Fréttablaðið - 03.01.2019, Side 24
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Hin sívinsæla „bob“ klipping hefur verið mikið í tísku undanfarin ár og verður
áfram heit í vetur. Bob-klippingin
tekur nafn sitt frá öðrum og þriðja
áratugnum þegar konur hófu að
klippa hár sitt í stað þess að hafa
það eins sítt og mögulegt var. Bob-
inn er yfirleitt þverklipping allan
hringinn, þar sem hárið nemur
ekki neðar en við axlir en sú útgáfa
hefur verið vinsæl undanfarin ár.
Hárið styttist í bobnum ef eitthvað
er í ár og nemur nú einhvers staðar
á milli eyrnasnepla og höku. Þá er
Upp á hár
á nýju ári Pastellitir með dekkri strípum í sama tóni munu verða
vinsælir hjá þeim sem vilja sýna dirfsku og hárhug 2019.
Stórir liðir sem ramma andlitið inn verða aðalmálið í
síðu hári í sumar og hlýir, hunangsljósir tónar taka við af
kaldari hvít- eða platínuljósum litbrigðum.
Þykkir þvertoppar verða í tísku með aðeins síðari bob-klippingu. Dökkbrúnn
litur sem daðrar við kastaníubrúnan með hjálp strípa verður einnig vinsæll,
Styttri bob með óreglulegum toppi
er einnig vinsæl klipping.
Rauðir eða koparlitir tónar í síðu, dökku hári verða áberandi á því frúarári
2019 og því meira eftir því sem neðar dregur í lokkunum.
í tísku að hafa bob-inn styttri að
aftan og aðeins síðari við andlitið
sem býr til fallegan ramma sem er
samt hægt að vinna aðeins með, til
dæmis með því að krulla nokkra
lokka og ná þannig styttuyfir-
bragði án þess að vera með styttur.
Þá er einnig töff að hafa hárið
aðeins síðara og knallstuttan eða
síðari topp með styttum sem
dregur fram augnsvipinn.
Þær sem kjósa að vera með
síðara hár ættu líka að hugleiða
toppa en ekki stutta þvertoppa
heldur síðari og óreglulegri línur,
og jafnvel má segja að erfitt sé að
sjá hvar toppur verður að styttum í
fremsta hluta hársins. Þessi klipp-
ing er einkar hagkvæm þar sem
hún léttir á síðu hári, einkum ef
það er mjög þykkt og svo er ekkert
mál að skella öllu hárinu í tagl ef
svo ber undir. Styttur og stórir
liðir verða einnig áberandi 2019
og sléttujárnin fá alveg að hvíla
sig á síða hárinu þó þeirra verði
enn þörf til að geirnegla kantaðar
styttri klippingar.
Álfastelpuklippingin sem stund-
um er einnig kölluð „pixie“ heldur
stöðu sinni fyrir þær sem vilja hafa
það þægilegt og einfalt. Þessi klipp-
ing á sér einnig rætur í tuttugustu
öldinni, nánar tiltekið er þetta
klipping sem Audrey Hepburn
var með í kvikmyndinni A Roman
Holiday á sjötta áratugnum. Mia
Farrow og Twiggie urðu svo fyrir-
myndir þeirra sem kjósa þennan
stutta hálfgerða drengjakoll sem
er einstaklega þægilegt að eiga við
og getur bæði verið frjálslegur og
spari. Úr sér vaxið „pixie“ er líka
vinsælt, en þá er styttunum leyft
að verða aðeins lengri og tjásulegri.
En varist að halda að sú greiðsla
sé alveg áreynslulaus því eins og
með allt í tískunni þá skiptir máli
hvernig óreiðan er sett fram.
Vinsælustu litirnir verða hun-
angsskol sem er aðeins dekkri
útgáfa af hunangsljósum, mjúkur
kastaníubrúnn með rauðgylltum
strípum, koparkossar í endana á
dökku hári, pastellitir og jafnvel
skyggingar þar sem fleiri en einn
tónn leika saman, karamellu-
strípur í alla brúna liti með ljósari
áherslu næst andlitinu.
Já, eins og venjulega er úr nægu
að velja í hártískunni og ætti
að vera auðvelt að finna réttu
greiðsluna árið 2019.
Veistu upp á hár
hvernig þú ætlar
að hafa hárið
á nýju ári? Lín-
urnar hafa verið
lagðar og það er
klippt og skorið
hvernig hárið
verður 2019.
Úr sér vaxin álfaklipping eða „pixie“
verður áberandi 2019.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Útsalan hafin
40-60% afsláttur
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
0
3
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:4
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
E
-9
E
B
4
2
1
E
E
-9
D
7
8
2
1
E
E
-9
C
3
C
2
1
E
E
-9
B
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K