Stjarnan - 01.01.1932, Page 8

Stjarnan - 01.01.1932, Page 8
8 STJARNAN sér aÖ bera fram slíkan spádóm? Fjöldi vantrúarmanna hafa ritaÖ óteljandi bæk- ur á móti Biblíunni. En í 2,000 ár hefir ekki einn einasti vantrúarmaður hrakiö þennan spádóm um Týrus. Volney, hinn franski vantrúarmaður segir jafnvel frá, að hann hefði heimsótt blettinn, þar sem borgin hefði staðið, og séð fiskimenn þurka net sín þar, alveg eins og spádóm- urinn sagði að þeir mundu gjöra. Traveis 2. bindi, bls. 212). Hvert ár, hver dagur, hver mínúta, sem grundvöllur Týrusar stendur í auðn, hrekur staðhæfingar van- trúarmanna um að spádómar Biblíunnar séu óljósir eða að þeir hafi verið gefnir eftir að viðburðirnir áttu sér staS. Einhver mun hugsa, “vel ágizkað,” en það er ekki fullnægjandi úrlausn, sérstak- lega vegna þess, að enginn vantrúarmað- ur, enginn, nema rithöfundar Biblíunnar, hafa gefið einn einasta áreiðanlegan spá- dóm, sem náð hafi yfir fleiri hundruð ára, viðvíkjandi nokkurri borg i heimi. Hvernig stendur á því, að rithöfundar Biblíunnar hafa getað gizkað á og það ná- kvæmlega rétt, hvað mundi við bera þús- undir ára fram í tímann?” Hr. Einarsson stóð upp og svaraöi: “Það er ekkert nema náttúrlegt, að rit- höfundur, sem horfir á eyðilagða borg, búist við og segi fyrir að hún verði aldrei bygð upp aftur.” “Slík ályktun, hversu náttúrleg sem hún virðist, hefði strax komið spámann- inum í vandræði,” svaraði hr. Djarfur. “Vér skulum taka til dæmis, hefði Eze- kíel beint athygli sinni að Sídon, sem var aðeins 30 mílur frá Týrus og miklu eldri borg. Sídon hafði svo iildum skifti borið vott um afturför, meðan Týrus var í mikl- um blóma. Ef vér fylgjum skoðun þinr.i viðvíkjandi tímanum hvenær spádómur Ezekíels er gefinn, þá styrkir það mjög málstað vorn, því þótt Sídon væri á aft- urfararskeiði árið 530 f. Kr., þá var hún tekin og eyðilögð af Artaxerxes Ochus Persa konungi árið 351 f. Kr. “Samkvæmt skoðun þinni hr. Einars- son, þá var spádómur Ezekíels gefinn miklu seinna, að minsta kosti eftir tíma Alexanders mikla, svo ef spámaðurinn hefði bygt á líkindum árið 330 f. Kr., eins og þú gjörir ráð fyrir, þá hefði hann sagt að Sídon mundi aldrei úr rústum rísa, því ekkert virtist líklegra. Sídon er enn við lýði eftir 20 aldir, og hefir nú um 20,000 innbyggjendur. Borgin lætur jafnvel enn- þá talsvert til sín taka. Nú skulum vér lesa spádóm Ezekíels um þessa borg. “Orð Drottins kom til mín svo hljóð- andi: Manns son, snú þér að Sídon og spá gegn henni, og seg: Svo segir herr- ann Drottinn, sjá, eg skal finna þig Sí- don . . . . og eg mun senda drepsótt í hana og blóðsúthelling á stræti hennar, og menn skulu í henni falla helsærðir fyr- ir sverði, er alla vega skal yfir hana ganga.” Ez. 28:21-23. Takið eftir því að ákvæðið gegn Sídon var ekki algjör eyðilegging, eins og spáð var um Týrus, heldur blóðsúthelling og særðir menn fallnir á strætum hennar, og sverð er alla vega mundi yfir hana koma. Hún átti að líða mikið en eklci að verða eyðilögð. Engin borg í allri mannkyns- sögunni hefir þolaö áhlaup og umsátur eins oft of Sídon, að undtntekinni Jerú- salem. Einu sinni kusu zjo,ooo íbúa hennar heldur að deyja en að falla í hendur óvina sinna. Þeir lokuðu sig inni ásamt konum sínum og börnum, kveiktu í húsunum og fórust þannig í eldinum. Þeir af inn- byggjendum borgarinnar sem fjarlægir voru þegar þetta kom. íyrir, bygðu borg- ina upp að nýju, en erfiðleikar hennar héldu áfram. Á krossferða tímunum var Sídon hertekin fleiri skifti, og altaf rænd. Árið 1840, þegar Ibrahim Pasha var rek- inn burt af Sýrlandi, þá réðust herflotar Austurríkis, Englands og Tyrklands á móti borginni, og Napier sjóliðsforingi náði henni á vald sitt. Aftur voru blóðs- úthellingar og fallnir menn á strætum hennar. En þrátt fyrir það þótt hún hafi liðið svo mikið, veriö svo oft eyðilögð og bygð upp aftur, þá hefir hún haldið á-

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.