnarskráa er að finna í núgild- andi stjórnarskrá Íslands frá 1944: „Forsetinn veitir, annaðhvort sjálfur eða með því að fela það öðrum stjórnvöldum, undanþágur frá lögum samkvæmt reglum, sem farið hefur verið eftir hingað til.“ Alþingi stendur stífan heiðurs- vörð um hallærið – „helgan gjörning“ sem Morgunblaðið hefur kallað svo. Þjóðsöngvar, símtöl og stjórnarskrár Þorvaldur Gylfason Í DAG Æskulýðsfylkingin o.fl. vildu fá frið til að mótmæla komu ráðherrans í Árnagarð. Til að fá frið hringdu þau hvert í annað og þóttust leggja á ráðin um fjölmennan mót- mælafund í Garðabænum eða hvar það nú var. Löggan þusti þangað og kommarnir hlógu sig máttlausa. I Öll þau sem ég hitti á förnum vegi fyrstu mánuðina eftir að ég var kosinn á þing söngluðu við mig glottandi: „Þingmaður, og svarið er …“ Öll: meira að segja kóngurinn sjálfur. Ég varð alltaf hálfkindarlegur – vissi ekki hverju ég átti að svara: já já eða nei nei – eða bara: tja, hvað finnst þér? Veit það varla enn. II Ríkisstjórnin samþykkti valdar breytingartillögur Samfylkingarinnar við fjárlög og síðar fjáraukalög. En hún gerði það með sínum hætti. Hún lét lið sitt fella tillögurnar í þingsal með tali um yfirborðsmennsku og næg framlög en svo tók ráðherra þessar til- lögur og gerði að sínum, rétt fyrir jól. Hér var um að ræða aukin fjárframlög til heilbrigðisstofnana víða um land og það var heilbrigðisráðherra sem þarna notaði ríkissjóð eins og sér- stakan kreditkortareikning sinn. Það hefði verið óhugsandi að sam- þykkja breytingartillögur Samfylk- ingar við fjárlög, hversu réttmætar sem þær kynnu að vera. Samfylkingin er nefnilega í stjórnarandstöðu. Og samþykki maður breytingartillögur frá stjórnarandstöðuflokki sýnir það veikleika. Og það er sjálf dauðasyndin hér í pólitíkinni og alveg andstætt þeirri meginreglu íslenskra stjórn- mála að sigurvegarinn eignist allt og ráði öllu. Og sigurvegarinn er sá sem kemst í ríkisstjórn hverju sinni – ekki endi- lega sá sem fær eindregnast umboð frá kjósendum. Þingmaður og svarið er: The Winner takes it all. III Á minni stuttu þingmannstíð hefur stjórnarandstaða þrívegis náð að fá ríkisstjórnina ofan af fyrirætlunum sínum. Fyrst því áformi að láta efnis- kostnað af iðnnámi lenda á nemend- um; síðan að knýja fram veiðigjalda- lækkun og loks nú fyrir jól, að koma á veggjöldum. Aðferðin við að fá ríkisstjórn ofan af vitleysunni hefur alltaf verið sú sama: ekki að telja henni hughvarf með góðum rökum heldur hinu að segja sem fæst í sem flestum orðum; draga umræður á langinn, tefja þing- störfin með umræðum um hvaðeina annað sem er á dagskrá – og jafn- vel ekki á dagskrá. Það kom vel á vondan fyrir mig að taka þátt í slíku því að einu sinni skrifaði ég grein hér í blaðið um málþóf sem ég sagði vera „sjálfsofnæmi þingræðisins“. Nú hef ég komist að því að þetta er eina leiðin sem stjórnarandstaðan hefur til að ríkisstjórnarmeirihlutinn hverju sinni virði sjónarmið hennar. Maður þarf hreinlega að taka ræðustól Alþingis í gíslingu. Þingmaður, og svarið er: málþóf. IV Ríkisstjórninni tókst um síðir og með harðfylgi að hafa sitt fram og lækka gjöld útgerðarinnar til þjóðar- innar fyrir afnot af þeirri miklu auð- lind sem hér syndir kringum landið. Ekki fór á milli mála þunginn í tali ráðherranna og mikilvægi málsins þegar það var til umræðu á þingi. Það snerist um grundvallaratriði. Þing- menn eru trúnaðarmenn fólksins og sækja umboð sitt til kjósenda sinna og kjósendahópa og hér taldi þrífork- urinn sem myndar ríkisstjórnina sig greinilega vera að þjóna sínum mikil- vægasta kjósendahópi: útgerðarfyrir- tækjunum. Það var verið að styrkja rekstrargrundvöll þeirra fyrirækja sem starfa í sjávarútvegi, burtséð frá stöðu þeirra að öðru leyti og burtséð frá því grundvallaratriði, sem stjórnar- andstaðan aðhyllist, að fá sem mest verðmæti út úr auðlindinni, þjóð- inni allri til hagsbóta. Ríkisstjórnin var í þessu máli, að standa vörð um ríkjandi kerfi, rétt eins og hún gerir í landbúnaði og ferðaþjónustu og stóriðju. Þingmaður og svarið er: hagsmunir. Þingmaður, og svarið er … Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Sam- fylkingarinnar Þingmenn eru trúnaðar- menn fólksins og sækja umboð sitt til kjósenda sinna og kjósendahópa og hér taldi þríforkurinn sem myndar ríkisstjórnina sig greinilega vera að þjóna sínum mikil- vægasta kjósendahópi: út- gerðarfyrirtækjunum “Doktor.is er ætlað að auðvelda aðgengi almennings að upplýsingum og ráðgjöf um heilsu, lífsstíl og forvarnir.,, Teitur Guðmundsson, læknir og ritstjóri doktor.is Ráðgjöf Fræðsla Forvarnir S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 17F I M M T U D A G U R 3 . J A N Ú A R 2 0 1 9 0 3 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :4 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 E E -C 6 3 4 2 1 E E -C 4 F 8 2 1 E E -C 3 B C 2 1 E E -C 2 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 2 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.