Fréttablaðið - 28.01.2019, Síða 18
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: GoRed2019
Fyrirmyndin var fengin frá alþjóðlegum samtökum sem kenna sig við GoRed.
Hjarta- og æðasjúkdómar herja
ekki síður á konur en karla. Ein-
kenni sjúkdómsins koma ekki
endilega eins fram hjá báðum
kynjum, en oftar en ekki höfðu
rannsóknir á hjartasjúkdómum
miklu fremur beinst að körlum en
konum.
Það að vitneskjan var minni
þegar kom að konum og hvernig
sjúkdómurinn getur birst bitnaði
oft á þjónustu við þær. Þessi stað-
reynd hefur verið mörgum konum
til baga og nokkrum dýrkeypt.
Því var stofnun samtakanna fyrst
og fremst hugsuð í því skyni að
stofna sjóð. Hann yrði nýttur til að
auka rannsóknir, varðandi hjarta-
og æðasjúkdóma hjá konum, um
leið og fræðslu og fyrirbyggjandi
aðgerðum væri beitt.
Þessi fámenni hópur sem kom
saman í upphafi hafði ekkert
fjármagn á bak við sig – bara
brennandi áhuga fyrir framgangi
málsins.
Síðastliðin ár hafa verið haldnar
samkomur, oftast í kringum
konudaginn, og þá einnig skrif-
aðar greinar í blöð – þar sem það
nýjasta úr heimi vísindanna á
þessu sviði var kynnt – um leið og
margt annað áhugavert hefur verið
í boði.
Konur hafa einnig komið fram
og miðlað af reynslu sinni af sjúk-
dómnum og sagt sögur sínar sem
margt er hægt að læra af.
Í tímans rás hefur bæst við
fjölbreytt flóra samtaka sem hafa
sömu markmið – sama áhuga á
auknu heilbrigði kvenna og betri
þjónustu þeim til handa.
Nú í ár er boðið upp á einstak-
lega fróðlega og uppbyggilega
dagskrá. Þar fáum við að heyra
áhugaverðar sögur – um baráttu og
stóra sigra.
Þetta er samkoma sem ég vona
að áhugasamir láti ekki fram hjá
sér fara. Hvað varðar stóra sjóðinn,
sem við erum enn að safna í , þá
hefur hann aldrei orðið digur af
fjármunum. En við eigum mörgum
góðum sjálfboðaliðum mikið að
þakka.
Það sem áunnist hefur er fyrst og
fremst vitundarvakning, aukinn
skilningur og samstaða þeirra sem
málið varðar. Í ár er áranna tíu
minnst með miklum glæsibrag
með fjölbreyttri dagskrá.
Ég treysti því og trúi, að það
verði margir sem láti þetta mál sig
varða, nú sem fyrr, því enn getum
við stefnt að enn betri árangri í
forvörnum, fræðslu og þjónustu.
Ég trúi því að Íslendingar geti
verið í fararbroddi í þessu verk-
efni. Sjáumst heil og hress í Hörpu
föstudaginn 1. febrúar.
Samtökin eru komin til að vera
og gera.
Ingibjörg Pálmadóttir,
verndari GoRed samtakanna á Íslandi
Afmælishátíð
Tíu ár eru síðan áhugasamir heibrigðisstarfsmenn tóku
þá ákvörðun að stuðla að vitundarvakningu á Íslandi um
varnir kvenna varðandi æða og hjartasjúkdóma.
Ingibjörg Pálmadótir,
verndari GoRed samtakanna
á Íslandi
Hjarta- og æðasjúkdómar herja ekki síður á konur en karla. NORDICPHOTOS/GETTY
Þórdís Jóna
Hrafnkelsdóttir,
fráfarandi for-
maður GoRed
Ísland
Rannveig
Ásgeirsdóttir,
formaður 1.6
fyrir heilbrigði
kvenna
„… og síðan eru liðin mörg ár“ segir
í textanum. Þau voru býsna fljót
að líða árin 10 sem GoRed hefur
verið við lýði og ef við lítum yfir
farinn veg þá hefur ótrúlega
margt breyst á þeim tíma.
GoRed var stofnað
af baráttufólki fyrir
betri heilsu og líðan
kvenna með hjarta-
sjúkdóma, örlítið lóð
á vogarskál umræðu
og til að opna augu
bæði almennings og
fagfólks á því hvernig
konur, ólíkt körlum,
upplifðu sín sjúkdómsein-
kenni hvort sem þau voru vegna
sjúkdóms sem var skammt á veg
kominn eða skyndileg og alvarleg
veikindi á borð við hjartaáfall.
Þekkingin var oft gloppótt þegar
kom að hjartasjúkdómum hjá
konum. Á þessum 10 árum hefur
umræða um heilbrigði kvenna
náð nýjum hæðum. Nú hefur hver
rannsóknin af annarri litið dagsins
ljós þar sem skoðuð er hjartaheilsa
kvenna í ýmsu tilliti og þekk-
ingunni fleygir fram. Þetta varðar
algenga sjúkdóma sem tengjast
bæði erfðum og lífsstíl líkt og
sykursýki, sem er afar mikilvægur
áhættuþáttur fyrir einmitt konur
hvað varðar kransæðastíflu, og í
auknum mæli áhrif áfalla og álags
Megum ekki
sofna á verðinum
á hjarta og æðakerfi og hvernig
streita og hraði í nútímasamfélagi
knésetur áður hrausta og dugmikla
einstaklinga. Það er í sjálfu sér ekki
GoRed einu og sér að þakka að
umræða um þessa hluti hefur tekið
stakkaskiptum, en það er sannar-
lega hluti af byltingunni í umræðu
um heilsu kvenna. Það hefur
verið tekið eftir rauða deginum,
fyrirlestraröðum, greinaskrifum í
blöðin, fyrirtækjaheimsóknum og
ljósaverkunum – allt þetta sem við
höfum gert til þess að ná athygli
landans og fræða hann. Við megum
aldrei sofna á verðinum og þurfum
að gera eftirfylgni við hjartaheilsu
okkar og heilbrigði að sjálfsögðum
hlut. Við eigum að hlusta á líkam-
ann og þekkja tölur hans; blóð-
þrýsting, blóðfitur og blóðsykur.
Þær eru okkar leiðarvísir um ástand
okkar og við þurfum að geta brugð-
ist við ef þær tölur verða okkur
óhagstæðar. Við þurfum að hlusta á
líkamleg einkenni álags og streitu.
Við erum ekki þess umkomnar að
sinna vinum og mökum, öldruðum
ættingjum eða skutla börnum,
elda, vinna og komast í gegnum
allt sem á daga manns drífur ef við
erum ekki heilbrigðar. Við getum
ekki slegið heilsu okkar á frest og
verðum að gera okkar innri
heilsuskoðun að föstum
lið í lífi okkar – allra
vegna. Á afmælisár-
inu tökumst við í
hendur, GoRed
vitundarvakning
um hjartasjúk-
dóma kvenna
og ungur félags-
skapur á Íslandi
1.6 fyrir heilbrigði
kvenna, sjálfboðaliða-
samtök og systurfélag 1.6
milljonerklubben í Svíþjóð.
Markmið þeirra samtaka er að
styðja við fræðslu um hvaðeina er
varðar heilbrigði kvenna og fjöl-
skyldna. Sterkur samhljómur er því
með þessum tveimur félögum og
vegna samstarfsins hefur yfirbragð
fyrirlestra á ráðstefnu GoRed í
Hörpu 1. febrúar nk. fengið víð-
tækari skírskotun, en auk þess sem
fjallað er um hjartaheilsu fáum við
innsýn í áfallasögu kvenna, frásögn
konu í kulnun og að heyra um
magnaða lífsbreytandi áskorun.
Við hlökkum til að sjá sem flesta
á ráðstefnunni í Hörpu á GoRed
deginum föstudaginn 1. febrúar nk.
og óskum ykkur öllum heilbrigðis
og hamingju.
Helga Margrét
Skúladóttir, for-
maður GoRed
Ísland
Kopar & Zink ehf
Reykjavíkurborg / borgarbókhald
Hafnarfjarðarhöfn
Fastus ehf
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur
Nói-Síríus hf
ÁTVR Vínbúðir
Garðabær
BBA Legal ehf
Súðavíkurhreppur
Pökkun og flutningar ehf
Síldarvinnslan hf
Landsnet hf
SFR Stéttarfélag í almannaþjónustu
Íslenskir aðalverktakar hf
Olíudreifing ehf
Geysir shops ehf
Marz sjávarafurðir ehf
Meitill-GT Tækni ehf
Verslunarmannafélag Suðurnesja
Verslunarskóli Íslands
Bati - sjúkraþjálfun ehf
Garðs Apótek ehf
Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja,SSF
Hagkaup
Pólarhestar ehf 8931879 Stefán
Ginger ehf
Stólpi gámar ehf
Danica sjávarafurðir ehf
Snæfellsbær
Snerpa,íþróttafélag fatlaðra
Park Inn by Radisson Keflavik
Menntaskólinn á Egilsstöðum
Kökugerð H.P. ehf
Fasteignasala Mosfellsbæjar ehf
Austurhlíð ehf, bílapartasala
Stakkavík ehf
Eskja hf
Góa-Linda sælgætisgerð ehf
Landssamtök lífeyrissjóða
Bolungarvíkurkaupstaður
Nonni litli ehf
Lögfræðistofa Reykjavíkur ehf
JS-hús ehf
Egersund Ísland ehf
Gunnars ehf
Mosfellsbakarí hf
Reiknistofa fiskmarkaða hf
Rarik ohf
Gjögur hf
Visitor, ferðaskrifstofa
VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna
Raftákn ehf
Grafía-stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum
Nýja bílasmiðjan hf
Fögrusteinar ehf
Verkvík - Sandtak ehf
Reykjavík Helicopters ehf
Sveitarfélagið Ölfus
Norlandair ehf
Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar
FISK seafood
Hafnarfjarðarbær
Brunavarnir Suðurnesja
Seðlabanki Íslands
Loðnuvinnslan hf
Hvalur ehf
Þökkum stuðninginn
2 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . JA N ÚA R 2 0 1 9 M Á N U DAG U RHJARTAÐ ÞITT
2
8
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
7
-0
5
3
0
2
2
2
7
-0
3
F
4
2
2
2
7
-0
2
B
8
2
2
2
7
-0
1
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K