Mosfellingur - 06.04.2017, Blaðsíða 18
- Fréttir af Mosfellingurm18
Þann 24. mars héldu UMFUS félagar kóte-
lettu-styrktarkvöld líkt og í fyrra fyrir sína
menn í Ungmennafélaginu ungir sveinar.
Boðið var upp á dýrindis kótelettur
framreiddar af Ragnari Sverrissyni hjá
Höfðakaffi. Aðrir styrktaraðilar voru Víking,
Golfklúbbur Mosfellsbæjar og Norðlenska.
Umfus vill koma á framfæri þökkum til allra
sem styrktu þetta góða málefni með nær-
veru sinni, framlögum og aðstoð.
Í ár var ákveðið að styrkja Þorstein Atla
Gústafsson, sem er tæplega 6 ára gamall
sprækur og glaður Mosfellingur, og fjöl-
skyldu hans. Foreldrar hans eru Sóley Erla
Ingólfsdóttir og Gústaf Helgi Hjálmarsson.
Þosteinn Atli á tvo bræður, Ingólf Orra og
Þorkel Mána.
Notar augun til tjáningar
Þorsteinn Atli er með með mjög sjald-
gæfa stökkbreytingu í geni sem heitir
SCN8A. Hann er algjörlega einstakur því
aðeins eru greind um 100 tilfelli í heimin-
um. Hann er flogaveikur og hreyfihamlað-
ur auk þess sem hann er með þroskaskerð-
ingu. Hann tjáir sig ekki á hefðbundin hátt
en hann notar augun til tjáningar.
Í Klettaskóla þar sem Þorsteinn Atli
stefnir á að hefja nám í haust hefur verið
í gangi þróunarverkefni með augnstýri-
búnað sem heitir Tobii og hefur reynst vel
fyrir þá sem nota óhefðbundnar tjáskipta-
leiðir.
Því miður er þessi búnaður ekki niður-
greiddur af tryggingum. Til þess að Þor-
steinn Atli geti lært að nýta sér svona tæki
er nauðsynlegt að hafa slíkan búnað heima
líka. Það er því von UMFUS félaga að þetta
framlag komi að góðum notum.
UMFUS hélt kótelettukvöld til styrktar Þorsteini Atla • Safnað fyrir augnstýribúnaði
Afhentu ágóða styrktarkvölds
Fjölskylda Þorsteins atla
ásamt Formönnum umFus
Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • Sími 525 6700 •mos@mos.is • www.mos.is
VIRÐING • JÁKVÆÐNI • FRAMSÆKNI • UMHYGGJA
Umsóknarfrestur er til 7. apríl 2017.
Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni
í starfið skulu berast á netfangið mos@mos.is. Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu
Mosfellsbæjar en auk þess veitir Vibeke Þ Þorbjörnsdóttir, deildastjóri búsetu og þjónustudeildar upplýsingar í
síma 525 6700. Um framtíðarstarf er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum fólk af báðum
kynjum til að sækja um starfið.
Forstöðumaður í Búsetukjarna
MOSFELLSBÆR AUGLÝSIR EFTIR FORSTÖÐUMANNI Í BÚSETUKJARNA
Forstöðumaður búsetukjarna rekur starfsstöðvar fyrir fatlað fólk í samræmi við lög og reglugerðir.
Forstöðumaður ber ábyrgð á á búsetukjörnum, íbúðum og velferð þeirra sem þar búa og stuðlar að því að
starfsmenn tileinki sér starfshætti í samræmi við það sem best gerist hverju.
Hlutverk fjölskyldusviðs Mosfellsbæjar er að annast félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, félagslega
heimaþjónustu, málefni barna og ungmenna, eldri borgara og fatlaðs fólks, húsnæðismál, aðstoð vegna áfengis
og fíkniefnavanda og vímuvarnir samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og reglum Mosfellsbæjar.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru
leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Ráðning forstöðumanns búsetukjarna er háð samþykki bæjarráðs.
Menntunar og hæfnikröfur:
Þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg
háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði,
framhaldsmenntun æskileg
Góð stjórnunar og rekstrarreynsla er skilyrði
Þekking á hugmyndafræðinni um þjónandi
leiðsögn er æskileg
Mikil reynsla og þekking á vaktaskýrslugerð
er skilyrði
Þekking og reynsla á Tímon viðverukerfi
er skilyrði
Víðtæk þekking og reynsla á málefnum
fatlaðs fólks og á samningi sameinuðu
þjóðanna
Framúrskarandi samskiptahæfileikar er
skilyrði
Góð alhliða tölvukunnátta er skilyrði
Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
Arnhildur stendur
fyrir vortónleikum
Vörðukórinn og kór Fella- og
Hólakirkju halda sameiginlega
vortónleika í Fella- og Hólakirkju
föstudaginn 21. apríl kl. 20.
25 manna blandaður kór syngur við
kirkjuna undir stjórn Mosfellingsins
Arnhildar Valgarðsdóttur organista.
Boðið verður upp á fjölbreytta
dagskrá og kaffiveitingar í hléi.
Tekið er á móti gestum við komuna
með harmonikkuleik og hressingu.
Miðaverð er 3.000 kr. en 2.000 kr. í
forsölu hjá Arnhildi í síma 6987154.
Stefán Páll og Júlíus
kepptu í Austurríki
Mosfellingarnir Stefán Páll
Skarphéðinsson og Júlíus Pálsson
fóru til Austurríkis á dögunum á
alþjóðaleika Special Olympics þar
sem þeir kepptu á skautum.
Á myndinni má sjá hópinn fyrir
brottför ásamt lögreglumönnunum
sem verða með í för í Austurríki.
Daði Þorkelsson lögreglumaður
hljóp kyndilhlaup (LETR) fyrir
leikana og Guðmundur Sigurðsson,
lögreglumaður var í undirbúnings-
nefnd LETR hlaupsins.