Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Blaðsíða 10

Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Blaðsíða 10
SOFN OG HEILSA Söfn, vettvangur samræðna um gteymdar minningar Söfn x dag hafa xnörg hlutverk. Þau miðla ekki aðeins þekkingu og varðveita verðmæti þjóðar heldur eru þau líka vettvangur félagslegra tengsla og samskipta. Þá er ekki átt við kaffthúsið eða bókabúðina við inngang safnsins heldur að vettvangurinn sé í sjálfum sýningarsölunumfyrirframan verkin. Hér verðurfjállað í stuttu máli um hvernig nýta megi listir og önnur menningarverðmæti í söfnum til að auka lífsgæðifólks með alzheimer með því að bjóða þeim upp á heimsóknir í sérsniðnum dagskrám. Alzheimer sviptir einstaklinginn smám saman sjálfsmeðvitundinni en með hjálp lista og menningartengdra gripa má að einhverju leyti endurheimta hana. Myndlist og íslenskur menningar- arfurgeta tekið þátt í að virkja hugmyndaflugið, tilfinningaminnið oggetuna til að eiga ífélagslegum samskiptum. Sýnt verðurfram á að ólílc söfn geta boðið upp á dagskrá þar sem talmál er örvað og minningar endurvaktar í gegnum myndverk og aðra sýningargripi. Hafa bera í huga að álzheimer hefur lílca milcil áhrifá aðstandendur og heimsóknin líkajákvæð áhrifá þá ef vel er að staðið. Safnið; vettvangur til að endurvelcja minningar Söfn eru ólík að gerð og stærð og umhveríi þeirra og aðstæður misjafn- ar gagnvart aðgegni og fjölcla gesta. Þau atriði ættu þó elclci að koma í veg fyrir að skipuleggja dagskrá fyrir fólk með sérþarfir eins og þeirra sem þjást af alzheimer-sjúkdómnum. Fyrst skulum við gera okkur örlitla grein fyrir einkennum alzheimers, algengastan svokallaðra minnis- sjúkdóma. Hann leggst á heilann og veldur dauða taugafruma og þar með rýrnun hans. Hann er algengasta tegund heilabilunar, er aldursháður og stigbreytilegur. Fjöldi aldraðra á Vesturlöndum fer almennt sívaxandi og gerir það að verkum að tilfellum sjúkdómsins fjölgar að sama skapi. Algeng merki um alzheimer lýsa sér í minnisskerðingu, sem þýðir að sjúklingurinn á erfitt með að muna liðna tíð - sérstaklega nýliðna - ; dómgreindarskerðingu og innsæis- leysi sem gerir fólk smátt og smátt ófært um að annast persónulegar þarfir (t.d. eldamennsku eða gera skattskýrsluna); máltruflun sem lýsir sér einlcum í að fólk gleymir nafn- orðum og því reynist erfitt að finna rétt orð yfir hluti þó þeir viti til hvers þeir séu notaðir; skertu ratvísi og sálrænni vanlíðan sem lýsir sér í kvíða, öryggisleysi, þunglyndi og ótta. Allt eru þetta atriði sem hafa áhrif á félagslegt líf sjúklingsins og sjálfstraust og þar af leiðandi, lífs- gæði. Þetta er mikilvægt að hafa í huga þegar dagskrá er búin til sem hefur það að marlcmiði að virkja já- kvæðar tilfinningar og gefa jálcvæð skilaboð. Samræður og félagsleg samskipti er hluti af þeirri áskorun. Annað sem ber að hafa í huga eru mismunandi minnistegundir og áhrif sjúkdómsins á þær. Slcamm- tímaminni, sem er getan til að leggja eitthvað á minnið og læra. Sú geta skiptir okkur miklu máli í daglegu lífi: Hvað gerði ég í morgun? Hvað ætla ég að gera eftir hádegi? Lang- tímaminni, sem er getan til að muna það sem maður var áður búinn að leggja á minnið, eins og afmælisdaga og sögulega atburði. En síðan er það atburðaminnið sem tengist því þegar atburður hefur tilfinningaleg áhrif og skiptir okkur máli. Varðandi at- burðaminnið velcur það athygli í sam- ræðum að þó nolckrir einstaklingar verði fyrir sams konar reynslu getur endurminning þeirra af atburðin- um verið töluvert mismunandi. Það er vegna þess að minnið er byggt á reynslusögu hvers og eins og mótast af því sem hann hefur orðið fyrir allt 10

x

Safnablaðið Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.