Fréttablaðið - 26.02.2019, Síða 24
Ég hygg að það sé
oft vanmetið hvað
fermingin er mikilvæg
fyrir börnin. Ég held að
flest taki þau ferming-
una alvarlega og kannski
birtir það bara virðing-
arleysi fyrir börnunum
að halda öðru fram.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Yfir fermingardeginum mínum er bara birta. Mér finnst veðrið hafa verið
mjög gott. Ég man mjög vel eftir
því hvað ég skammaðist mín fyrir
að fermingarsystur mínar fóru að
hlæja í kirkjunni. Mér fannst það
fyrir neðan allar hellur. Ég jafnaði
mig þegar presturinn hafði gert
gott úr því um leið og við stilltum
okkur upp fyrir utan kirkjuna til
að taka við hamingjuóskum frá
kirkjugestum. Það er líka mjög
eftirminnilegt að við fjölskyldan
fluttum inn í nýtt hús nokkrum
dögum áður en ég fermdist og
mömmu tókst á nokkrum dögum
að búa til voða fína veislu heima
með fullt af fínum veitingum,“
segir séra Elínborg og finnur enn
málningarlyktina í nýmáluðu hús
inu þegar hún hugsar til fermingar
dagsins síns, 30. maí 1982.
Hjá Elínborgu var fullkomlega
sjálfsagt að fermast.
„Ég ólst upp við mjög jákvæða
afstöðu til kirkju og kristni og
að sjálfsögðu bað ég alltaf bænir
á kvöldin áður en ég fór að sofa.
Presturinn talaði við okkur
krakkana um að við þyrftum að
taka ákvörðun okkar alvarlega,
hún mætti ekki vera léttvæg og
hann áréttaði við okkur að það
væri engin skylda að fermast. Þess
vegna kom ég heim úr kirkjunni
einn daginn eftir fermingar
fræðslu og sagði að ég væri að
hugsa um að fresta fermingunni
minni um eitt ár. Foreldrar mínir
fengu mig ofan af því eftir smá
samtal, en á þessum tíma þekktist
ekki annað í Hólminum en að allir
krakkar fermdust.“
Fermingin reyndist Elínborgu
mjög mikilvæg og dýrmæt.
„Ég var mjög heppin með að
fermingarfræðslan var skemmtileg
og eðlilegt framhald af því sem ég
hafði reynslu af úr sunnudagaskól
anum, starfi í Hvítasunnusöfnuð
inum, starfi í Barnastúkunni og
hjá St. Fransiskussystrum. Allt
þetta kristilega starf mótaði mig
mjög, hafði djúp áhrif á mig og
þess vegna bar ég kannski mikla
virðingu fyrir kirkjunni og boð
skap trúarinnar. Fermingarárið
mitt var ánægjulegt og það kom að
minnsta kosti ekki í veg fyrir að ég
færi í guðfræði,“ segir Elínborg sem
lærði heimspeki áður en hún fór í
guðfræðinám.
Presturinn sem fermdi Elín
borgu valdi ritningarversið.
„Hann skrifaði í sálmabókina
mína þessi orð úr 2Kro 15:7: „En
verið þér öruggir og látið yður
eigi fallast hendur, því að breytni
yðar mun umbun hljóta,“ upplýsir
Elínborg sem minnist þess ekki
að hafa óskað sér neins sérstaks í
fermingargjöf nema að fá að fara til
útlanda.
„Sú ósk rættist og ári eftir
fermingu fékk ég að fara til Frakk
lands að heimsækja móðursystur
mína og fjölskyldu hennar sem bjó
og býr enn í París. En ég var mjög
glöð og ánægð með allar mínar
fermingargjafir og fermingarskrif
borðið er enn í notkun!“ segir hún
og brosir.
Hálffullorðnir einstaklingar
Alls fermast um tuttugu börn í
Dómkirkjunni í Reykjavík í ár.
„Þetta er fyrirmyndarhópur.
Fermingarbörnin eru augljóslega
vel uppalin í skólastofunni því þau
kunna vel að vera virkir þátttak
endur í fermingarfræðslunni sem
hefur gengið prýðilega. Það eina
sem ég finn fyrir er að mörg þeirra
hafa mjög mikið að gera og margar
skyldur. Þessi kynslóð barna er
svo virk á svo mörgum sviðum, í
íþróttum, tónlistarnámi, leiklist
og fleiru, þannig að það er f lókið
að finna tíma fyrir fermingar
fræðsluna sem hentar öllum,“ upp
lýsir Elínborg og vonar að börnin
njóti fræðslunnar og hafi gagn af
henni.
„Mikilvægasta veganestið úr
fermingarfræðslunni er að Guð
elskar þau eins og þau eru og vill
að þau láti sér annt um sig sjálf og
samferðamenn sína. Og að þau geti
ræktað með sér trú sem gagnast
þeim á lífsgöngunni, bæði í með
byr og mótbyr. Svo vona ég að þau
finni og skynji að kirkjan vill vera
þeim bakland á lífsgöngunni,“
segir Elínborg sem hefur mikið
dálæti á fermingunni.
„Það er alltaf mjög hátíðlegt að
sjá fermingarbörnin ganga inn
kirkjugólfið svo falleg og uppá
búin. Maður getur ekki annað en
skynjað hvað þetta er stór stund,
ekki síst fyrir foreldrana. Það eru
tímamót að vera fermingarforeldri
og þegar frumburðurinn minn
fermdist fannst mér nauðsynlegt
að fá mér nýjan sparikjól, mér
fannst þetta svo hátíðleg stund. Á
þessari stundu finna foreldrarnir
sterkt fyrir því hvað tíminn hefur
liðið hratt og hve ósköp stutt er
síðan börnin þeirra voru agnar
smá kríli sem þau báru á höndum.
Þetta gerir f lesta foreldra bæði
stolta en líka svolítið viðkvæma,“
segir séra Elínborg um stór tíma
mót í lífi fjölskyldna.
Fermingarbörnin séu iðulega
full af eftirvæntingu og gleði.
„Þau eru fullorðinsleg á þessum
degi og vita að þau eru að stíga
inn í tímabil sem hálffullorðnir
einstaklingar. Ég hygg að það sé
oft vanmetið hvað fermingin er
mikilvæg fyrir börnin. Ég held að
flest taki þau ferminguna alvar
lega og kannski birtir það bara
virðingarleysi fyrir börnunum
að halda öðru fram. Mikilvægast
er samt að gefa þeim tækifæri til
að átta sig á kristnum lífsgildum,
rækta með sér trú og gefa sér
tóm til að kynnast því að fara
til kirkju. Mörgum finnst líka
mikilvægt að láta gott af sér leiða
með því að kynnast hjálparstarfi
kirkjunnar og taka þátt í söfnun
fyrir brunnum í Afríku,“ upplýsir
Elínborg sem nýtur þess að sinna
fermingarstarfinu.
„Það er ögrandi og tengir mann
við unga fólkið. Við prestarnir
þurfum sífellt að hugsa um það
hvernig við komum kristnum boð
skap að sem gagnlegu veganesti út
í lífið fyrir nýja kynslóð. Kannski
þurfum við líka að huga meira að
því að rækta tengslin við foreldra
barnanna og mæta þeim, því vita
skuld eru það foreldrarnir sem
hafa mest áhrif á börnin.“
Stolt en líka viðkvæm stund
Séra Elínborg Sturludóttir, prestur í Dómkirkjunni í Reykjavík, fermdist í Stykkishólmskirkju á
hvítasunnudag 1982. Hún segir vanmetið hvað fermingin sé mikilvæg fyrir fermingarbörnin.
Elí nborg fermdist í Stykkishólmskirkju en er nú prestur í Dómkirkjunni í Reykjavík. MYND/SIGTRYGGUR ARI
8 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RFERMINGAR
2
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
8
-A
7
8
0
2
2
6
8
-A
6
4
4
2
2
6
8
-A
5
0
8
2
2
6
8
-A
3
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K