Mosfellingur - 22.10.2015, Side 2
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
Í þá gömlu góðu...
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 12. nóvember
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn: (blaðamenn og ljósmyndarar)
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 4.000 eintök. Dreifing: Pósturinn.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Haustið er skollið á í allri sinni dýrð og einhver talaði um að
mínustölurnar á hitamælinum væru
ekki langt undan. Er ekki bara viss
sjarmi yfir hverri árstíð?
Eða er það klisja? Árið er
alla vega svona temmi-
lega langt þannig að
maður hlakkar alltaf til
komandi tíma.
Í blaðinu í dag birtum við
skemmtilegar
myndir frá
stóðrétt-
um og
hrútasýningu. Alltaf gaman að halda
sem lengst í sveitarómantíkina í
okkar ört vaxandi bæjarfélagi. Af
hverju breytum við ekki bara nafninu
á Mosfellsbæ aftur í Mosfellssveit og
höldum áfram að vera svolítið sveitó?
Það væri saga til næsta bæjar.
Það er gaman að fylgjast með öll-um þeim listamönnum sem senn
skríða út úr fylgsnum sínum með ný
verk, svona í aðdraganda jóla. Enda
mikil vertíð framundan. Nýjar bækur
og plötur líta dagsins ljós og kórar og
hljómsveitir byrja að æfa jólalög og
halda tónleika. Og hér í Mosfellsbæ
höfum við alla þessa flóru.
Sjarminn í sveitinni
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
- Frítt, frjálst og óháð bæjarblað2
www.isfugl.is
héðan og þaðan
Fasteignasala Mosfellsbæjar • Kjarna • Þverholti 2 • 270 Mosfellsbær • S. 586 8080 • fax 586 8081 • www.fastmos.is • Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali
ÍþRÓTTahÚSIð að VaRMÁ
Húsið var reist á árunum 1975-77. Arkitekt er Gísli Halldórsson og byggingarstjóri Hreinn Þorvaldsson.
UMFA félagar lögðu mikið af mörkum með sjálfboðavinnu og réðust m.a. í það stórvirki að byggja
einbýlishús í Arnartanga og hagnaður af sölu þess rann til íþróttahússins. Ýmsir verktakar og vörubíl-
stjórar lögðu til efni og vinnu fyrir UMFA til byggingarinnar. Íþróttahúsið var vígt við hátíðlega athöfn 4.
desember 1977 og gjörbreytti aðstöðu bæði til kennslu og íþróttaiðkunar í Mosfellssveit.
Heimild: Dagrenningur. Myndir úr safni Áhaldahúss Mosfellsbæjar.
Grunnurinn lagður. Aftan á
þessa mynd skráði Hreinn
Þorvaldsson byggingar-
stjóri: Íþróttahúsið stendur á
stöplum, súlurnar þar ofan
á og halda undir sperruenda
á þakinu. Það tók 11 daga
að gera húsið fokhelt.
Jón M. Guðmundsson
oddviti flytur ávarp
þegar hann tekur
fyrstu skóflustunguna
að íþróttahúsinu
24. maí 1975.