Mosfellingur - 23.08.2016, Page 10
Rannsaka þjóðleiðir
um Mosfellsheiði
Umhverfisstyrkir úr Samfélagssjóði
Landsbankans voru afhentir í
sumar. Eitt þeirra verkefna sem
hlaut styrk var rannsókn á gömlum
þjóðleiðum um Mosfellsheiði og
ritun leiðarlýsinga sem munu koma
út á bók í samstarfi við Ferðafélag
Íslands vorið 2017. Markmiðið
með bókinni er að opna augu
almennings fyrir þeirri merku sögu
sem tengist gömlu þjóðleiðunum.
Rannsóknin er á vegum Brúar-
smiðjunnar. Jón Svanþórsson og
Margrét Sveinbjörnsdóttir tóku við
styrknum sem nemur 250.000 kr.
Með styrkþegunum á myndinni eru
dr. Guðrún Pétursdóttir formaður
dómnefndar og Steinþór Pálsson
bankastjóri Landsbankans.
Íbúar á Kjalarnesi
mótmæla Esjuferju
Stjórn Íbúasamtaka Kjalarness hafa
sent frá sér tilkynningu fyrirhugaðr-
ar svifbrautar (kláfs) á Esju. Íbúa-
samtökin leggjast alfarið gegn því
að Reykjavíkurborg undirriti samn-
ing um leigu á lóðum í hlíðum Esju
í tengslum við áætlanir fyrirtækisins
Esjuferju ehf. Svifbrautinni er ætlað
að ferja um 150.000 ferðamenn
á ári upp á topp Esju. Gert er ráð
fyrir að neðri stöð farþegaferjunnar
verði í grennd við bílastæði við botn
Kollafjarðar, miðjumastur hennar á
Rauðhóli og endastöðin á Esjubrún.
Andstaða íbúasamtakanna snýst
um staðsetningu kláfsins og þess
óafturkræfa jarðrasks og breyttrar
ásýndar á svæðinu. Hugmynd
Esjuferða kom fyrst upp árið 2010
og er áætlað að framkvæmdirnar
kosti um 3 milljarða.
Nýr skipulagsfulltrúi
í Mosfellsbæ
Ólafur Melsted landslagsarkitekt
hefur verið ráðinn sem skipulags-
fulltrúi Mosfellsbæjar. Ólafur hefur
áður starfað sem
skipulags- og
umhverfisfulltrúi
Hvalfjarðarsveit-
ar, framkvæmda-
stjóri tækni- og
umhverfissviðs
Seltjarnarnesbæj-
ar, hjá Skipu-
lagsstofnun, VSÓ Ráðgjöf og kennt
við Garðyrkjuskólann og Land-
búnaðarháskólann. Ólafur hefur
mastersgráðu í landslagsarkitektúr
frá Þýskalandi og MBA-gráðu í
viðskiptafræði frá HÍ. Ólafur tekur
við af Finni Birgissyni sem hefur láti
af störfum vegna aldurs.
- Fréttir úr Mosfellsbæ10
Óskum Mosfellingum
góðrar skemmtunar
GleðileGa
Flugumýri 6
Sími 566 6705
velsveinn@velsveinn.is
www.velsveinn.is
bæjarhátíð!
Í túninu heima
Í túninu heima
Við bjóðum ykkur velkomin í útibú okkar í Mosfellsbæ þegar Bæjarhátíð
Mosfellsbæjar hefst föstudaginn ��. ágúst. Skólakór Varmárskóla kemur í
heimsókn til okkar kl. �� og syngur nokkur lög. Íbúar Sparilands, Bíbí, Blaki
og Ari mæta á svæðið og heilsa upp á gesti auk þess sem í boði verður
andlitsmálun fyrir börnin milli kl. �� og ��.
Hlökkum til að sjá þig!
Hátíðarkveðjur,
starfsfólk Arion banka í Mosfellsbæ
M
yn
d/
H
ilm
ar
Í júlí samþykkti bæjarráð Mosfellsbæjar
einróma að úthluta lóð úr landi Sólvalla
undir byggingu einkarekinnar heilbrigðis-
stofnunar og hótels.
Talsvert hefur verið rætt og skrifað um
verkefnið. Umræðan hefur einkum snúið að
tveimur þáttum. Þróun heilbrigðiskerfisins
í átt að frekari einkarekstri og möguleg áhrif
á eftirspurn eftir faglærðu heilbrigðisstarfs-
fólki. Hins vegar hefur töluvert verið rætt
um trúverðugleika forsvarsmanna verk-
efnisins. Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs
Mosfellsbæjar felur hún ekki í sér afstöðu
til þessara þátta.
Aðkoma Mosfellsbæjar skipulagsmál
Á aðalskipulagi er umrædd lóð skipulögð
undir heilbrigðisstarfsemi. Ástæðan fyrir
því er sú að sambærilegt verkefni hefur
áður komið til umfjöllunar hjá bæjar- og
skipulagsyfirvöldum í Mosfellsbæ. En það
var árið 2011 sem aðalskipulagi var breytt
og lóð undir sjúkrastofnun og hótel sett á
skipulag á þessum stað.
Allir flokkar í bæjarstjórn stóðu að þeirri
breytingu. Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Mosfellsbæ. Þar segir einnig að úthlutun
lóðarinnar gangi eingöngu út á uppbygg-
ingu á heilbrigðisþjónustu og/eða hóteli.
Aðalskipulag og lóðaleigusamningur kemur
í veg fyrir að félagið hafi kost á því að fara í
annars konar uppbyggingu á lóðinni.
Hagsmuna gætt í samningagerð
Samningurinn sem gerður var við MCPB
ehf felur í sér tvo fyrirvara af hálfu Mosfells-
bæjar. Annars vegar ber félaginu að leggja
fram viðskiptaáætlun, upplýsingar um
fjármögnun og tímaáætlanir í síðasta lagi
1. desember 2017. Hins vegar þarf að hefja
framkvæmdir innan tveggja ára frá undir-
ritun samnings og greiða gatnagerðargjöld.
Verði þessum skilyrðum ekki fullnægt er
Mosfellsbæ heimilt að rifta samningnum.
Í samningnum er einnig tekið á atriðum
eins og gatna- og lagnagerð en félagið
mun sjálft standa straum af kostnaði við
þær framkvæmdir. MCPB ehf mun greiða
ígildi gatnagerðargjalda sem nema um
500 milljónum til Mosfellsbæjar áður en
framkvæmdir hefjast. Það eru því veruleg-
ir hagsmunir fyrir Mosfellsbæ ef af þessum
áformum verður. Auk beinna einskiptis-
greiðslna í bæjarsjóð er áætlað að fast-
eignagjöld af byggingunum nemi um 150
mkr. á ári auk ruðningsáhrifs verkefnisins.
Töluverð áhrif á atvinnumöguleika
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri segir:
„Hér var eingöngu verið að tryggja að ef af
verkefninu yrði þá yrði uppbyggingin í Mos-
fellsbæ. Það var alltaf ljóst að verkefnið væri
af þeirri stærðargráðu að það hefði töluverð
áhrif á atvinnumöguleika í Mosfellsbæ.
Okkar hlutverk er að hugsa til framtíðar
og stuðla að uppbyggingu atvinnutækifæra
fyrir íbúa Mosfellsbæjar. Ef það verður ekki
af þessu verkefni þá hefur það engin áhrif á
stöðu Mosfellsbæjar öðruvísi en svo að við
tökum lóðina aftur og hún verður mögulega
valkostur fyrir aðra aðila með sambærilegar
hugmyndir.“
Mosfellsbær úthlutar lóð úr landi Sólvalla • Lóðin áður skipulögð undir heilbrigðisstarfsemi
Áætlanir um sjúkrahús og
heilsuhótel í Mosfellsbæ
horft yfir sólvelli
við hafravatnsveg