Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Síða 29

Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Síða 29
fyrir löngu hætt ef ég væri ekki alltaf að vinna mörg spennandi verkefni með skemmtilegu fólki. Mun eitthvað breytast árið 2018? Pað er margt framundan. Nú erum við að fara að endurslcoða stefnu safnsins því þessi sem er í gildi rennur sitt skeið árið 2018. í þeirri vinnu þarf sannarlega að slcoða hvernig best er að tækla þá vinkilbeygju sem hefur verið tekin í varðveisluhúsnæðismálum og svo þarf að ljúlca deiliskipulagsgerð fyrir safnsvæðið í Glaumbæ. Fyrir fjárhagsáætlunargerð næsta haust þarf líka að vera komin niðurstaða um það hvernig nýr samningur við Pjóðminjasafnið mun líta út, um rekstur gamla bæjarins í Glaumbæ. Hver verða áhrif nýs samnings við Þjóðminjasafnið á starfsemi safnsins? Nú fer eftir því hvaða áherslur verða lagðar í samningnum. Pjóðminjasafnið leitar eftir því að byggðasafnið taki að sé rekstur fleiri húsa í húsasafni Þjóðminjasafnsins. Um er að ræða átta hús að meðtöldum Glaumbæ. Fari svo getur slíkur samningur haft í för með sér eðlisbreytingu á starfsemi safnsins og þar með litað allt starfið. Með samningi um rekstur fleiri húsa á svæðinu myndi byggðasafnið talca þéttar í hönd Þjóðminjasafnsins og við munum einblína enn frekar á byggingararfmn en áður. Taki safnið á sig þessa ábyrgð þarf það sennilega noklcurra ára aðlögun. Nú er staðan sú að byggðasafnið fær allan aðgangseyri en Þjóðminjasafnið, eða öllu heldur Glaumbænum, er ætlaður 800.000 lcr. hlutur af honum til reksturs og viðhalds. Nú fer Þjóðminjasafnið fram á prósentuhlutfall af aðgangseyrinum til að dekka eftirlits- og rekstrarkostn- að við fleiri hús. Verði farið að nýta húsasafnshúsin með öðrum hætti en nú er gert þarf að fjármagna gæslu og eftirlit með húsunum og lágmarks viðhald. Framlag til viðgerða þessara húsa, frá ríkinu, hefur rokkað fram og til baka þannig að með samningi um prósentuhlut af aðgangseyri í bæ- inn í Glaumbæ yrði til öryggisventill fyrir Þjóðminjasafnið og fjármagnið sem hlytist færi þá í eftirlit m.a. með Grafarlcirkju, Víðimýrarkirkju, Pakk- húsinu á Hofsósi, Nýjabæ á Hólum, Þingstofu og bæjardyrum á Stóru- Ökrum, bæjardyrum á Reynistað og Sjávarborgarkirkju, auk Glaumbæjar. Ég er ekki viss um að við getum fjár- magnað rannsóknir af sama lcrafti og áður ef stór hluti aðgangseyris að gamla bænum í Glaumbæ færi til viðhalds og reksturs annarra húsa í húsasafni Þjóðminjasafnsins hér í Skagafirði, nema framlag eigenda til safnsins verði aukið sem því nemur. Rannsólcnir eru safninu mikilvægar, hvort sem þær snúast um minjaum- hverfið eða munina. Má húast við því að minna fjármagn fáist til rannsókna? Við erum vel sett í dag. Það er mikil eftirspurn eftir þeirri þekkingu sem starfsfólk safnsins býr yfir og við höf- um getað fjármagnað eitt starfsgildi með útseldri vinnu. En þá eru það yfirleitt elcki rannsóknir innan héraðs eða á okkar forsendum. Ef eigendur safnsins, sem eru Sveitafélagið Slcaga- fjörður og Akrahreppur, legðu fram jafnmikið fjármagn til safnsins eins og það yrði af við nýjan samning við Þjóðminjasafnið munu rannsókn- aráherslur ekki breytast. Núna eru tekjur safnsins af aðgangseyri það háar að sveitarfélögin hafa getað dregið hlutfallslega úr framlögum sínum á undanförnum árum. Árið 2017 er gert ráð fyrir 50 milljónum í aðgangseyri og við höfum fengið 10 milljónir í styrki til rannsólcna. Með sama mannskap og með aukinni meðgjöf frá eigendum safnsins ætti safnið að geta haldið áfram öflugu rannsóknarstarfi. Sldpti máli að fá Safnaverðlaunin í fyrra? Við kunnum vel að meta þessa viður- kenningu og já hún skiptir máli og alveg sérstaklega í þeim húsnæð- istengdu áföllum, ef svo má orða, sem við höfum upplifað á þessu ári. Vegna Safnaverðlaunanna í fyrra stöndum við, starfsmenn safnsins, styrkari sem einstaklingar og sem fagfólk í þeirri trú að við höfum verið að gera það rétta, fullviss um að það sáu það ein- hverjir. Það er góð tilfinning. Svo getur verið að safnaverðlaunin hafi vakið það mikla athygli að fleiri vilji njóta góðs af, fýrst safnið gengur svona rosa- lega vel. Getum við hin þá ekki bara tekið við? Er þetta ekki bara orðið gott hjá ykkur? Hér er kominn eins konar legsteinn yfir starfið, takk og bless. Ég hef túlkað verðlaunin sem stuðning og styrk frá safnaumhverfinu, ég finn stuðning fagfólks í safnageiranum og það skiptir verulegu máli. Finnst þér að samstarf meðal safnamanna hafi styrlct þig í starfi? Já, til dæmis bara það að hittast á haustin í Farskólanum hefur orðið til þess að maður þekkir orðið vel til annarra safna og getur hiklaust leitað aðstoðar til samstarfsfólks um allt land. Með fyrsta Farskólanum árið 1988 var lagður grunnur að fagsam- félagi safnafólks. Sá 25 manna hópur sem þar var hefur vaxið upp í 100 og eitthvað manna félag í dag. í ljósi þess sem ég hef upplifað á árinu er augljóst hve mikilvægt það er að geta átt samtal við marga. Hvort sem það eru starfsmenn safna eða fólk sem býr hér á starfssvæði safnsins. Svo eru það stjórnmálamennirnir, sem sumir eru settir í einhverjar nefndir, án þess að hafa nokkurn áhuga eða þekkingu á viðfangsefni nefndarinnar eða þá að þeir hafa ofuráhuga á að gera eitthvað allt annað en skynsamlegast reynist hverju sinni. Á þeim vettvangi þarf greinilega að vera vakandi yfir að allir skilji og sjái hvað felst í áformum safnanna, sem m.a. kemur fram í starfsstefnu þeirra. Það þarf að fýlgja starfsstefnum vel eftir og fylgjast með því að samstarfsfóllc og fulltrúar í nefndum og ráðum, átti sig á við hvað söfnin eru að fást hverju sinni og hvað er framundan, auk þess sem mikil- vægt er að kynna starfsemi safnsins við hvert tækifæri sem til þess gefst. 29

x

Safnablaðið Kvistur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.