Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Page 18

Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Page 18
SAFN UM MARGBREYTILEIKA MANNSHUGANS Safh um sálina Hét Dolhuys er safn í Haarlem í Hollandi sem vekur fólk til umhugsunar um geðheil- brigðismál og vinnur gegn fordóm- um sem beinast gegn þeim sem veikjast. Safnið var opnað árið 2005 og er hýst í byggingu frá 14. öld þar sem starfrælct var heilbrigðisstofnun í um 700 ár. Par var meðal annars vistað fóllc með smitsjúkdóma eins og holdsveiki, fólk með geðsjúk- dóma, eða heilabilun. Á heimasíðu safnsins er greint frá því að staðsetn- ing safnsins í þessu húsi sé tvíbent. Annars vegar er hún vitnisburður um umhyggju aðstandenda gagnvart þeim sem minna máttu sín. Hins vegar stendur hún sem minnisvarði um þá hugmynd að loka þurfi inni og einangra þá frá öðrum sem ekki tilheyra eða trufli samfélagsgerðina. Markmið safnsins er að leiða í ljós margbreytileikann í samfélagi manna í nútíð og fortíð og að skapa umræðu um staðalímyndir. Sett er spurningar- merki við það hvað þurfi til þess að teljast vera eðlilegur. Safnið sker sig frá öðrum söfnurn á sama sviði sem eru í húsnæði sem var áður nýtt sem meðferðarstaður fólks með geðsjúk- dóma. Algeng nálgun þeirra safna er að fjalla um sögu geðlækninga með því að sýna meðferðartæki og lýsa framvindu geðlæknisfræðinnar. En hér er reynsla af meðferð og geðlækn- ingum saga einstaklinganna, sögð af þeim sjálfum og miðlað á safninu. Grunnsýningin inniheldur meðal annars skápa sem eru innréttaðir af þeim og sem innihalda hluti úr eigu þeirra sem hafa reynslu af geðsjúk- dómi og samansafni hlutanna fýlgir frásögn af veikindum. Inni í einangr- unarklefa er spiluð hljóðupptaka sem lýsir upplifun þeirrar sem hefur verið sett í einangrun. Meðlíðan er líka miðlað í kvikmynd eða með trúnaðar- samtali í gegnum símtól. Á safninu er dregið úr vægi mark- anna á milli þess að vera heilbrigður og óheilbrigður. Á tölvuskjá eru gerð aðgengileg próf sem notuð hafa verið í gegnum tíðina til að mæla frávik geðheilbrigðis. Með því að taka próf í tölvunni kemur í ljós að samfélagsbreytingar hafa áhrif á það hvers konar frávilc teljast samþykkt hverju sinni. í einu sýningarrýminu er neonljósaskilti sem birtir á víxl andheitin óeðlilegur og eðlilegur. Með þeim birtast ljósmyndir af fólki á skjám sem stillt er upp til móts við áhorfandann eins og honuni sé ætlað að mynda sér skoðun á því hver sé eðlilegur og hver elcki. í garði safnsins eru skilti með orðunum klikkaður, galinn, brjálaður, blásin upp í ofurstærð. Orðin voru áður notuð af fagfólki við umfjöllun um geðsjúk- dóma en kalla núna fram neikvæð hugrenningatengsl og eru til dæmis notuð þegar einhver ætlar sér að auð- mýkja annan. Pau eru áminning um þá merkimiða sem settir eru á fólk. Safnið á í samstarfi við stofnanir, hópa og einstaklinga og styður við endurhæfingu fólks í bata. Safnið leggur áherslu á sýningar á list jaðar- listamanna (fr. art brut / e. outsider art). Listaverk eru stór hluti safneignar safnsins og verk eru fengin að láni á breytilegar sýningar. Með því að sýna og koma listamönnum með geðröskun á framfæri, styður safnið við listsköp- un þeirra. Auk sýninga safnsins í eigin húsnæði, hefur það frumkvæði að stærri listsýningum utan safnsins, bæði á landsvísu og á alþjóðavettvangi þar sem umfjöllunarefnið er list fólks sem þekkir geðraskanir af eigin raun. Safnið hefur frá upphafi unnið með einstaklingum í bata að sjálfseflingu þeirra. Um er að ræða sjálfboðaliða- starf í safninu við móttölcu gesta, sem aðstoðarmenn forvarða, vinna við leið- sögn, í safnbúð, við safneignina, s.s. við 18

x

Safnablaðið Kvistur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.