Fréttablaðið - 23.02.2019, Page 42

Fréttablaðið - 23.02.2019, Page 42
Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is GT Akademían opnaði hermikappaksturssetur í Ármúla 23 í desember en það er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. „Hingað getur fólk komið til að upplifa hvernig er að keyra kappakstursbíl,“ segir Hinrik Haraldsson stofnandi setursins. Í setrinu er að finna átta fullkomna akstursherma sem eru kapp- aksturssæti á hreyfitjökkum sem líkja eftir togkröftum sem myndast í alvöru kappakstursbílum. Þann- ig finnur fólk þegar það tekur af stað, bremsar, beygir, keyrir yfir kanta, þegar dekkin missa grip og svo framvegis. „Upplifunin er eins nærri raunveruleikanum og hægt er nema að fólk finnur ekki eins fyrir miðflóttaaflinu og svo er óttinn við dauðann aðeins minni,“ segir Hinrik glettinn. Hægt er að stilla hermana á fjöl- breyttan máta. „Maður getur valið mismunandi eiginleika. Til dæmis hvort maður vill aka rallíbíl, form- úlutýpu, touring bíl eða GT bíl. Svo má stilla hverjum bíl upp með dekkjum, föðrun og fleira.“ Forritið sem notað er í hermana heitir Project Cars 2. „Það er talið eitt fullkomnasta hermiforritið og svo hefur komið til okkar kapp- aksturssérfræðingur, svokallaður „race engineer“, til að stilla bílana eins og hann myndi stilla þá í alvörunni.“ Ekið er eftir mismunandi brautum sem til eru í raunveru- leikanum. „Í gamla daga voru þær búnar til í þrívíddarforriti en í dag eru brautirnar leiserskannaðar og því nákvæmar upp á millimetra. Hver einasta hola sem ekið er ofan í í herminum er þar líka í raun- heimum.“ Hermisetrið er það fyrsta á Íslandi en Hinrik segir þó hermi- kappakstur hafa verið stundaðan á landinu í tuttugu ár. „Fólk var fyrst að spila Gran Turismo á PlayStation með fyrstu stýrunum sem komu á markað. Síðan hefur tæknin þróast mikið og orðið flóknari og í dag er fólk komið með fullkomna herma í stofuna hjá sér,“ lýsir Hinrik og segir þó nokkra taka þátt í kapp- ökstrum á netinu. Fyrsta Íslandsmeistaramótið Fyrsta mótið í Íslandsmeistara- mótaröð í hermikappakstri fer fram í GT Akademíunni í dag. „Þetta er sjö móta röð og keppt á nýrri braut í hvert sinn. Fyrsta brautin er Imola á Ítalíu og næsta mót fer fram á Laguna Seca í Bandaríkjunum,“ segir Hinrik. Tímatökur ákvarða hvaða 24 keppendur fá þátttöku- rétt á hverju móti. Keppendur safna stigum og á lokamótinu keppa átta stigahæstu til úrslita um Íslands- meistaratitil en það er opinber titill. Því þurfa keppendur að vera með- limir í akstursíþróttafélagi sem er innan akstursíþróttasambandsins AKÍS. „Okkur þykir mjög spenn- andi hvað akstursíþróttasamfélagið tekur jákvætt í þetta starf en við erum í samstarfi bæði við AKÍS og kvartmíluklúbbinn.“ Samstarf við Team Spark Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík eru með lið í stúdenta- formúlu. Liðin smíða bíla sem þau keppa á erlendis. „GT Akademían hefur hafið samstarf við lið HÍ, Team Spark, um að þjálfa ökumenn liðsins fram að keppninni. Okkur finnst þetta ofsalega spennandi enda held ég að þau geti bætt árangur sinn í keppninni mikið með þessum hætti,“ segir Hinrik. Góð skemmtun Ekki aðeins einbeittir áhugamenn um hermikappakstur eru vel- komnir í GT Akademíuna því allir geta haft gaman af því að prófa hvernig er að aka kappakstursbíl. „Hingað koma margir vinnustaða- hópar og vinsælt er að koma hingað með gæsir og steggi.“ Hinrik segir að það sé afar ólíkt að aka kappakstursbíl og venju- legum bíl. „Það er gaman að sjá hvað fólk er fljótt að bæta sig, eftir klukkutímaakstur er það komið með ágæt tök á akstrinum.“ Íslandsmót í hermikappakstri Fyrsta Íslandsmeistaramótaröðin í hermikappakstri hefst í dag í glænýju hermikappaksturssetri GT Akademíunnar. Keppendur aka GT3 kappakstursbílum á hinni þekktu Imola braut á Ítalíu. Hinrik Haraldsson, stofnandi GT Akademíunnar í Ármúla. Keppendur geta lifað sig fullkomlega inn í kappaksturinn. MYND/EYÞÓR 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 3 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 2 3 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 0 F B 1 2 0 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 6 3 -B B 3 4 2 2 6 3 -B 9 F 8 2 2 6 3 -B 8 B C 2 2 6 3 -B 7 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 0 s _ 2 2 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.