Fréttablaðið - 06.02.2019, Page 36

Fréttablaðið - 06.02.2019, Page 36
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 6. febrúar 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | Stjórnar- maðurinn 05.02.2019 Kerfið sem Bolli Héðinsson taldi að þyrfti að afnema er í raun grundvöllur fyrir því að sjávar útvegurinn getur greitt milljarða króna á hverju ári í veiðigjald og aðra skatta. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn. Hafðu samband því þinn árangur er mikils virði. Hámarkaðu árangurinn þinn og verðmæti með því að nýta þér fjölbreytta þekkingu og víðtæka reynslu PwC á öllum sviðum rekstrar Verðmæti Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar Lilja Alfreðsdóttir menntamála- ráðherra kynnti á dögunum fjölmiðlafrumvarp sitt. Helstu nýmælin eru þau að fjölmiðlar geta átt von á endurgreiðslu 25% ritstjórnarkostnaðar úr ríkissjóði. Hver fjölmiðill fær að hámarki 50 milljónir en áætlað er að heildar- kostnaður nemi 300 til 400 millj- ónum. Svo virðist sem hindranir til að eiga rétt á endurgreiðslu séu fremur lágar. Prentmiðlar skulu koma út að minnsta kosti 48 sinnum á ári, en vefmiðlar miðla nýju efni daglega. Varla er hægt að segja annað en að auðvelt sé að uppfylla síðarnefnda skilyrðið. Það er nefnilega himinn og haf á milli þess að halda úti frétta- stofu í hefðbundinni mynd með tilheyrandi yfirbyggingu og kostnaði, eða að skrifa stöku fréttir eða skoðanagreinar á netið. Varla verður sagt að hér á landi séu reknar f leiri en þrjár fréttastofur í einkaeigu. Hjá Sýn, Morgun- blaðinu og Fréttablaðinu. Það er heldur ekki svo að þeir sem halda út þessum fréttastofum græði á tá og fingri á kostnað minni keppi- nauta. Þetta eru stórir vinnu- staðir sem veita umgjörð utan um rótgróin vinnubrögð og sinna almannaþjónustuhlutverki. Slíkt kostar og með tilkomu nýmiðla eins og Facebook og YouTube, auk áframhaldandi dekurs við RÚV, hefur rekstrarumhverfið orðið sífellt erfiðara. Einkaaðilar standa ekki í slíku til lengdar. Viðfangsefnið ætti að vera að spyrja sig hvort áfram sé æskilegt að reknar verði öf lugar fréttastof- ur á Íslandi. Einyrkjar og bloggar- ar verða alltaf í einhverri mynd, og ekki verður séð að sérstök vöntun hafi verið á slíku framtaki síðustu ár. Þvert á móti. Því virðist sem Lilja hafi misskilið vandamálið með frumvarpi sínu. Ef henni væri alvara með að viðhalda starfsemi öf lugra fréttastofa ætti hún að einblína á að styrkja þá miðla sem halda úti öf lugri starfsemi. Langstærsta búbótin fyrir þá miðla væri auðvitað ef ríkið hætti áratugadekri sínu við RÚV sem á ári hverju tekur ekki bara á fimmta milljarð af skattborgurun- um, heldur bætir um betur og selur auglýsingar fyrir rúmlega tvo til viðbótar. Ef Lilju væri alvara með að styðja einkamiðla myndi hún byrja á því að taka RÚV út af aug- lýsingamarkaði. Með því mætti berja í mestu markaðsbrestina. Vitlaust vandamál  Ragnar Jónasson, sem hefur starfað sem yfirlögfræðingur GAMMA Capital Management frá árinu 2015, hefur ráðið sig yfir til Arion banka. Þar mun hann taka til starfa á fjárfest- ingabankasviði bankans, samkvæmt heimildum Markaðarins. Ragnar, sem er jafnframt stunda- kennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík, var forstöðumaður skrifstofu slitastjórnar Kaupþings á árunum 2009 til 2015. Þar áður var hann forstöðu- maður lögfræðiráðgjafar Arion banka, þá Nýja Kaupþings, frá 2008 til 2009 Samhliða störfum sínum í fjármála- geiranum hefur Ragnar fengist við ritstörf og þýðingar en útgáfuréttur á spennuskáldsögum hans hefur verið seldur til fjölda landa á undanförnum árum. – hae Ragnar Jónasson til Arion banka  Ragnar Jónasson. 0 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 3 F -A 0 3 4 2 2 3 F -9 E F 8 2 2 3 F -9 D B C 2 2 3 F -9 C 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 5 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.