Mosfellingur - 23.08.2016, Page 24

Mosfellingur - 23.08.2016, Page 24
 - Fréttir úr bæjarlífinu24 dúndur LAGErHrEInSun hjá heildversluninni Mirellu, Háholti 23 (2. hæð). Verðdæmi: Val um 5 flíkur á kr. 2.000.- Stakir dömu- og herrabolir frá kr. 800.-/1000.- dömu- og herra nærbuxur frá kr. 300.- Boxerar frá kr. 500.- Nærfatasett á börn (stærðir 2-12) frá kr. 1.000.- ÍtöLSk GæðI Mjög gott úrval og margir litir Opið mán-fös kl. 13-17 Háholt 23, 270 Mosfellsbær Sími: 586 8050 / mirella@simnet.is / facebook.com/mirella.ehf HáHolti 13-15 - Sími: 416 0100 Í tilefni opnunar Apóteks MOS bjóðum við 15% afslátt af Panodil Zapp, Otrivin og Voltaren geli út september. Verið velkomin Við Reykjalund í Mosfellsbæ er Múlalundur með vinnustofu sína og rekur þar einnig glæsilega ritfangaverslun, en bæði Reykja- lundur og Múlalundur eru í eigu SÍBS. „Hérna rekum við stóran vinnustað með um 40 starfsmönnum þar sem fatlaðir og ófatlaðir starfa saman. Flest okkar starfs- fólk á það sameiginlegt að vera með skerta starfsorku á einhvern hátt og eins og aðrir góðir vinnuveitendur leggjum við okkur fram um að mæta hverjum og einum á sínum forsendum. Við framleiðum fjölbreyttar vörur fyr- ir fyrirtæki og verslanir um allt land og leggjum mikinn metnað í að framleiða gæðavörur,“ segir Sigurður Viktor Úlfarsson framkvæmdastjóri Múlalundar. Glæsileg ritfangaverslun „Verslunin okkar er, að því er við höld- um, eina ritfangaversluninn í Mosfellsbæ og viljum við hvetja bæjarbúa til að nýta sér fjölbreytt úrval okkar af góðum vörum. Við höfum að undanförnu verið að bæta verslunina til muna og tökum fagnandi á móti Mosfellingum. Við bjóðum bæði upp á okkar eigin framleiðsluvörur og aðrar hefðbundnar skóla- og skrifstofuvörur. Einnig erum við með öfluga netverslun á mulalundur.is þar sem við leggjum áherslu á gott vöruval, góð verð og frábæra þjónustu. Verslunin er opin frá kl. 8:00 til 16:30 alla virka daga nema á föstudögum, þá lokum við kl. 16:00,“ segir Sigurður að lokum og bætir við að sérstaða þeirra sé að Múla- lundur er góðgerðafyrirtæki. Með því að versla vörur frá þeim sé fólk að fá gæðavör- ur, styðja starfsemina og skapa vinnu fyrir fólk sem á erfitt með að fá vinnu annars staðar. Múlalundur er stærsta og elsta öryrkjavinnustofa landsins Reka ritfangaverslun að Reykjalundi skrifstofuvörur í miklu úrvali öflugir starfsmenn Hrein upplifun Íslenskar froðusápur sem sótthreinsa og mýkja húðina Miana handsápur fást í verslunum og apótekum um land allt

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.