Stjarnan - 01.01.1932, Síða 15
STJARNAN
15
Smávegis
Kína þarfnast 25,000,000 dollara næsta
vetur, til aÖ hjálpa fólkinu í héruðum
þeim, sem flóÖiÖ gekk yfir, eftir því sem
T. V. Soong, f jármálaráÖherra Kínverja,
og formaÖur líknarstarfseminnar í flæði-
löndunum, skýrir frá.
í veizlu einni, sem haldin var drukku
menn mikið af víni. Ungri stúlku í sam-
kvæminu var boðið vín, en hún þáði það
ekki.
“Skipaði ekki Páll Tímóteusi að neyta
lítils víns vegna maga síns,” spurði mað-
urinn, sem bauð henni og gjörði sig held-
ur merkilegan.
“Það getur verið,” svaraði stúlkan, “en
mér er ekki ilt í maganum.”
Fulltrúi Ameríkumanna í Þýskalandi á
að hafa aðsetur sitt í Blucher kastala í
Berlín. Bandarikin hafa keypt kastalann
fyrir $1,705,406 þar verða einnig allar
s'krifstofur Bandaríkjanna.
Sagt er að um 200 miljónir manna, eða
helmingur allra íbúa Kínaveldis, séu at-
vinnulausir. Þeir draga fram lífið sem
best þeir geta, vinna dálítið þegar kostur
er á, betla, eða njóta styrks hjá ættingjum
sínum.—
Bandaríkin nota hér um bil einn fimta
hluta af öllum sykri, sem framleiddur er
í heiminum.
California hefir nokkru fleiri automo-
bíla heldur en einn fyrir hverja þrjá af
innbúum ríkisins.
Ráðherra Þýzkalands, Paul von Hind-
enburg, fékk 150,000 bréf síðastliðinn af-
mælisdag sinn. Hann var þá 84 ára að
aldri.
STJARNAN
kemur út mánaðarlega
Útgefendur: The Western Canadian
Union Conferenee S.D.A. Stjarnan kost-
ar $1.50 um áriS I Canada, Bandaríkj-
unum og á Islandi. (Borgist fyrirfram).
Ritstjóri og ráðsmaður:
DAVÍÐ GUÐBRANDSSON.
Skrifstofa:
306 Sherbrooke St., Winnipeg, Man.
Phone: 31 708
Sumstaðar í Indíana U.S. borga menn
giftingarleyfi með hveiti, og bifreiða-
verzlun ein í Arkansas auglýsir að hún
taki móti bómull sem borgun fyrir bif-
reiðar.
Það er alkunnugt, aö kettir sjá betur i
myrkri heldur en menn, en hve mikið sjón
þeirra er skýrari var fyrst fundið út af
náttúrufræðingi einum, Elrich Murr, við
Königsberg háskóla. Tilraunir hans
sýndu að sjón kattarins í myrkri er fer-
tugfalt skýrari heldur en sjón mannsins.
Bandaríkin eyddu 1,127,651,670 doll-
urum beinlínis eða óbeinlínis til hermála
6 fyrstu mánuði þessa yfirstandandi árs.
Uítið seglskip, “Santa María,” útbúið
eins og Santa María, sem Kólumbus not-
aði er hann uppgötvaði Ameríku, leggur
af stað frá Palos einhvern tíma í febrúar.
Skipstjórinn verður Julio Guillen 35 ára
að aldri. Með honum fara 25 spánverskir
sjómenn. Þeir ætla að fylgja sömu leið
og Kólumbus fór. Með sér ætla þeir aS
hafa nægan forða af brauði upp á tvo
mánuði, og nóg vatn fyrir 5 mánuði. Þeir
vonast eftir að sjá strendur Santa Do-
mingo innan 50 daga frá því þeir fara af
stað. Skipið á að flytja stein frá La
Rapida klaustri til að setja í vita þann,
sem á að reisa þar til minningar um
Kólumbus.