Mosfellingur - 06.04.2017, Side 4

Mosfellingur - 06.04.2017, Side 4
www.lagafellskirkja.is kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna sunnudagurinn 9. apríl - Pálmasunnudagur Fermingarguðsþjónustur í Lágafells- kirkju kl. 10:30 og 13:30. Báðir prestarnir Fimmtudagurinn 13. apríl - Skírdagur Fermingarguðsþjónustur í Lágafells- kirkju kl. 10:30 og 13:30. Báðir prestarnir Föstudagurinn 14. apríl - Föstudagurinn langi Guðsþjónusta á Hömrum kl. 14:00 Guðsþjónusta í Mosfellskirkju kl. 20:00 Sr. Ragnheiður Jónsdóttir sunnudagurinn 16. apríl - Páskadagur Hátíðarguðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 08:00. Sr. Arndís Linn. Að lokinni guðsþjónustu er kirkju- gestum boðið í léttan morgunverð í safnaðarheimilinu. Miðvikudagurinn 19. apríl Helgistund á Eirhömrum kl. 13:30 Sr. Arndís Linn sunnudagurinn 23. apríl Fermingarguðsþjónusta í Lágafellskirkju kl 10:30. Báðir prestarnir Fermingarguðsþjónusta í Mosfellskirkju kl. 13:30. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir Nánari upplýsingar á www.lagafellskirkja.is - Bæjarblaðið í Mosfellsbæ64 Þrjár rafhleðslustövar settar upp í Mosó Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur samþykkt að ráðist verði í kaup og uppsetningu á þremur rafhleðslu- stöðvum í Mosfellsbæ. Stefnt er að uppsetningu hæghleðslustöðva við íþróttamiðstöðvarnar við Lágafell og Varmá og við FMOS. Hæg- hleðslustöðvar nýtast vel til að bæta á hleðslu rafmagnsbíla starfsmanna eða viðskiptavina í íþróttamiðstöð eða skóla, en fullhleðsla tekur nokkrar klukkustundir. Þessar staðsetningar voru valdar með það í huga að þær nýttust sem best íbúum í Mosfellsbæ, starfsmönnum stórra vinnustaða og ferðamönnum á leið í gegnum bæinn. Mosfellsbær hefur hlotið styrk frá Orkusjóði sem mun nægja fyrir um helmingi þess kostnaðar sem fellur til. Opið fyrir umsóknir í vinnuskólann Opnað var fyrir skráningar í Vinnuskóla Mosfellsbæjar þann 23. mars en umsóknarfrestinum lýkur 7. apríl. Vinnuskóli Mosfellsbæjar er starfræktur fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk í grunnskólum Mosfellsbæjar. Skráning fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar. Allir sem sækja um fyrir 7. apríl fá vinnu. Vinnuskóli Mosfellsbæjar verður starfræktur á tímabilinu 8. júní til 16. ágúst. Skólinn verður lokaður á tímabilinu 26. júlí til og með 3. ágúst. Daglegur vinnutími og tímabil fer eftir aldri nemenda sem má sjá nánar á mos.is. Lögð er áhersla á að kenna nemendum að vinna og hegða sér á vinnustað, umgangast bæinn sinn og auka skynjun og viðrðingu nemenda fyrir umhverfinu. Golfklúbbur Mosfellsbæjar stefnir að því að opna fyrsta áfanga glæsilegrar byggingar í maí styttist í að íþróttamiðstöð gM verði tekin í notkun Miðsvæðis á Hlíðavelli er nú verið að leggja lokahönd á glæsilega íþróttamiðstöð Golf- klúbbs Mosfellsbæjar. Fyrir ári síðan, þann 1. apríl 2016, tóku ungir kylfingar fyrstu skóflustunguna og í dag er uppbygging á húsinu á lokasprett- inum. Á Hlíðavelli hefur átt sér stað mikil upp- bygging á 18 holu golfvelli frá árinu 2004. „Það eru miklir uppgangstímar hjá okk- ur og nýtt hús mun gjörbylta allri aðstöðu golfklúbbsins,“ segir Kári Tryggvason nýr formaður GM. Klúbburinn telur um 1.000 manns í dag og fer ört fjölgandi. veitingasala og veislusalur Íþróttamiðstöðin verður 1.200 fm á tveimur hæðum og mun hýsa alla skrif- stofu-, félags- og æfingaaðstöðu klúbbsins til framtíðar. Þá verður tekinn í notkun sal- ur á efri hæð hússins sem rúma mun 120- 200 manns. Þar verður rekin veitingasala og veislusalur leigður út. „Hér eiga allir Mosfellingar eftir að njóta góðs af góðri aðstöðu og geta mætt hér í kaffi eða mat. Útsýnið héðan er frábært og fellur húsið vel inn í landslagið. Stefnt verður að því að svæðið verði tengt inn á stígakerfi Mosfellsbæjar og munu þar skap- ast mörg tækifæri fyrir tengingar við fleiri íþróttir og útvist í hjarta Mosfellsbæjar.“ æfingaaðstaða fyrir börn og unglinga „Stefnt er að því að fyrsta áfanga verksins ljúki nú í næsta mánuði með opnun efri hæðarinnar. Neðri hæðin með búnings- og æfingaaðstöðu verður svo vonandi tekin í notkun fyrir veturinn. Á sumrin stunda um 200 börn golf og hefur vantað verulega upp á aðstöðu til æfinga yfir vetrartímann. Þetta verður því kærkomið fyrir okkar ungu og efnilegu kylfinga. Þá gefst möguleiki á því að gera golf að heilsársíþrótt í Mosfellsbæ við bestu mögulegar aðstæður.“ Ómetanlegir sjálfboðaliðar „Hér erum við full eftirvæntingar og sjálfboðaliðar hafa unnið hörðum höndum á síðustu mánuðum undir eftirliti verktaka hússins. Allt gengur samkvæmt áætlun og tilhlökkunin er mikil. Félagsandinn er mjög góður og án þess- ara öflugu sjálfboðaliða sem lagt hafa á sig hundruð vinnustunda væri þetta einfalda- lega ekki hægt,“ segir Kári að lokum. Gamli golfskálinn neðan við Súluhöfða mun víkja ásamt æfingasvæðinu og þar mun rísa íbúðagata. gjörbrEYTT aðsTaða við hlíðavöll kári TrYggvason formaður gm Stefnir í góða þátttöku í lýðræðisverkefninu Okkar Mosó • Kosningu lýkur á mánudag Íbúum gefst kostur á að kjósa Bæjarbúar hafa tekið virkan þátt í lýðræðisverkefn- inu Okkar Mosó. Kosning stendur yfir og markmið- ið er að sögn Aldísar Stefánsdóttur, verkefnastjóra verkefnisins, að slá öll met í íbúakosningunni. Þau sveitarfélög sem hafa farið í gegnum verkefnið hafa mest náð 13% kosningaþátttöku. „Mosfellingar eru þekktir fyrir að setja sér háleit markmið og við stefnum á að lágmarki 20%. Þarna ættu flestir að finna eitthvað sem þeim líst á að gera betur í sínu nærumhverfi,“ segir Aldís. samráðsverkefni íbúa og bæjarins Okkar Mosó er samráðsverkefni íbúa og bæj- arins um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri nýframkvæmda og viðhaldsverkefna í Mosfellsbæ. Verkefnið hófst með hugmyndasöfnun í febrúar og lýkur í sumar með framkvæmdum á þeim verk- efnum sem kosin verða af íbúum. Gert er ráð fyrir 25 milljónum króna til verkefnis- ins. Bærinn er allur eitt svæði í hugmyndasöfnun og kosningu. Við úrvinnslu hugmynda verður leit- ast við að tryggja að verkefni sem kosið verður um séu landfræðilega dreifð innan sveitarfélagsins. Allar nánari upplýsingar um verkefnið er hægt að finna á mos.is/okkarmoso

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.