Mosfellingur - 06.04.2017, Qupperneq 23
www.mosfellingur.is - 23Myndir: Ruth Örnólfs, Harpa Hrund og úr einkasafni.
Íslenska ullin er einstök
Íslenskt sauðfé hefur gefið Íslendingum skjólmikla ull sem
náttúran hefur þróað eftir veðri og vindum í meira en 1000 ár.
fjölskylduvæn ísbúð
í hjarta mosfellsbæjar
Verið hjartanlega
velkomin
HáHolti 13-15 • s. 564 4500
Opið alla daga kl. 12:00-23:00
Margir þættir hafa áhrif á líðan
barna rétt eins og okkar sem
eldri erum. Foreldrar gegna þó
lykilhlutverki þegar kemur að
líðan barna þeirra og vernd-
andi þættir skipta meginmáli
til að stuðla að vellíðan barn-
anna.
Verndandi þættir hvað líðan
varðar eru t.d. uppfylling grunnþarfa þar
með talið góð næring, heilbrigðar svefn-
venjur, hreyfing og almenn aðhlynning;
stuðningur foreldra, fjölskyldu og vina;
þátttaka í tómstundastarfi og íþróttaiðk-
un og jákvæður andi í skóla, á heimili og
í frístundum.
Alla þessa þætti geta foreldrar haft
mikil áhrif á. Foreldrar leggja línurnar í
mataræði fjölskyldunnar, svefnvenjum
og hvað hreyfingu varðar. Með því að
hvetja börnin til að borða holla og góða
næringu, stunda reglu-
bundna hreyfingu og
setja reglur um svefn-
tíma stuðlum við
að aukinni vellíð-
an barnanna.
Jafnframt ætti
að setja reglur um
notkun tölvu og snjall-
tækja, sérstaklega fyrir
svefninn. Æskilegt er
að slík tæki séu lögð
til hliðar klukkustund
fyrir svefntíma og þau
geymd í hæfilegri fjarlægð
á meðan sofið er. Gott er að
hvetja til yndislesturs, slökun-
ar eða notalegrar samveru fyrir
svefninn í stað þess að vera fyrir
framan við rafrænan skjá.
Jákvæður stuðningur, hvatn-
ing og skýr mörk frá upphafi
hafa mikil áhrif og auka líkur á
að börnin temji sér betri venjur
sem ýta undir vellíðan þeirra og
velgengni í lífi og starfi. Það þarf því að
setja bæði sér og börnunum markmið og
mörk og framfylgja reglunum. Ekki má
gleyma því að foreldrar eru fyrirmyndir
barna sinna og ættu því að sjálfsögðu að
fara eftir reglunum sjálfir því það gera
börnin sem fyrir þeim er haft.
Það að vera í góðu sambandi við skóla
barnanna og tómstundaleiðbeinendur
skiptir líka miklu máli, sem og tengsl við
foreldra vina þeirra. Þannig stuðlum við
að jákvæðari samskiptum og auðveldara
verður að taka á því sem
hugsanlega kann að
koma upp á.
Verum meðvit-
uð um hlutverk
okkar og ríkan þátt
foreldra í vellíðan
barna sinna. Lengi
býr að fyrstu gerð
og það læra börnin
sem fyrir þeim er
haft.
Hulda Sólrún
Guðmundsdóttir,
sálfræðingur
og foreldri
Vellíðan barna og unglinga
– hlutverk foreldra
SkólaSkrifStofa moSfellSbæjar
Skóla
hornið
fjallganga
í Dýrafirði