Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Side 16

Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Side 16
Fíflaskip Sé tekið mið af þeim vandræðum sem steðjað hafa að kútter Sigurfara, kemur upp í hugann myndin af Fíflaskipinu. En í Ríkinu eftir gríslca heimspekingin Plató, lýsir hann skipi sem hefur á að skipa sundur- lausri áhöfn. Skipstjórinn er stór og sterkur, en heyrir og sér illa. Pekking hans á siglingaleiðum er lítilíjörleg. Aðrir áhafnameðlimir rífast eins og hundur og köttur um það hver eigi að stýra skipinu. Allir telja sig eiga rétt á því að stýra, en enginn hefur lært til þess. Ástandið um borð leiðir til upplausnar, morða og skipstjór- inn er færður í bönd. Enginn virðist slcilja, eftir því sem Plató segir, að til þess að stýra skipi þarf að samþylckja kennivald þess sem stýrir. En til þess að skipi sé siglt farsællega, þarf yfir- gripsmikla þekkingu á veðri, árstíð- um, stjörnum og vindi. Elafa verður í huga að þessi hug- renningartengsl mín við Fíflaskipið eru táknræn og mælskuleg, enda lýsing Plató á Fíflaskipinu dæmisaga. Skipið sem ber flónin má ímynda sér að sé kútter Sigurfari, nema hvað hlutslcipti skipsins er kjánalegra en hið sjófæra skip sem siglir með flónin. Sigurfari hefur strandað í tvennum skilningi; kútter Sigurfara hefur verið komið fyrir uppi á land og á safni, sem að mati sumra þykir eklci álitleg- ur staður fyrir slíkan grip. Öll áform um endurgerð og viðhald skipsins hafa hrunið í tímans rás og fengið skipinu ástand sem gerir það hættu- legt þeim sem vilja vera nálægt því eða stíga um borð. Allir sem þekkja til sjómennsku og safnamennsku vita að flónska getur verið áhrifavaldur að slíku strandi. Þetta flónska strand kútter Sigurfara hefur vakið þá áhugaverðu hugmynd að rífa það niður og breyta í annars- konar upplýsingar. Hugmyndin gerir það að verkum að nú riðjast áhuga- menn um hugmyndina inn í gagna- banka um sögu skipsins og afdrif þess eftir að því hafði verið komið fyrir á núverandi stað. Hvað voru menn að hugsa, er spurning sem kviknar? Hvernig er það hægt að koma málum svona fyrir, eftir áratuga basl, háleitar hugmyndir og milcil fjárútlát? Hefur hvert flónið á fætur öðru komið að verkefninu? Flónahópinn má í ljósi þessara spurninga líta á sem fulltrúa fyrir alla þá sem hafa með einhverj- um hætti lagt lag sitt við strandið á kútter Sigurfara á safninu. En hvað voru menn að hugsa? Forspraklca verkefnisins, jóni M. Guðjónssyni, hefur verið lýst sem „hugsjónamanni“ og sjálfsagt verið að vísa til þess að hann hafi séð fyrir sér nytsemi skipsins fyrir framtíðina. í blaðaviðtali frá 1982 við þáverandi safnstjóra, Gunnlaug Haraldsson, kemur fram að varðveisla skipsins átti að vera „sameiginlegt verkefni þjóðarinnar" að varðveita skipið sem „minjagrip og minnisvarða um eitt merkilegasta tímabil í atvinnu- og útgerðarsögu landsins - skútuöldina.“ Litið var svo á að tímabilið væri „framfaraskeið" í sögu landsins og „hornsteinn þeirrar atvinnubyltingar, sem ætíð síðan hefur verið undirstað- an að því velferðarþjóðfélagi, sem íslensk þjóð býr við í dag“, eins og það er orðað í blaðagreininni. Gamlir sjó- menn og „skútukarlar“ styrktu verk- efnið með fjárframlögum, ásamt fjöl- mörgum öðrum, til að standa straum af viðhaldi Sigurfara.7 Þann 1. júní 1985 var fimm þá lifandi skipverjum kúttersins boðið til sérstakrar athafn- ar eftir endurgerð skipsins og þeim stillt upp við innganginn eins og þetta væri eitthvað afar mikilvægt. Reyndist þetta kannski eitthvað eins og hvert annað grín í ljósi sögunnar? Kannski geta menn tekið undir það að það sé heppilegt að líkja fíflaskipinu við kútter Sigurfara og afdrif þess. Heppileiki þess er hins vegar málum blandinn ef við skoðum sögu safna hér á landi og reyndar víða annars- staðar einnig. Oftar en elcki hafa einstaklingar og hópar fólks farið af stað með háleitar hugmyndir um söfn sem líkja má við huglægt skip. Söfnun og söfnunum er fleygt af stað, eins og skipi er ýtt úr vör. Við slíkar fleytingar eru vonir aðstandenda hástemdar um gjöful aflabrögð. Sáluhjálparsldp Það er kannslci ósanngjarnt að leyfa sér að halda því fram eða nefna að kútter Sigufari og aðkoma fólks að því verkefni sé tengt Fíflaskipinu og áhöfn þess. Þeir sem hreyfa við mótbárum geta alveg eins sagt að heppilegra sé að bregða upp mynd af Sáluhjálparslcipinu eða Örkinni hans Nóa sem lýst er í Sköpunarsögu Gamla testamentisins. Að kútter Sigurfari sé hliðstæður við Örkina, þar sem henni var ætlað að vera lífgjöf þeirra sem um borð fóru í miklum hamförum. Örkin gegndi sínu hlutverki og lifir enn góðu lífi í dag í munnmælum og myndgerðum á þessari mögnuðu sögu. Það fór hins vegar svo um Örkina sjálfa, eftir að hafa strandað á eldfjallahryggnum Ararat á mörkum Tyrklands og Armeníu, að hún týndist, hefur líklega rotnað og samlagast jörðinni. Sögusagnir á Internetinu segja hins vegar frá því að menn séu að leita að leyfum Arkarinnar og að þær hafi fundist, en ég tek því mátulega trúanlega. Að líta á tímann sem hamfarir til jafns við flóðið er ekki fjarri lagi. Við þurfum ekki annað en að skoða sögu safna og starf þeirra sem þar hafa unnið til að bregða upp slíkri samlíkingu. En tíminn hefur grandað mörgum gripunum sem starfsmenn safna hafa eytt ómældum tíma í við að snúa við hjóli tímans. Skútur eins og kútter Sigurfari hafa týnt tölunni, ein af annarri, og einungis örfá eintök í heiminum af þessum tækjum hafa varðveist. Og nú blasir við að tíminn hafi runnið út þegar kemur að kútter Sigurfara, að hverfa til forföður síns, Arkar Nóa, á eldfjallaeyjunni íslandi. Örkin hans Nóa veitti lífgjöf þeim sem um borð fóru, fjölskyldu Nóa og ógrynni af dýrategundum. Þeir sem farið hafa um borð í verkefninu um kútter Sigurfara og veitt því brautargengi, hafa hingað til trúað því sama og þeir sem fóru um borð hjá 16

x

Safnablaðið Kvistur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.