Mosfellingur - 23.08.2016, Side 52

Mosfellingur - 23.08.2016, Side 52
 - Jákvæðir straumar52 Ólympíuskrokkar Eitt af því skemmtilegasta við Ól-ympíuleika er að spá í líkams- byggingu keppenda. Maður sér litla, stóra, mjóa, breiða, langa, stutta, þétta og þunna skrokka. Allt eftir því í hvaða íþrótt skrokkarnir eru að keppa í. Blakarar eru hávaxnir, körfuboltaspírunar líka. Kastararnir eru þungir og þéttir. Fimleikafólk- ið vöðvaþrungið. Langhlauparar vöðvarýrir. Hver íþróttagrein á sinn uppáhaldsvöxt. Það er frábært. Það er virkilega gaman að sjá að allir þessir ólíku skrokkar og líkamsbygg- ingar hafi fundið íþróttagrein við hæfi. Þetta er eitthvað sem við, sem erum ekki keppendur á Ólympíu- leikum, getum lært af. Við höldum nefnilega mörg að við getum breytt okkur, sama hvaða líkamsbyggingu við höfum, í einhvern annan. Bara ef við æfum eins og viðkomandi. Ég, sem er rétt tæplega 1.80 cm á hæð og með létta líkamsbygg- ingu, get auðveldlega selt mér þá hugmynd að ef ég æfi og borða eins og Usain Bolt, þá geti ég orðið frábær spretthlaupari. Nánast eins hraður og hann. Ég þurfi bara að komast yfir æfingaplanið hans og borða yams í morgunmat eins og menn gera á Jamaica. Þangað til ég skoða og ber saman líkamana sem við fengum í vöggugjöf. Usain Bolt er 1.95 cm og rúmleg 25 kg þyngri en ég – af vöðvum. Hann hefur forskot og sama hvað ég æfi mikið og borða mikið yams, þá verð ég aldrei 15 cm hærri og 25 kg þyngri af vöðvum. Ég hef hinsvegar fína líkamsbygg-ingu í að klifra og gera ýmsar líkamsæfingar sem þyngri skrokkar eiga erfitt með. Þar hef ég forskot. Skilaboðin með þessum samanburði á mér og Bolt eru þessi: Pældu í lík- amsbyggingunni þinni. Vertu sáttur við hana og nýttu þér styrkleika þína. Þeir eru þarna. Þú þarft bara að uppgötva þá, vera þakklátur fyrir þá og rækta þá. Hver veit, hugsanlega kemstu á Ólymp- íuleikana ef þú finnur rétta sportið fyrir þína líkams- byggingu. Heilsumolar Gaua Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is Þverholti 2 • Mosfellsbæ Fasteignasala Mosfellsbæjar Sími: 586 8080 www.fastmos.ishafðu samband E.BAC K M A N Einar Páll Kjærnested • Löggiltur fasteignasali Viltuselja... E .B A C K M A N www.fastmos.is 2 fyrir 1 á ís alla þriðjudaga HÁHOLT 14 - 270 MOSFELLSBÆ - SÍMI 566 8043 HE IM ILIS MA TU R Í H ÁD EG INU AL LA VI RK A D AG A Lokaverkefni krakkanna í Vinnuskóla Mosfellsbæj- ar var að mála spakmæli á gangstéttir bæjarins. Hugmyndin var að vekja upp jákvæðni og gleði meðal bæjarbúa í tengslum við bæj- arhátíðina Í túninu heima. Á myndinni má sjá stolt ungmenni með afraskturinn. Jákvæð skilaboð til bæjarbúa

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.