Mosfellingur - 06.04.2017, Side 14
- Dreift frítt í Mosfellsbæ, Kjalarnes og Kjós14
www.n1.is facebook.com/enneinn
Hjólbarðaþjónusta N1
Hluti af vorinu
Bíldshöfða 440 1318
Fellsmúla 440 1322
Réttarhálsi 440 1326
Ægisíðu 440 1320
Langatanga Mosfellsbæ 440 1378
Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440 1374
Grænásbraut Reykjanesbæ 440 1372
Dalbraut Akranesi 440 1394
Réttarhvammi Akureyri 440 1433
Opið
mán–fös kl. 08-18
laugardaga kl. 09-13
www.n1.is
Michelin CrossClimate
Sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir.
Dekk sem henta margbreytilegum
íslenskum aðstæðum sérlega vel
og veita frábæra aksturseiginleika.
Michelin Energy Saver
Margverðlaunuð fyrir veggrip,
endingu og eldsneytissparnað.
Michelin Primacy 3
Einstakir aksturseiginleikar.
Frábært grip og góð vatnslosun.
Ein bestu sumardekkin
á markaðnum í dag.
Rúllaðu inn í sumarið
á nýjum dekkjum
Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var í heim-
sókn á Kjalarnesi fimmtudaginn 30. mars.
Tilefni heimsóknarinnar var að nú er að
hefjast hverfisskipulag fyrir þéttbýlið á Kjal-
arnesi, Grundarhverfi og umhverfi þess.
Dagur heimsótti Klébergsskóla en á
Kjalarnesi er samrekstur á grunnskóla,
leikskóla, frístundamiðstöð, tónlistarskóla
og íþróttamiðstöð. Sigrún Anna Ólafsdóttir
skólastjóri leiddi hann um svæðið í einstak-
lega góðu vorveðri.
Samkomulag um aukna skógrækt
Þá undirritaði borgarstjóri samning um
stækkað skógræktarsvæði við Arnarhamar
við Skógræktarfélag Kjalarness og Skóg-
ræktarfélag Íslands.
Undanfarna áratugi hefur skógræktar-
fólk á Kjalarnesi gróðursett töluvert við
Arnarhamar. Eftir undirritun samningsins
er skógræktarsvæðið samtals 54 hektarar.
Svæðið er innan Græna trefilsins sem gert
er ráð fyrir að muni umlykja höfuðborgar-
svæðið.
Skógrækt í Esjuhlíðum mun ekki aðeins
veita skjól fyrir byggð og umferð á Kjalar-
nesi heldur á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Þeir sem undirrituðu samninginn auk
borgarstjóra voru Baldvin Þór Grétarsson
formaður Skógræktarfélags Kjalarness og
Brynjólfur Jónsson fyrir hönd Skógræktar-
félags Íslands.
Á Kjalarnesi er mikil matvælaframleiðsla
og heimsótti borgarstjóri stórbúið á Vallá
og var vel tekið af hjónunum Geir Gunnari
Geirssyni og Hjördísi Gissurardóttur.
Opinn fundur um hverfaskipulagið
Kjalnesingar fjölmenntu síðan á opinn
íbúafund um hverfisskipulagið sem hald-
inn var í félagsheimilinu Fólkvangi. Þar
voru flutt ávörp og borgarstjóri svaraði
fyrirspurnum um það sem helst brennur
á íbúum. Meðal annars fluttu þrír nem-
endur í Klébergsskóla stutt ávörp og komu
á framfæri því sem þau eru ánægð með á
Kjalarnesi og því sem mætti bæta.
Í Fólkvangi var líkan af svæðinu sem
nemendur í Klébergsskóla höfðu gert.
Fundargestir gátu lagt fram hugmyndir og
ábendingar en mikil áhersla er lögð á sam-
ráð við íbúa við gerð hverfisskipulagsins.
Undirbúningur hafinn fyrir hverfisskipulag Kjalarness
Heimsókn borgar
stjóra á Kjalarnes
börnin á leikskólanum máluðu
mynd handa borgarstjóranum
undirritun skógræktar-
samnings við arnarhamar
dagur, andri rósi, andri
jakob og petra maría