Fréttablaðið - 06.02.2019, Page 37

Fréttablaðið - 06.02.2019, Page 37
Staðalbúnaður í Comfort útgáfu er meðal annars: 16” álfelgur, leiðsögukerfi með Íslandskorti, þokuljós, miðstöð með loftkælingu, brekkuhemlun (eingöngu í 4x4), hraðastillir með hraðatakmörkun, fjarlægðarskynjarar að aftan, neyðarhemlunarhjálp, start/stopp búnaður, skyggðar rúður að aftan, hiti í framsætum. Aukalega í Prestige útgáfu: 17” álfelgur, Multiview 360° myndavélakerfi, sjálfvirk miðstöð með loftkælingu, lykillaust aðgengi, leðuráklæði á sætum. Nýr Dacia Duster Gerðu virkilega góð kaup! Verð frá: 3.690.000 kr. E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 2 0 2 D a c ia D u s te r 5 x 2 0 a lm e n n f e b BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 BORÐTENNIS „Þetta er ansi langur tími. Fyrst var keppt í efstu deild karla 1973 og fyrstu þrjú árin vann Örninn. Svo tók við sigurganga KR á árunum 1976-94 og ég er nokkuð viss um að faðir minn hafi verið í öllum þeim liðum. Frá 1995 til 2007 vann Víkingur alltaf en síðan þá hafa Víkingur og KR skipst á að vinna,“ sagði Pétur Marteinn Urbancic Tómasson í samtali við Fréttablaðið. Pétur er hluti af liði BH sem tryggði sér um helgina sigur í Raf- landsdeild karla í borðtennis. Þetta er í fyrsta sinn sem annað lið en KR eða Víkingur vinnur efstu deild í karlaflokki síðan 1975. Auk Péturs var sigurlið BH skipað bróður hans, Jóhannesi Bjarka Urbancic Tómas- syni, Birgi Ívarssyni og Magnúsi Gauta Úlfarssyni. Þjálfari þeirra BH- inga er Tómas Ingi Shelton. „Við erum 5-6 sem æfum með meistaraflokki karla og svo er slatti af krökkum í yngri flokkunum,“ sagði Pétur. Höfuðstöðvar BH eru í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði en Pétur segir að félagið sé nánast búið að sprengja æfinga- aðstöðuna utan af sér. Það horfi þó til betri vegar í þeim efnum. Bræðurnir Pétur og Jóhannes léku áður með KR sem og Tómas þjálfari þeirra. Magnús Gauti, sem er uppal- inn hjá BH, er ríkjandi Íslands- meistari í einliðaleik karla en hann varð fyrsti BH-ingurinn sem vinnur þann titil. Birgir hóf ferilinn hjá HK en færði sig síðan yfir í BH. Hann var fjarri góðu gamni um helgina þar sem hann er við æfingar hjá sænsku liði. „Þetta eru nokkrar túrneringar og í hverri þeirra spilarðu tvo liðaleiki. Í heildina eru þetta tíu leikir en þú spilar tvisvar sinnum við öll liðin. Félögin skiptast á að halda túrn- eringarnar,“ sagði Pétur um fyrir- komulag deildarkeppninnar. BH-ingar unnu allar tíu viður- eignir sínar í deildinni og fengu alls 20 stig, fjórum stigum meira en Víkingur. KR varð í 3. sæti með tólf stig og HK í því fjórða með sex stig. Þessi lið komust í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn. Víkingur á þar titil að verja en liðið bar sigur- orð af BH í úrslitunum í fyrra. Í undanúrslitum í karlaflokki mætast BH og HK annars vegar og Víkingur og KR hins vegar. Kvenna- lið BH tók í fyrsta sinn þátt í efstu deild og endaði í 4. sæti. Þær mæta Víkingum í undanúrslitum. Vík- ingar urðu deildarmeistarar með 18 stig. Lið Víkings skipuðu þær Nevana Tasic, Stella Karen Krist- jánsdóttir, Þórunn Ásta Árnadóttir og Agnes Brynjarsdóttir. Sú síðast- nefnda er aðeins tólf ára gömul og er yngsti deildarmeistarinn í borð- tennis hér á landi. „Þetta var einu sinni sami titill- inn, deildar- og Íslandsmeistara- titillinn, en þessu var breytt 2010. Þá var úrslitakeppninni bætt við,“ sagði Pétur. Hann hefur trú á því að BH nái að landa Íslandsmeistara- titlinum; þeim fyrsta í sögu félags- ins. „Ég er nokkuð bjartsýnn. Við fórum í gegnum deildina án þess að tapa leik. Okkar leikmenn voru allir með góða tölfræði. Magnús Gauti tapaði t.a.m. ekki stökum leik,“ sagði Pétur en undanúrslitin fara fram 6. apríl og úrslitin þrettánda sama mánaðar í Strandgötunni. ingvithor@frettabladid.is Rufu 43 ára einokun KR og Víkings  BH varð um helgina deildarmeistari karla í borðtennis. Hafnarfjarðarliðið rauf þar með 43 ára einokun KR og Víkings í efstu deild. Fram undan er úrslitakeppni fjögurra liða um Íslandsmeistaratitilinn. BH er félag á uppleið og á Íslandsmeistarann í einliðaleik karla. Deildarmeistararnir í borðtennis sem voru krýndir um helgina. Frá vinstri: Stella Karen Kristjánsdóttir, Agnes Brynjars- dóttir, Nevena Tasic, Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, Magnús Gauti Úlfarsson, Pétur Marteinn Urbancic Tómasson og Tómas Ingi Shelton (þjálfari BH). Á myndina vantar Þórunni Ástu Arnfinnsdóttur og Birgi Ívarsson. MYND/BTÍ S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13M I Ð V I K U D A G U R 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 0 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 F -9 6 5 4 2 2 3 F -9 5 1 8 2 2 3 F -9 3 D C 2 2 3 F -9 2 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 5 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.