Stjarnan - 01.01.1932, Blaðsíða 1
STJARNAN
-g^.
Nýárs óskir
Á þessum áramótum, þegar margir ganga í blindni
og sjá ekkert Ijós fram undan, þegar stjórnmálamenn
örvæntast um að friður geti haldist til lengdar, verzl-
unarmenn efast um betri tíma, bankamenn eru á-
hyggjufullir, vegna þess að litlar líkur eru til þess að
fjármálum heimsins verði nokkurn tíma kipt í samt
lag aftur, verkamannaleiðtogar sjá ekki fyrir afleiÖ-
ingunum af stríðinu milli verkalýðsins og auðvaldsins
og sannkristnir menn sjá, að ástandið á trúmálasvið-
inu innan kirknanna versnar en ekki batnar, stafar
Stjarnan geislum sínum inn á mörg heimili vestan hafs
og austan með alúðar nýárs óskum til allra kaupenda.
Ósk hennar er að hann, sem sendir himintunglin með
reglu út eftir ákveðnum brautum, og talar til hjartna
manna bæði með rödd vetrarbylsins og sumarblæsins,
þegar náttúran stendur í blóma sínum, hvísli friðarmáli
að þér, kÉeri vinur. Enn fremur, að hann, sem getur
breytt ríki náttúrunnar eftir vild sinni, einnig breyti
kringumstæðum þínum til þess betra, að þetta nýja ár
verði þér í alla staði farsælt og blessunarríkt.
—D. G.
I
J