Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2013, Page 33

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2013, Page 33
33Ljósmæðrablaðið - júní 2013 Norðurlandsdeild Norðurlandsdeild Ljósmæðrafélags Íslands var stofnuð 30. júlí 1968. Skráðir félagar eru 47 talsins og eru þeir búsettir víða um Norðurland. Starfsemi deildarinnar hefur verið með svipuðu sniði undanfarin ár. Haldinn er einn aðalfundur og einn til tveir fræðslu- fundir á ári, þar sem ljósmæðrum finnst alltaf gaman að koma saman og ræða málin. Stjórnarmeðlimir hafa að miklu leyti samskipti í gegnum tölvupóst og síma auk þess að hittast af og til. Aðalfundur hefur oftast verið haldinn á Akureyri en stöku sinnum hefur hann þó verið haldinn annars staðar á Norðurlandi. Í þeim tilfellum hefur tækifærið verið notað til að heimsækja ljósmæður á öðrum stöðum, sjá aðstöðu þeirra og hafa gaman um leið. Á árinu 2012 voru haldnir tveir fundir, aðalfundur og aðventufundur. Aðalfund- urinn var haldinn á Siglufirði í maí þar sem ljósmæður fóru saman í rútu þangað og skoðuðu sjúkrahúsið þar. Eftir venju- bundin fundarstörf var borðaður góður matur á veitingastaðnum Rauðku. Þar voru tvær ljósmæður gerðar að heiðurs- félögum, þær Ása Marinósdóttir og Heba Ásgrímsdóttir. Aðventufundurinn var sl. desember þar sem ljósmæður komu saman og borðuðu og skiptust á jólagjöfum. Einnig vann stjórnin í því að safna peningastyrkjum fyrir fæðingardeildina á Akureyri til kaupa á endurlífgunarborði fyrir nýju fæðingarstofurnar sem teknar voru í notkun sumarið 2012. Gekk það framar vonum. Félagar í NLMÍ er 47 og í stjórn eru Hulda Magnadóttir, formaður, Birgitta Níelsdóttir, varaformaður, Halla Harðar- dóttir, meðstjórnandi, Eva Laufey Stef- ánsdóttir, gjaldkeri, og Sigrún Rósa Vilhjálmsdóttir, ritari. Efri röð: Birgitta, Hrafnhildur, Anna María, Inga Vala, Ása, Sía, Malla, Eva Laufey, Gunnjóna, María, Hallfríður og Ásrún. Fyrir framan:Inda, Hulda, Nína, Halla, Inga og Freyja. Gunnjóna að segja frá staðháttum á Siglufirði

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.