Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.01.2019, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 03.01.2019, Qupperneq 24
Brynhildur Björnsdóttir brynhildur@frettabladid.is Hin sívinsæla „bob“ klipping hefur verið mikið í tísku undanfarin ár og verður áfram heit í vetur. Bob-klippingin tekur nafn sitt frá öðrum og þriðja áratugnum þegar konur hófu að klippa hár sitt í stað þess að hafa það eins sítt og mögulegt var. Bob- inn er yfirleitt þverklipping allan hringinn, þar sem hárið nemur ekki neðar en við axlir en sú útgáfa hefur verið vinsæl undanfarin ár. Hárið styttist í bobnum ef eitthvað er í ár og nemur nú einhvers staðar á milli eyrnasnepla og höku. Þá er Upp á hár á nýju ári Pastellitir með dekkri strípum í sama tóni munu verða vinsælir hjá þeim sem vilja sýna dirfsku og hárhug 2019. Stórir liðir sem ramma andlitið inn verða aðalmálið í síðu hári í sumar og hlýir, hunangsljósir tónar taka við af kaldari hvít- eða platínuljósum litbrigðum. Þykkir þvertoppar verða í tísku með aðeins síðari bob-klippingu. Dökkbrúnn litur sem daðrar við kastaníubrúnan með hjálp strípa verður einnig vinsæll, Styttri bob með óreglulegum toppi er einnig vinsæl klipping. Rauðir eða koparlitir tónar í síðu, dökku hári verða áberandi á því frúarári 2019 og því meira eftir því sem neðar dregur í lokkunum. í tísku að hafa bob-inn styttri að aftan og aðeins síðari við andlitið sem býr til fallegan ramma sem er samt hægt að vinna aðeins með, til dæmis með því að krulla nokkra lokka og ná þannig styttuyfir- bragði án þess að vera með styttur. Þá er einnig töff að hafa hárið aðeins síðara og knallstuttan eða síðari topp með styttum sem dregur fram augnsvipinn. Þær sem kjósa að vera með síðara hár ættu líka að hugleiða toppa en ekki stutta þvertoppa heldur síðari og óreglulegri línur, og jafnvel má segja að erfitt sé að sjá hvar toppur verður að styttum í fremsta hluta hársins. Þessi klipp- ing er einkar hagkvæm þar sem hún léttir á síðu hári, einkum ef það er mjög þykkt og svo er ekkert mál að skella öllu hárinu í tagl ef svo ber undir. Styttur og stórir liðir verða einnig áberandi 2019 og sléttujárnin fá alveg að hvíla sig á síða hárinu þó þeirra verði enn þörf til að geirnegla kantaðar styttri klippingar. Álfastelpuklippingin sem stund- um er einnig kölluð „pixie“ heldur stöðu sinni fyrir þær sem vilja hafa það þægilegt og einfalt. Þessi klipp- ing á sér einnig rætur í tuttugustu öldinni, nánar tiltekið er þetta klipping sem Audrey Hepburn var með í kvikmyndinni A Roman Holiday á sjötta áratugnum. Mia Farrow og Twiggie urðu svo fyrir- myndir þeirra sem kjósa þennan stutta hálfgerða drengjakoll sem er einstaklega þægilegt að eiga við og getur bæði verið frjálslegur og spari. Úr sér vaxið „pixie“ er líka vinsælt, en þá er styttunum leyft að verða aðeins lengri og tjásulegri. En varist að halda að sú greiðsla sé alveg áreynslulaus því eins og með allt í tískunni þá skiptir máli hvernig óreiðan er sett fram. Vinsælustu litirnir verða hun- angsskol sem er aðeins dekkri útgáfa af hunangsljósum, mjúkur kastaníubrúnn með rauðgylltum strípum, koparkossar í endana á dökku hári, pastellitir og jafnvel skyggingar þar sem fleiri en einn tónn leika saman, karamellu- strípur í alla brúna liti með ljósari áherslu næst andlitinu. Já, eins og venjulega er úr nægu að velja í hártískunni og ætti að vera auðvelt að finna réttu greiðsluna árið 2019. Veistu upp á hár hvernig þú ætlar að hafa hárið á nýju ári? Lín- urnar hafa verið lagðar og það er klippt og skorið hvernig hárið verður 2019. Úr sér vaxin álfaklipping eða „pixie“ verður áberandi 2019. Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Útsalan hafin 40-60% afsláttur 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 0 3 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :4 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 E E -9 E B 4 2 1 E E -9 D 7 8 2 1 E E -9 C 3 C 2 1 E E -9 B 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 2 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.